Freyr - 01.05.1997, Síða 21
Soffi'a Eyrún Egilsdóttir starfsmaður við Hestsbúið.
og vænta mátti voru gemlingamir af
Þokustofninum langfrjósamastir, 3
voru þrflemdir, 18 tvílembdir og 7
einlembdir. Alls fæddust því 132
lömb eða 1,48 lamb á gemling sem
bar, en 1,32 lamb á hvem gemling,
sem hleypt var til.
Fyrir rúning misfómst 17 lömb,
þar af fæddust 6 dauð, þar af 3 þrí-
lembingar undan sömu gimbur og 3
tvflembingar öll af Þokustofni, 6
dóu í fæðingu og 5 drápust eftir að
þau komu út. A heimtur vantaði 7
lömb, og var ekki vitað um dauða
orsök neins þeirra. Alls misfómst
24 lömb eða 18,2% sem em 3,9
prósentum minni vanhöld en sl. vor.
Meðalfæðingarþungi gemlings-
lambanna er sýndur í töflu 9 ásamt
fæðingarþunga þeirra sl. 3 vor til
samanburðar.
Meðalfæðingarþungi allra lamba
var 3,00 kg. Fæðingarþungi ein-
lembingshrúta er svipaður og sl.
vor, en hins vegar er hann minni hjá
gimbrunum. Fæðingar þungi tví-
lembingshrúta er nánast eins og sl.
vor en hjá gimbrunum nokkuð
meiri.
Vöxtur lamba og afurðir
gemlinganna
1 töflu 10 er sýndur vaxtarhraði
gemlingslamba, frá fæðingu til 3.
júlí og frá 3. júlí til 25. september.
Einnig þungi á fæti og fallþungi,
flokkað eftir því hvemig lömbin
gengu undir. Fimm gemlingslömb
vom vanin undir ær og em þau ekki
tekin með í töflunni.
Meðalvöxtur gemlingslambanna
nam 270 g/dag. Vöxturinn var
ágætur fyrrihluta sumars, ámóta og
sl. sumar, en til muna lélegri síðari
hlutann. Til haustvigtunar kom 91
heilbrigt lamb og reyndist meðal-
þungi þeirra á fæti nam 35,5 kg og
meðalfallið 14,6 kg, sem er 1,1 kg
minni fallþungi en sl. haust og staf-
ar af minni vexti lambanna síðari
hluta sumars.
Vanhöld
Af 464 ám tvævetur og eldri, sem
settar vom á haustið 1995, fómst 24
eða 5,1% og af 115 ásetningsgimbr-
um fómst 7 eða 6,1%. Alls fómst
því 31 ær og gemlingur eða 5,4%.
Þetta em einhver mestu vanhöld á
búinu hingað til, og munar þar
mestu að hve stóran toll skurðimir
taka, en alls drápust í skurðum 10
kindur, þar af 9 í hrakviðrum haust-
ið 1995. Aðrar orsakir vanhalda
vom, eftir bestu vitneskju: 5 á vant-
aði á heimtur, óviss orsök 1, þarma-
lömun 1, afvelta vom 2, 1 af slys-
fömm, 1 fannst dauð á fjalli, 2 úr
júgurbólgu, 1 úr doða og 1 af burð-
arerfiðleikum. Orsakir vanhalda
gemlinganna vom: 2 drápust á húsi,
2 úr júgurbólgu, 1 af burðarerfið-
leikum, 1 drapst í skurði, 1 óviss.
Alls misfómst 98 lömb á búinu
eða 9,9% sem em heldur minni
(0,7% stigum) vanhöld en sl. ár.
Ritað í aprtl 1997
Tafla 9 Fæðingarþungi gemlingslamba, kg
Lömb 1996 1995 1994 1993
3 þríl. hrútur 2,33 2,40
6 þríl. gimbrar 2,40 2,00
36 tvfl. hrútar 2.59 2,58 2,67 2,69 kg
36 tvfl. gimbrar 2,75 2,59 2,78 2,67 kg
31 einl. hrútar 3,62 3,69 3.78 3,29 kg
20 einl. gimbrar 3,48 3,65 3,55 3,24 kg
Tafla 10 Vöxtur gemlíngslamba g/dag, þungi á fæti að
hausti og fallþungi, kg
Lömb Frá fæðingu til 3. júlí Frá 3 júlí til 25. sept. Tala lamba Þungi á fæti Fallþungi
34 Einl. hrútar 291 232 35 37,9 15,7
23 Einl. gimbrar 294 214 23 37,3 15,7
15 Tvfl. hrútar 231 202 16 31,8 12,8
17 Tvíl. gimbrar 233 203 17 -31,8 13,0
5. ‘97-FREYR189