Freyr - 01.01.1999, Blaðsíða 53
Skýrsla markaðsfulltrúa
Félags hrossabænda 1997-1998
Starfsárið sem hér er um
fjallað hefur verið einstakt. í
fyrsta sinn þurftum við að eiga
við landlægan smitandi sjúkdóm
sem hafði gífurleg áhrif á allt
starf í hrossaræktinni og
markaðsmálin ekki síst. Vegna
þessa hefur starf ársins ekki verið
nákvæmlega samkvæmt þeim
áætlunum er gerðar voru, en í
skýrslunni mun ég greina frá
helstu verkefnum ársins í
markaðsmálum, auk vinnu vegna
hitasóttar.
I. Útflutningur
reiðhrossa
1.1 Útflutningur 1997
Árið 1997 voru flutt út 2566
hross til 15 landa. Sem fyrr fóru
flest hrossana til Þýskalands, eða
827 talsins. Svíþjóð kemurþví næst
með 690 hross og í þriðja sæti er
Danmörk með 228. Skiptingu á
milli landa má sjá í töflu 1.
1.2 Helstu útflvtjendur:
Umsvifamestu útflytjendurnir
árið 1997 voru:
Gunnar Amarson.........773 hross
Hinrik Bragason........291 hross
Auðunn Kristjánsson....228 hross
VT hf..................208 hross
Sigurbjöm Bárðarson....169 hross
Eddahestar/Sigurður V. Matthias-
son....................120 hross
1.3 Útflutningur 1998.
Útflutningur það sem af er ári
1998, miðað við 1. nóvember, er
um 1700 hross. Dreifmg hrossanna
á hin ýmsu lönd er sérlega
áhugaverð nú þar sem Svíar taka
forystuna í fyrsta sinn og hafa
eftir Huldu G. Geirsdóttur
markaðs- fulltrúa Félags hrosabænda
þegar þetta er skrifað flutt inn 510
hross, en Þjóðverjar 471, Danir
koma þar næstir með 199 og
Norðmenn með 134. Til Bretlands
hafa farið nú þegar 21 hross sem
em fimm hrossum fleira en á sama
tíma í fyrra og til írlands hafa farið
tvö hross en þar er verið að gera
tilraunir með markaðssetningu
íslenska hestsins. Til Banda-
rikjanna og Kanada hafa farið 132
hross það sem af er ári.
Allt í allt lítur útflutningurinn alls
ekki svo illa út miðað við Qögurra
mánaða útflutningsstopp á árinu. í
raun mun ekki reyna á áhrif
hitasóttarinnar á markaðina fyrr en
á næsta ári þegar reynir á hvort
viðskiptasambönd erlendis, sem
urðu til vegna sóttarinnar, halda
þegar útflutningur frá íslandi er
kominn í fullan gang.
II. Saga-reiðskólinn
2.1 Breytt rekstrarfyrir-
komulag.
Miklar breytingar hafa átt sér
stað á rekstrarfyrirkomulagi Saga-
reiðskólanna. Fulltrúar skólanna
hafa sótt námskeið i svokölluðum
"franchising" rekstri, þ.e. rekstri
fyrirækja í keðjuformi og til að ná
meiri árangri í starfi hefur félags-
skapnum um Saga-reiðskólana
verið breytt í hlutafélag með tak-
markaða ábyrgð (GMBH). Vegna
þessara breytinga þarf að endur-
skoða þátttöku F.hrb. í verk-
efninu.
2.2 Breytt aðild F.hrb. að verk-
efninu.
Eins og fram kemur að ofan hefur
rekstrarform skólanna breyst. í
kjölfar þeirra breytinga ræddi stjóm
félagsins málin og rætt var við
fúlltrúa skólanna i sept. sl. Þar var
sá möguleiki ræddur að félagið
drægi til baka það fé sem það hefúr
lagt í ábyrgðarsjóð og greiddi
deildum sínum til baka. Félagið
yrði þó enn samstarfsaðili Saga-
reiðskólanna á íslandi og sæi um að
Tafia 1: Útflutt
hross 1997
Land: Fjöldi:
Austurríki..............76
Belgía...................9
Kanada.................161
Sviss..................120
Þýskaland..............827
Danmörk................228
Finnland................56
Færeyjar................11
Bretland................25
Luxemborg................2
Noregur................173
Holland.................69
Grænland.................2
Svíþjóð................690
Bandaríkin.............117
Alls:................2.566
FREYR 1/99 - 49