Freyr - 01.01.1999, Blaðsíða 55
ráð í New York og Dan Slott í
Bandaríkjunum, eru að ýta úr vör.
Verkefnið er eins árs kynningar-
prógramm sem felst m.a. í þvi að
senda út stuttar kynningarmyndir
um íslenska hestinn til 200 banda-
rískra sjónvarpsstöðva, fá um-
ijöllun í hestatímaritum, dag-
blöðum og öðrum fjölmiðlum.
Sérstök heimasíða um íslenska
hestinn og hvar er hægt að kynnast
honum í Bandaríkjunum verður sett
upp og eins upplýsingasími þar sem
áhugasamir geta hringt og fengið
upplýsingar um hestakynið, án
endurgjalds. Einnig verður leitað til
ræðismanna og annarra íslandsvina
um að koma íslenska hestinum á
framfæri sem víðast og settur
verður saman sérstakur fyrirlestur-
kynningarpakki sem hægt verður
að bjóða ýmiss konar klúbbum upp
á. Verkefni þetta er mjög umfangs-
mikið og er fjármagnað af aðilum
hér á íslandi að helmingi, aðila í
Bandaríkjunum að '/2 og af ferða-
málageiranum að '/2. Verkefni
þetta verður nánar kynnt í markaðs-
nefnd aðalfundar.
Ferðin til Bandaríkjanna var
mjög lærdómsrík. Undirrituð heim-
sótti fimm fylki, sótti sýningar,
fundi og heimsótti bú og tamninga-
stöðvar. Ljóst er að Bandaríkin
bjóða upp á mikla möguleika, en
þarfir þess markaðar eru þó allt
aðrar en þarfir innanlands-
markaðarins. Langmest eftirspum
er eftir mjög ömggum hestum sem
tölta hreint. Útlitið skiptir miklu
máli og auðveldara er að selja
stærri hrossin. Eitt stærsta vanda-
málið í markaðssetningu í Banda-
ríkjunum er hin mikla stærð
markaðarins og hversu litla mögu-
leika við höfum á að fullnægja
eftirspurn eftir þekkingu og
fróðleik tengdum hestinum. Þrátt
fyrir að margt gott sé verið að vinna
í Bandaríkjunum hafa einnig
skapast þar margvísleg vandamál,
flest sprottin af vanþekkingu, auk
þess sem við eigum í mikilli
samkeppni við Þjóðverja og aðra
um þennan markað. Undirrituð
vinnur nú að gerð fyrirlesturs um
möguleika á Bandaríkjamarkaði og
stendur deildum félagsins til boða
að fá mig á fund til að kynna þetta
mál, auk þess sem málið verður
reifað í markaðsnefnd aðalfundar.
IV. Kynningarefni
4.1 Auglýsingar.
A árinu voru hannaðar aug-
lýsingar til kynningar á íslenska
hestinum og voru þær birtar víðs-
vegar, t.d. í uppflettiritinu "Iceland
Country and People" sem gefið er
út af Iceland Review og kemur út í
stóru upplagi og á mörgum tungu-
málum.
Einnig hefur verið auglýst í
tímariti vamarliðsmanna "Iceland
Explorer" og víðar.
Þjónusta félagsins var auglýst í
Eiðfaxa Intemational og í sérriti um
Island hjá Islandshásten og Hást
Fynd í Svíþjóð. Einnig auglýsti
félagið í mótsskrá Landsmótsins
sem og Islandsmótsins.
4.2 Hótelrásin.
Islenski hesturinn hefur undan-
farið ár verið kynntur á svokallaðri
hótelrás. Um er að ræða stutta
kynningarmynd sem sýnd er á
hótelum víðsvegar um land. Við-
brögð við myndinni hafa verið góð
og því er til skoðunar að endumýja
birtingarsamninginn og halda
sýningu hennar áfram.
4.3 Handbók um hirðingu,
þjálfun og meðferð.
Verkefhi þetta, sem kynnt var á
síðasta ári, er enn á undirbúnings-
stigi, enda leyfðu aðstæður í ár ekki
að farið yrði út í það af fullum
krafti. Ljóst er þó að þörfin er mikil
fyrir slíka bók og verður þetta
tvímælalaust eitt af forgangsverk-
efnum næsta árs. Slík bók myndi
innihalda grunnupplýsingar um
fóðrun, reiðmennsku, reiðtygi,
járningar, aðbúnað og umhirðu.
Hugsanlega gæti slík handbók fylgt
upprunavottorðum.
4.4 Iceland Export Directory.
Félagið hefur undanfarið ár skráð
sig í Iceland Export Directory sem
er skrá yfir íslensk útflutnings-
fyrirtæki, gefin út af Útflutnings-
ráði. Okkur hafa borist margar
fyrirspurnir sem rekja má til
þessarar skrár og er hún því góð
leið til að koma félaginu á
framfæri.
4.5 Eldra kynningarefni.
Félagsmönnum stendur til boða
að kaupa eldra kynningarefni á
skrifstofu félagsins. Vandaður
kynningarbæklingur i lit um
íslenska hestinn er fáanlegur á
þremur tungumálum; ensku,
sænsku og þýsku, og kostar kr. 50
stk.
Myndband félagsins Equus
Islandicus fæst einnig hjá markaðs-
fulltrúa og kostar kr. 1.250 fyrir
félagsmenn. Myndin fæst á ensku
og þýsku.
V.
Markaðsráðstefna
Sjá grein eftir Brynjólf Sandholt
fyrrv. yfirdýralækni, Alþjóðleg
markaðsráðstefna um útflutning
hrossa, hér framar í blaðinu.
VI. Starf með
deildum
6.1 Fundir.
Vegna hitasóttarinnar varð lítið
af ferðalögum markaðsfulltrúa út
um land til fundahalda. Rétt áður en
FREYR 1/99 - 51