Freyr - 01.12.1994, Blaðsíða 7
Opið hús og ull í fat
á Stóra Ármóti
Ingi Heiðmar Jónsson, kennari ó Flúðum
í gamla samkomuhúsinu að Þing-
borg í Flóa hafa starfað saman 30-
40 konur af Suðurlandi við tóskap
og munagerð. Þær hafa undir
leiðsögn Helgu Thoroddsen og
Hildar Hákonardóttur stundað
ullarvinnslu á öllum stigum, og
því er í Þingborg sérstakt her-
bergi þar sem ull er þvegin. Þar er
einnig ull lituð úr jurtalitum, en
nokkrar Þingborgarkvenna hafa
sérhæft sig í þeirri grein. Ull þæfa
þær til hattagerða eða til að gera
skrautmottur og veggteppi. Þar er
unnið með kembivél, sérsmíðaða
fyrir íslenska ull. Formaður Þing-
borgarkvenna er Hildur Hákon-
ardóttir.
Systurhópur í Borgarfirði
Systurhópur þeirra starfar í Borg-
arfirði. Þær kenna sig við Ullarsel
og koma saman á Hvanneyri. I fyrra
komu þær á keppni í ullarvinnslu og
í franthaldi af því skoruðu Þing-
borgarkonur á þær til keppni í haust.
Hugmyndin á bak við keppnina er
sú að árlega verði keppt um veg-
legan farandbikar úr íslensku birki
frá Miðhúsum v/Egilsstaði. Lands-
samtök sauðfjárbænda gáfu gripinn
af miklum rausnarskap.
Keppnin var síðan haldin á Stóra
Ármóti laugardaginn ló.okt. í boði
Búnaðarsambands Suðurlands sem
gaf veitingar handa 1000-1200 gest-
um sem komu þennan dag og síðan
grillveislu handa þátttakendum og
aðstandendum keppninnar. Mjólkur-
bús Flóamanna, sem gaf einnig hluta
veitinganna.
Um kl.l 1 komu Borgfirðingamir í
stórri rútu: keppnislið, stuðningslið
og hagyrðingur ofan úr Hvítársíðu.
Bílstjóri borgfirsku rútunnar var
hinn nafntogaði rúningsmaður Guð-
mundur Hallgrímsson, ráðsmaður á
Hvanneyri. Aður en keppnin hófst,
rúði hann lömb valin af hvorum
liðsstjóra og keppnin fólst síðan í
Ingi Heiðmar Jónsson.
því að úr þeim reifum var spunnið
úr ókembdri ullinni og síðan
prjónuð peysa í mörgum hlutum.
Ullarkappið í Þingborg
Laust fyrir hádegi hófst keppnin
en hvor fylking var skipuð 8 þátttak-
endum. Borgfirðingar skákuðu Þing-
borgarkonum í því að hafa karl,
Philippe Ricart, í sínum hópi, en
hann fór að starfa með þeim þegar
Ullarsel hóf starfsemi fyrir tveimur
árum og er sérfræðingur þeirra í
jurtalitun og spjaldvefnaði.
í hvorum hópi var einn liðsstjóri
sem hafði það hlutverk eitt að velja
verkefni handa sínum liðsmönnum
og hvetja þá. Fyrstu tvær klukku-
stundir sátu þær allar við rokkana,
en þá voru ein til tvær settar við
prjóna og þannig fjölgaði prjóna-
konum smám saman, en fækkaði
spunakonum eftir því sem betur
miðaði með spunann.
Uppi á vegg voru stór spjöld með
útlínum peysu og var merkt inn á
spjöldin hjá hvorum flokki hvernig
prjónaskap miðaði og voru flokk-
amir óspart hvattir af stuðnings-
mönnum sínum.
Laust fyrir klukkan 17 var sýnt að
til úrslita drægi. Þá var langt komið
að sauma saman peysumar og
spenningur meðal gestanna
geysimikill. Þingborgarkonur virtust
vera sjónarmun á undan, en á loka-
sprettinum geystust Ullarselskon-
Falleg lömb úr Flóanum ogfrúrfrá Þingborg. Ljósm. Inni Heiðmar Jónsson.
23'94 - FREYR 871