Freyr - 01.01.1999, Page 58
til íslandshestablaða víðsvegar um
heiminn, auk þess sem fyrir-
spurnum erlendra fjölmiðla var
svarað.
Einnig aðstoðaði undirrituð
embættið við þýðingar og gerð
fréttatilkynninga og tók þátt í
smittilraun á vegum embættisins.
10.3 Sóttvarnir í framtíðinni.
Hvaða lærdóm drögum við af
þessu öllu saman? Ljóst er að taka
verður á sóttvamarmálum af mikilli
festu í framtíðinni. Vissulega er
mér ljóst að það verður sífellt
erfiðara að vemda íslenska hestinn
með aukinni umferð erlendra
hestamanna hingað til lands sem og
aukinni ásókn Islendinga til vinnu
er tengist hestum erlendis. Hugsan-
lega hefur þessi veira haft þau áhrif
að ónæmiskerfi íslenska hestsins
Folald fœr sér sopa við Foss á Síðu.
hefur verið vakið upp og verður nú
sterkara en fyrr, þó skal ekkert
fullyrt þar um, enda best að láta
vísindamennina um sín störf. I raun
vomm við heppinn, því að þessi
sjúkdómur reyndist ekki mjög
hættulegur miðað við marga þá
sjúkdóma sem þekkjast í hrossum
erlendis. Nauðsynlegt er að semja
nú þegar aðgerðaáætlun um hvem-
ig bregðast skuli við slíkum sjúk-
dómum og setja þarf kraft í
kynningu til að koma í veg fyrir
innflutning notaðra reiðtygja og
reiðfatnaðar. Félag hrossabænda
þarf að þrýsta á um að slík vinna
fari í gang sem fyrst svo að koma
megi í veg fyrir að annað eins
ástand skapist eins og verið hefúr á
þessu ári. Þrátt fyrir allt ættum við
að hafa lært af þessu ástandi.
Ég vil minna menn á að fara
varlega þegar þeir ferðast erlendis
og em í einhverjum tengslum við
hross eða annað búfé, einnig hvet
ég ykkur til að brýna fyrir erlendum
samstarfsaðilum ykkar að virða þær
reglur sem í gildi era.
XI. Örmerkingar
11.1 Örmerkinganámskeið ofl.
Bændasamtökin hafa nú umsjón
með örmerkingum og þurfa allir
sem vilja örmerkja að ljúka
námskeiði á vegum BI. Alls hafa
um 100 manns útskrifast af slíkum
námskeiðum sl. vor og sumar og til
stendur að halda fleiri. Auk þess
hafa rúmlega 30 dýralæknar tengst
skráningarkerfi BÍ.
Námskeiðin em öllum opin og
sér Ólafur Dýrmundsson hjá BÍ, um
skráningu á námskeiðin og heldur
jafnframt utan um lista yfir þá sem
hafa réttindi til að merkja. Rétt er
að benda á að dýralæknar þurfa líka
að sækja um leyfi í gegnum BÍ eigi
þeir að tengjast skráningu í Feng.
Best er að spyrja dýralækna hvort
þeir hafi leyfi BÍ og sjá hvort þeir
eru með eyðublöð frá BÍ til
útfyllingar. Öðm vísi er ekki hægt
að ábyrgjast að hrossið verði skráð
í Feng að örmerkingu lokinni.
11.2 Tilboð til félaga á merkjum
og tækjum.
Þar sem Pharmaco hefur ein-
göngu viljað afgreiða sín merki til
dýralækna var ekki hægt að leita til
þeirra eftir tilboðum í merki. Þeir
bjóða hins vegar aflestrartæki til
sölu og lesa tæki þeirra bæði kerfin.
Bræðumir Ormsson gerðu félag-
inu tilboð í bæði örmerki og
aflestrartæki og vom þau kynnt
deildarformönnum i júní sl. Félags-
mönnum er bent á að hafa samband
við deildarformenn, vilji þeir fá
upplýsingar um tilboðið. Best er fyrir
deildimar að panta nokkurt magn í
einu, bæði af merkjum og tækjum.
54- FREYR 1/99