Freyr - 01.01.1999, Page 15
umsjónarmanni stóðhestsins og
dýralækninum sem framkvæmir
ómskoðunina. Frumritinu skal
skila inn til skráningar eigi síðar
en 31. desember notkunarár
hestsins.
Annað skrefið er færsla á fang-
og folaldaskýrslu. Skýrslan er
send út hálfútfyllt til þátttakenda í
skýrsluhaldinu eins og verið
hefur, skýrsluhaldarinn lýkur
útfyllingunni og sendir skýrsluna
inn til skráningar eins og áður.
Nýjungin er hins vegar sú að
skýrsluna er einungis hægt að
skrá í tölvu ef því skilyrði er
fullnægt að hver hryssa fyrir sig
komi fyrir árið á undan á stóð-
hestaskýrslu hjá sama hesti og
skráður er faðir folaldsins.
Þriðja skrefið er einstaklings-
auðkenning, þ.e. örmerking sem
skrá skal í örmerkingabók eða
frostmerking sem skrá skal á
frostmerkingareyðublað, frumrit
skal senda inn til skráningar hjá
BÍ. Mikilvægt er að einstak-
lingsauðkenning sé gerð þegar á
folaldsári hrossins.
Sé ákvæðum fyrsta til þriðja
skrefs hér á undan fullnægt er gefið
út nafnskírteini fyrir hrossið og
upprunavottorð A þegar að
útflutningi kemur.
Fjórða skrefíð er blóðflokkun
eða DNA-greining. í því felst
staðfesting ætternis og er skylda
hvað stóðhesta varðar, er
æskilegt hvað undaneldishryssur
varðar og er skylda svo hægt sé
að gefa út nafnskírteini eða
upprunavottorð A ef fyrsta til
þriðja skrefi hér að framan hefur
ekki verið fylgt.
Fimmta skrefíð er viðhald
upplýsinga með færslu eigenda-
skiptavottorða og afdrifaskýrslu.
Ekki er rúm til að kynna afdrif-
askýrsluna hér en hún er handhæg
skýrsla til að koma að leið-
réttingum á hverju einu er varðar
tölvuskráningu hrossanna.
Sjötta skrefíð eru skráningar og
úrvinnsla viðvíkjandi kynbóta-
dómum sem ekki eru hér til
umræðu.
Sértæk ferli
vegna útflutnings
Upprunavottorð verða að fullu
unnin úr gagnabanka BÍ sem
uppfyllir ákvæði gæðaskýrsluhalds,
sbr. ákvæði um vottorð. Hið sama
gildir um útgáfu fyljunarvottorða
og allar upplýsingar sem berast frá
útflytjendum verða að berast í
frumriti og undirritaðar.
Íslands-Fengur
Fyrsta útgáfa af tölvukerfinu
Islands-Fengur er nú komin út.
Íslands-Fengur kemur í framtíðinni
til með að ráða við skráningu og
vinnslu upplýsinga sem aflað er
eftir reglum gæðaskýrsluhaldsins.
Hann er auk þess fjölhæfari og
þjálli en núverandi Fengur og tekur
við hlutverki hans.
Lokaorð
Gæðaskýrsluhaldið verður
væntanlega komið að fullu í
framkvæmd á árinu 1999.
Þess vegna
skaltu verða bóndi
Á fulltrúaráðsfundi danskra
bænda (landsdelegeretmöde) í
Heming í Danmörku á sl. hausti
fékk danski landbúnaðarráð-
herrann (sem þar í landi nefnist
„matvælaráðherra") Henrik Dam
Kristensen áskomn um að nefna
tíu góðar ástæður fyrir því að ungt
fólk eigi að leggja fyrir sig starf
bóndans. Ráðherrann tók áskorun-
inni og svaraði eftirfarandi:
1. Það fellur aldrei úr gildi að
framleiða mat. Aðrar starfsgreinar
geta upplifað tískubylgjur en það
fer aldrei úr tísku að borða. Þess
vegna verður ætíð þörf fyrir
bændur til að framleiða mat handa
okkur.
2. Landbúnaður skiptir afgerandi
máli fýrir hagkerfi okkar. Hann er
stór og mikilvægur atvinnuvegur.
Hver og einn bóndi á þess kost að
hafa áhrif á þróunina.
3. Takið þátt í að framleiða
hágæða matvæli framtíðarinnar.
Hollusta og önnur gæði matvæla
munu komast æ meira í sviðsljósið.
Á sama tíma og samkeppni fer
vaxandi - bæði heima og erlendis -
eiga danskir bændur að leggja
áherslu á hámarksgæði afurða
sinna. Það er spennandi verkefni að
takast á við.
4. Samtök danskra bænda eiga
sér sterkar hefðir í þjóðfélaginu,
áhrif þeirra í þjóðfélagsum-
ræðunni eru mikil. Samvinnu-
framhald á bls. 44
FREYR 1/99-11