Freyr - 01.01.1999, Side 56
sóttin skall á sótti undirrituð þó
fund hjá Hrossaræktarsamtökum
Eyfirðinga og Þingeyinga og íjall-
aði þar um markaðsmál. Undirrituð
hyggst nú á næstunni bjóða öllum
deildum að koma til fundar og
ijalla sérstaklega um markaðsmál
og möguleika í Bandaríkjunum og
vonandi munu allar deildir nýta sér
þann möguleika og bjóða
félagsmönnum sínum að fræðast
um þennan stóra og spennandi
markað.
6.2 Þjónusta við deildir.
Undirrituð hefur unnið að ýmiss
konar þjónustu við deildir, bæði í
formi upplýsingadreifíngar til
Faxprúður höfdingi
deildanna sem og t.d. aðstoð við
auglýsinga- og bæklingagerð, þýð-
ingar og dreifingu á auglýsingaefni
deildanna.
VII. Veraldar-
vefurinn
7.1 Heimasíða Félags hrossa-
bænda
Eins og samþykkt var á síðasta
aðalfundi hefur verið unnið að gerð
heimasíðu fyrir Félag hrossabænda
á veraldarvefnum. Gengið var til
samninga við fyrirtækið Stak og
munu þeir sjá um síðu félagsins. A
síðunni verður að finna upplýsingar
um félagið, stjóm þess, deildir og
stjórnir þeirra, þjónustu og
starfssemi deilda, fundargerðir allra
funda, lög félagsins, fréttir og
fleira. Einnig geta deildir félagsins
tengt heimasíður sínar við aðalsíðu
félagsins. Stefnt er að því að setja
inn ýmsar áhugaverðar upplýsingar
fyrir útlendinga á síðuna, á ensku,
og síðan verður uppfærð reglulega
þannig að menn hafi áhuga á að
heimsækja hana oftar en einu sinni.
7.2 Upplýsingar um íslenska
hestinn.
Mikill Qöldi heimasíðna er á
netinu um íslenska hestmn, bæði
frá innlendum og erlendum aðilum.
A.m.k. ein deild félagsins hefur
tekið netið í sína þjónustu, en
Skagfirðingar hafa sett upp hesta-
banka á netinu þar sem menn geta
fengið upplýsingar um Hrossa-
ræktarsamband Skagfirðinga, með-
limi þess og hross sem em til sölu á
svæðinu. Þetta er svo sannarlega
gott framtak hjá Skagfirðingum og
rétt að hvetja aðrar deildir til að
huga að heimasíðugerð.
Þeir sem komast inn á vefinn og
hafa áhuga á að finna upplýsingar,
sem í boði eru um íslenska hestinn,
geta farið inn á leitarvélamar og
skrifað t.d. "Icelandic Horse" og
beðið vélina um að leita. Innan
stundar kemur upp listi þar sem
menn geta skoðað ýmsar síður um
íslenska hestinn. Vilji menn finna
íslenskt hrossaræktarbú, sem þeir
vita að er með heimasíðu, er nóg að
slá inn nafn búsins í leitardálkinn.
Yfirleitt ætti slikt að duga til að fá
upp heimasíðu búsins sem og aðrar
síður sem nafn búsins kemur fram
á.
Síðastliðið sumar hafði ég
samband við Alþjóðlega hesta-
safnið í Kentucky í Bandaríkjunum
og sendi þeim gögn um íslenska
hestinn. I kjölfarið hefur hesturinn
verið kynntur á safninu og settur
upp sérstakur kafli um hann á
heimasíðu safnsins þar sem fjallað
er um öll hestakyn.
VIII. Þjónusta
8.1 Þjónustuskrá.
Markaðsfulltrúi hefur séð um að
uppfæra og senda út þjónustuskrá
félagsins þegar fyrirspurnir um
seljendur hrossa berast. Einnig
hefur markaðsfulltrúi dreift skránni
á ferðum sínum erlendis. Allir, sem
áhuga hafa, geta skráð sig í skránna
án endurgjalds. Hægt er að senda
upplýsingar til markaðsfulltrúa í
pósti, á faxi eða í gegnum tölvu-
póst. Senda þarf nafn bús/fyrir-
tækis, nafn aðila sem hafa á
samband við, heimilisfang og
símanúmer og stutta lýsingu á
þeirri þjónustu er búið hefur upp á
að bjóða í sambandi við sölu
hrossa.
8.2 Önnur þjónusta.
Mikill fjöldi fyrirspurna berst
skrifstofu félagsins í viku hverri og
er leitast við að svara þeim öllum
sem best og senda kynningargögn
og upplýsingar þangað sem þess er
óskað.
52- FREYR 1/99