Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1999, Side 13

Freyr - 01.01.1999, Side 13
og hafa gert smávegis athuganir á vexti folalda sem undir þessum hryssum ganga. Úr þessari einu athugun, sem gerð hefur verið, kom í ljós að folöldin voru aðeins þyngri undan þeim hryssum sem blóð var tekið úr en hinum. Það má því segja að þetta skipti engu máli fyrir þrif folaldanna og hryssnanna. Hvert er umfang blóðsöfnunar- innar orðið? Ég held að það sé verið að taka blóð úr þetta 6-700 hryssum á ári, hér í Rangárvallasýslu og Vestur- Húnavatnssýslu í fyrsta sinn í ár. Isteka vinnur sjálft hormónana úr blóðinu og selur afurðina til erlends lyijafyrirtækis, en hér er um frjósemishormóna að ræða. Hafa komið upp hugmyndir um að setja flokkunarreglur um útflutt hross? Já, þær hafa nokkrum sinnum komið upp i fagráði, nú síðast á þessu ári. Menn hafa þó alltaf strandað á þessu, fyrst og fremst út af kostnaði. Þetta þýddi það að menn yrðu að fara um og taka hrossin út. Auk þess vitum við það að hrossin eru afar fljót að breytast, þau geta verið i góðri þjálfun þegar þau eru tekin út eða öfugt en mánuði síðar eru þau ekki í þjálfun eða komin í góða þjálfun þannig að allar forsendur eru breyttar. Menn hafa því guggnað á þessu hingað til. Verð á útflutningshrossum? Verð á meðalhrossi til útflutnings er um 150-200 þúsund krónur og hefur lítið hækkað á síðustu árum og það eru menn ekki ánægðir með. Síðan er þetta vandmál að opinbert verð og raunverulegt verð er ekki hið sama. Ástæða þess liggur ekki hjá bændum, heldur því að það eru verulegir tollar á innflutt hross til ESB. í Þýskalandi er t.d. 18% innflutningstollur sem kemur ofan á verð og flutningsgjald, þá kemur virðisaukaskatturinn þar ofan á og hann er þar 24%. Þetta veldur því að erlendu kaupendumir gera þá kröfu á okkur að uppgefíð verð sé lægra en raunverulegt verð. Svo er hitt, sem er alþjóðlegt fyrirbæri, að peningar sem fólk er að nota í ffístundaáhugamál em því miður oft "gráir". Það hefur oft reynst mér erfitt að hlutimir skuli vera með þessum hætti þegar ég hef verið að vinna fyrir Félag hrossa- bænda. Innanlandsverð á hrossum? Það helst mjög í hendur við útflutningsverðið og sú litla verð- hækkun sem orðið hefur að undan- förnu hefur að einhverju leyti stjórnast af því að framboð á hestum hefur verið mikið. Síðan kemur himinhátt verð á kynbótahrossum. Já, þar ræður líka framboð og eftirspum. Þar gilda þó þær reglur að úrvalskynbótahross, með mjög háa dóma og hátt í BLUP-inu, skulu boðin til kaups innanlands fyrst á því verði sem samið hefur verið um við erlendan kaupanda. Stofnvemdarsjóði var komið á fót til að geta veitt lán og styrki til þeirra sem vilja kaupa þessas hesta. Það em eingöngu félög sem geta fengið fyrirgreiðslu Stofn- vemdarsjóðs. Afar fágætt er að sjóðurinn hafi stutt það að koma í veg fyrir að kynbótahestur hafi verið seldur úr landi. Ef ég man rétt em það ekki nema tvö tilfelli frá árinu 1970. A hvaða verði hafa þessir úrvalskynbótahestar verið seldir? Ég hef engar staðfestar upphæðir um það en hef heyrt allt upp í 10 millj. kr. Nokkrar milljónir kr. er hins vegar algengt fyrir úrvals stóðhest. Þetta em hins vegar fá hross á hverjum tíma eða e.t.v. 20-30. Hins vegar er alveg ljóst að úrvals kynbóta- hrossum hefur fjölgað mjög. Fyrir um 20 ámm vom þessi hross örfá, en síðan hefur fjölgað á toppnum og þá má reikna með að það mun líka hafa áhrif á verðið til lækkunar í framtíðinni. Tamningar á hrossum? Það er alveg ljóst að fjöldi manna hefur atvinnu af tamn- ingum og þeim á enn eftir að fjölga. Að mínu mati þurfum við að leggja aukna áherslu á að hross sem við emm að bjóða til kaups séu betur tamin en nú gerist. Það eru of mörg illa tamin hross boðin til sölu. Ég vil nefna það hér að mér fínnst afar ánægjulegt það sem gert hefur verið á Hólum í Hjaltadal þar sem verið er að kenna fólki að temja hross til að gera þau að alvöru markaðsvöru. Yfirleitt þessi uppbygging hrossa- ræktarinnar á Hólum hefur tekist afar vel. Hrossaræktin í heild skapar heilmikla atvinnu. Já, það er ótrúlegur ijöldi fólks sem hefur atvinnu af ýmsu sem tengist hrossaræktinni. Þar má nefna hestaleigumar sem bjóða bæði upp á stuttar og langar ferðir, tamningar, reiðtygjaframleiðslu, heysölu og margt fleira. Atvinnu- og verðmætasköpun í hrossarækt og í tengslum við hana er mjög mikil. M.E. Ath. Viðtal þetta er tekið áður en Bergur Pálsson lét af störfum sem formaður Félags hrossa- bænda. FREYR 1/99-9

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.