Freyr - 01.06.1994, Blaðsíða 30
Kröfur um lágmarks útbreiðslu gróðurs munu hafa mikil áh'rifá mat á hœfilegu
beitarálagi. (Ljihm. a.a.>.
Eitt af meginmarkmiðum beitarstjórnar er að stöðva jarðvegseyðingu og fvrir-
byggja a<5 ný jarðvegseyðing geti hafist. d.jihm. aa.i.
Eftir mikið japl og jaml og fuður og
óbætanlegar skemmdir á beitiland-
inu komu menn sér saman um að
hæfilegt álag á landið væri um 5.000
nautgripir. Aðurnefnd matsaðferð
hefur nú alls staðar verið aflögð,
jafnvel sem upphafsviðmiðun.
Önnur matsaðferð, sem víða er
enn notuð í Bandaríkjunum, gengur
í þveröfuga átt. Leituð eru uppi
ósnortin gróðurlendi og út frá þeim
eru gróðurskilyrði kortlögð. Astand
lands er síðan metið sem frávik frá
þessum vistfræðilega grunni. Slík
aðferðafræði leiðir oft til vanmats,
því að með hóflegri beit getur mynd-
ast gróðurfar sem er aðlagað beit-
inni og veitir landi sterka vörn.
Ríkjandi stefnur við stjórn beitar
Víðast hvar eru nú notaðar að-
ferðir sem grundvallast á því megin-
markmiði að stöðva eða fyrirbyggja
jarðvegseyðingu og byggja upp eða
viðhalda gróðurfari sem hentar við-
komandi landnýtingu best. T.d. er
stuðlað að gróðurfari sem gefur
mikla uppskeru af næringarríkum
plöntum ef um beitiland er að ræða.
Yfirleitt er sú „einfalda“ aðferð
notuð að mæla breytingar á gróður-
fari. jarðvegseyðingu o.fl. þáttum
frá einum tíma til annars. Fjölda
beitargripa eða stjórn beitar er síðan
breytt eftir því hve vel miðar að ná
settum markmiðum um ástand
landsins.
I ljósi reynslunnar er víða komið
nokkuð vel í ljós hve mikil beit hæfir
á viðkomandi landi. Ekki er þá mið-
að við meðalárferði, heldur að land
skemmist ekki vegna of mikils álags
ef árferði versnar, t.d. vegna kulda
eða þurrka. Þetta er gert vegna þess
að meiri gróðurskemmdir geta orðið
á einu slæmu ári en náttúran nær að
bæta á mörgum góðum árum. Koma
verður í veg fyrir óbætanlegt tap á
jarðvegi og framleiðslugetu lands-
ins.
Kröfur um verndun vistkerfa eru
almennt að aukast. Af því leiðir að
mat á hæfilegu beitarálagi er í sí-
felldri endurskoðun. Mikið kapp er
lagt á að rannsaka beitaráhrif og
skipulag beitar með það að mark-
miði að vernda landið og auka jafn-
framt arðsemi beitarinnar. Sums
staðar. t.d í Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi, hefur viðkvæmt og illa far-
ið land verið friðað fyrir beit.
Beitarþolsútreikningar hér á
landi
Aðferðafræðin sem var notuð til
að áætla beitarþol hér á landi fram á
síðasta áratug er í meginatriðum sú
sama og var um tíma notuð sums
staðar í Bandaríkjunum. Gerð voru
gróðurkort þar sem land var flokkað
í margs konar gróðurlendi. Viða-
miklar uppskerumælingar voru
gerðar, og meðaluppskera hvers
gróðurlendis reiknuð út- Með notk-
un svokallaðra nýtingarstuðla var
síðan reiknað út hve mikið af upp-
skerunni talið var óhætt að fjarlægja
með beit.
Reiknaðar voru út fóðurþarfir áa
og lamba á sumarbeit. Með því að
deila fóðurþörfum upp í nýtanlega
uppskeru fékkst svokallað útreikn-
að beitarþol. Síðan var útreikning-
um haldið áfram með hliðsjón af
þáttum sem haft geta áhrif á ástand
lands.
Gerð gróðurkorta af stórum hluta
landsins er mikið þrekvirki og í þeim
felast ómetanlegar upplýsingar.
Þessi kort gefa mjög góða mynd af
þeim gróðri sem vex á landinu. Þau
veita hins vegar ekki nægar upplýs-
422 FREYR - 11'94