Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 7

Freyr - 01.05.1997, Blaðsíða 7
Ingvei Andersen Skönberg frá Moss í Noregi við jarðarberjatínslu í Silfurtúni. frjóvgað líða 4-6 vikur í einhverja uppskeru og uppskerutíminn dreif- ist síðan á aðrar átta vikur. Frá því innflutta plantan er sett á sinn stað og þangað til uppskeru lýkur líða um fjórir mánuðir. Það er hengt upp í júní-júlí og þær plöntur gefa upp- skeru um haustið og aftur maí-júní árið eftir. Þá er þeim plöntum fleygt eða gert eitthvað annað við þær. Telur þú þetta vænlega búgrein fyrir bændur? Eg tel að einhverjir bændur gætu hagnýtt sér þetta, en hingað til hafa vandamál verið á ferð, t.d. að geyma plönturnar yfir veturinn. Hjá mér urðu töluverð afföll á plöntum sl. vetur vegna veðurfars- skilyrða. Ég er ekkert frá því að íslenskir framleiðendur eigi að geta náð einhverju af jarðarberjamarkaðnum sem nú er að heita má eingöngu sinnt með innflutningi, en ég sé ekki fyrir mér sérhæfð bú í jarðar- berjarækt, það er alltof mikil áhætta. En af hverju ættu íslensk jarð- arber að vera betri en innflutt? Islensk jarðarber hafa þann kost að þau eru tínd við markaðinn og þau eru tínd á því stigi þegar þau eiga að fara í sölu, en útlend jarðar- ber fara í kæligáma og flutninga- meðferð áður en þau eru söluhæf. Síðan fara þau jafnvel einnig á markað þar sem þau eru boðin upp. Ferillinn, sem innfiutt ber eru búin að fara til íslands, getur því orðið nokkuð langur. Varnarefni gegn sjúkdómum og skordýrum? Það er auðvitað ljóst að við eigum ekki helming að þeim plágum sem nágrannaþjóðirnar eiga við að stríða. Hins vegar eru ákveðnir þættir sem við verðum að takast á við, sem er fyrst og fremst myglu- sveppur. Þetta er eins og með aðra ræktun að það verður að forða henni frá slysum. Myglulyf eru annars með vægustu lyfjum og í lægsta hættuflokki og varan er neysluhæf eftir 3-4 daga. Gagnvart lús og roðamaur er hins vegar beitt lífræn- um vörum eins og annars staðar í íslenskri garðyrkju. Gróðurhús skapa vaxtarskilyrði fyrir myglu- svepp, en skordýraplágur, sem heit- ari lönd hafa, erum við laus við. Hvað gætu opinberir aðilar gert til að stuðla að jarðarberja- rækt? Því er erfitt að svara. íslensk garðyrkja hefur verið homreka í kerfinu þó svo að við njótum ráðu- nautaþjónustu og Garðyrkjuskólinn sé fyrir hendi. Islenskir garðyrkju- bændur hafa verið svo sundurleit stétt að þeir hafa ekki borið gæfu til að standa saman um mál sín. Ég tel að garðyrkjubændur verði að hætta að kroppa augun hver úr öðmm í von um að nágranninn fari á haus- inn og snúa sér að faglegum vinnu- brögðunt í skipulagi ræktunar og af- setningu vöm, eins og gert er í ná- grannalöndum okkar. Ég tel því að hið opinbera geti að svo stöddu fátt gert í jarðarberjum frekar en í öðr- um greinum garðyrkju./M.E. 5. ‘97-FREYR175

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.