Freyr - 01.01.1999, Blaðsíða 59
Athugið einnig að nauðsynlegt er
að skila skýrslum til BÍ og
Ormsson um hvaða merkingar-
menn fá hvaða merki, þ.e.
númeraraðir. Þetta er nauðsynlegt
til að hægt sé að halda utan um
skýrsluhaldið er tengist örmerkj-
unum.
XII. Ýmis mál
12.1 Starf með Útflutnings- og
markaðsnefnd.
Undirrituð hefur sótt fundi
Utflutnings- og markaðsnefndar og
starfað að ýmsum málum fyrir
nefndina. Mestur tími fór á þessu
ári í að starfa að undirbúningi
markaðsráðstefnu í Hrafnagili í
tengslum við landsmótið. Þar sá
undirrituð m.a. um tengsl við
erlenda fyrirlesara, auglýsingagerð,
dreifingu á kynningarefni og annan
undirbúning. Auk mín skipuðu
undirbúningsnefndina þau Brynj-
ólfur Sandholt og Ema Amardóttir,
sem upphaflega átti hugmyndina að
ráðstefnuhaldinu.
12.2 Vinnuhópur á vegum
Alþingis.
Síðastliðin vetur boðuðu nokkrir
alþingismenn til fúndar um mikil-
vægi íslenska hestsins og þeirrar
verðmætasköpunar sem honum
fylgir. Hópurinn hittist tvisvar og
sóttu markaðsfulltrúi og formaður
þá fúndi. Undirrituð tók svo sæti í
undirhópi er hittist og fjallaði um
útflutningsmál og sjúkdóma. M.a.
ljallaði sá hópur töluvert um hita-
sóttarmálin. Stefnt er að því að
þessi hópur taki upp þráðinn að
nýju nú í haust, en Ámi Mathiesen
alþingismaður leiðir hópinn.
12.3 Fréttabréf.
Fjöldi fréttabréfa hefur verið
sendur deildum félagsins á árinu.
Rétt er að hvetja félagsmenn til að
hafa samband við deildarformenn
sína og fylgjast með þeim málum er
félagið kynnir deildunum.
Eins og áður hefur komið fram
sendi félagið frá sér mörg fréttabréf
á meðan á hitasóttinni stóð, auk
þess sem allir stjórnarmenn deilda
fá fundargerðir stjórnar, auk
annarra samstarfsaðila sem þess
hafa óskað. Einnig hefúr markaðs-
fulltrúi séð um að koma fréttum af
starfi félagsins og sjónarmiðum
greinarinnar á framfæri í fjöl-
miðlum, með greinaskrifum og í
viðtölum.
12.4 Samstarf við embætti
yfírdýralæknis.
Eins og komið hefur fram hér á
undan starfaði markaðsfulltrúi tölu-
vert með embætti yfírdýralæknis á
árinu. Eg tel mikilvægt og jákvætt
að félagið hafí sem mest samskipti
við embættið og hafí þannig
greiðan aðgang að upplýsingum um
hagsmunamál er greinina varðar.
Nauðsynlegt er að félagið styðji við
bakið á mikilvægum rannsóknar-
verkefnum, s.s. á sumarexemi og
spatti, en það eru þeir sjúkdómar
sem mest áhrif hafa á
markaðsmálin.
12.5 Umsókn um styrk vegna
landlæsisveggspjalds.
Á árinu hafði Björn Barkarson
hjá Landgræðslunni samband við
mig og lagði til að við sæktum um
styrk til Umhverfissjóðs verslunar-
innar til gerðar veggspjalds er
myndi auðvelda hestamönnum að
meta ástand beitarlands. Sótt var
um styrk í nafni félagsins, en
sjóðurinn sá sér ekki fært að verða
við þeirri umsókn.
12.6 Enn og aftur til umhugs-
unar.
I síðustu ársskýrslu greindi ég frá
kvörtunum erlendra aðila um
ormasmit í innfluttum hrossum. Því
miður hefur ekki dregið úr þessum
kvörtunum og því þurfum við að
leggja áherslu á aukna orma-
hreinsun og fræðslu þar um. Gæða-
stýring er það sem koma skal og
ormahreinsun og annað sem lýtur
að venjubundnum heilbrigðis-
aðgerðum verður að vera
forgangsatriði í meðferð íslenska
hestsins.
Lokaorð
Að lokum vil ég þakka öllum þeim
er starfað hafa með mér á þessu ári,
sérstaklega formanni og stjóm,
forsvarsmönnum deilda okkar vítt og
breitt um landið, starfsfólki BÍ,
Framleiðsluráðs og öllum öðrum er
hafa lagt eitthvað af mörkum til
markaðsstarfa félagsins.
Eg hvet félagsmenn alla til að
kynna sér verkefni félagsins og
hika ekki við að hafa samband við
skrifstofu félagsins.
Aðalfundi Félags hrossabænda
1998 er óskað góðra starfa.
MOLAR
Aukið frelsi í
löndum ESB
Meginreglan um að ESB sé eitt
atvinnusvæði gildir einnig um
bændur. Bóndi í hvaða ESB landi
sem er getur sótt um að ganga í
hvaða samvinnurekið afúrðasölu-
félag sem er á svæðinu. Afurða-
sölufélagið getur því aðeins
hafnað umsókn að flutningur á t.d.
lifandi búfé yfír landamæri bijóti í
bága við lög viðkomandi lands urn
sjúkdómavamir eða dýravemd.
Bændur sem hyggjast nýta sér
þennan rétt verða hins vegar að
leysa vandamál er upp kunna að
koma vegna tungumála eða ólíkra
siða og reglna milli landa.
(Bondebladet nr. 49/1S98)
FREYR 1/99 - 55