Freyr - 01.01.1999, Qupperneq 16
Sýningahaldið í
hrossaræktinni 1998
Sýningahaldi hrossaræktar-
innar á árinu 1998 hafa verið
gerð góð skil, bæði er þar höfð í
huga útgáfa Hrossaræktarinnar
1998 II, sem er ýtarleg skýrsla
um niðurstöður sýninganna, og
mikil umfjöllun var um efnið á
árinu í tímaritum hestamanna,
dagblöðum og ljósvakamiðlum.
Það væri því að bera í bakka-
fullan lækinn að fjalla hér náið
um einstakar sýningar eða
sýningarhross. Heildarsamantekt
um efnið verður hins vegar sett
hér á blað.
Yfirlit yfir
fjölda sýninga og
dæmdra hrossa
Á árinu 1998 var haldin 21
kynbótasýning. Alls voru dæmd
1479 hross, þar af voru 6 ungfolar
sem aðeins fengu umsögn og því er
heildarfjöldi stigaðra hrossa 1473.
Nánar er um þetta fjallað í Hrossa-
ræktinni II 1998. Fulldæmd hross
(bæði dæmd bygging og hæfi-
leikar) voru 1304, 169 hross að
auki voru dæmd fyrir byggingu
(eða alls 1473), ungfolar er fengu
umsögn voru 6, þannig eru hrossin
í heild 1479. Fjöldi dæmdra hrossa
(einn dómur á hross) var 1264 sem
skiptist svo eftir kynferði: Stóð-
hestar 276, hryssur 963, geldingar
25. Enginn vafi er á að hitapestin
sem herjaði í landinu ffaman af
árinu dró allverulega úr þátttökunni
og þá ekki síður í þeim landshlutum
er hún átti eftir að koma upp. Ég
álít að þátttakan hafi orðið um 20%
minni en ella í sýningunum í heild á
árinu vegna hitapestarinnar, sem er
áþekkt og munur á þátttöku 1998
eftir
Kristin
Hugason
hrossaræktar-
ráðunaut BÍ
miðað við landsmótsárið 1994 sem
var metár í þátttöku á kynbóta-
sýningunum hingað til. Miðað við
þá stemningu sem uppi var á meðal
hrossaræktenda og sýningarmanna
á árinu 1997 vegna komandi
landsmóts taldi ég svo sannarlega
miklar líkur á að þátttökumetið frá
1994 yrði slegið.
Yfirlit um störf og
starfsmenn
Sýningahaldið í hrossaræktinni
hófst síðar en að var stefnt og
stafaði það af hitapestinni. Bæði
var að felldar voru niður tvær
vetrarsýningar sem vera áttu í
Gunnarsholti og vorsýningin þar
var haldin síðar en venja hefur
verið.
Alls var unnið að dómum og
sýningum í 58 vinnudaga, í 11 daga
var dæmt á tveimur sýningum
sömu daganna og stóð sýninga-
haldið því yfir í 47 almanaksdaga.
Betur gekk að halda tímaáætlanir á
flestum sýninganna en áður hefur
verið og dagsverkin unnust því
fljótar.
Kristinn Hugason var formaður
dómnefnda á 15 sýningum, sem
stóðu alls yfir í 45 vinnudaga, og
dæmdi 1166 hross, sjá þó síðar. Jón
Finnur Hansson gegndi for-
mennsku á sýningum norðanlands
er Kristinn var bundinn við dóma
syðra. Voru það þrjár sýningar er
stóðu yfir í átta daga og dæmd voru
180 hross. Jón Finnur komst því
miður ekki til fyrstu sýningarinnar
á Norðurlandi (á Króksstaða-
melum), leysti Ágúst Sigurðsson
hann þar af hólmi og dæmdi, ásamt
Guðmundi Sigurðssyni, en ætlunin
var að þeir tveir yrðu með-
dómendur Jóns Finns á sýningunni,
sem var það stór að hún krafðist
reglum samkvæmt fullskipaðrar
dómnefndar (36 hross) enda ráð
fyrir því gert. Jón Vilmundarson
veitti tveimur sýningum austan-
lands formennsku er Kristinn var
bundinn við sýningar á Vesturlandi
og leysti auk þess Kristin af hólmi á
hinni hefðbundnu síðsumarsýningu
Skagfirðinga um verslunarmanna-
helgina en sá síðamefndi var þá í
sumarleyfi. Stóðu sýningar Jóns
yfir i fjóra daga og dæmdi hann 91
hross.
Við þessa upptalningu er því að
bæta að Víkingur Gunnarsson, með-
dómandi á héraðssýningunni í Víði-
dal í Reykjavík, leysti Kristin af
hólmi formennskunnar hluta úr degi.
Nánar tiltekið ffá hádegi fram að
síðdegiskaffi þann 28. maí, eitt holl
u.þ.b. 15 hross, en þá komu m.a. til
dóms tvær hryssur þeirra feðga
Kristins og foður hans, Huga Krist-
inssonar. Guðlaugur V. Antonsson
gekk inn í dómnefhdina á sama tima
sem meðdómandi. Jón Vilmundar-
son leysti Kristin einnig af hólmi f.
hd. sunnudaginn 7. júni en þá stóð
yfir héraðssýning á Gaddstaða-
flötum við Hellu, dæmd vom sex
hross þann dagpart. Hallgrímur
Sveinn Sveinsson sýningarstjóri sat í
dómnefhdinni á sama tíma.
12- FREYR 1/99