Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.07.1999, Qupperneq 4

Freyr - 01.07.1999, Qupperneq 4
Ritstjórnargrein Landbúnaður, óðalserfingi eða olnbogabarn Á þessari öld hafa mál skipast þannig, með hjálp nýrr- ar tækni og þekkingar, að fæðuþörf í iðnríkjum heims hefur verið fullnægt og gott betur. Um þessar mundir er það þannig viðfangsefni stjómvalda í þessum ríkjum að tempra ffamleiðslu matvæla. í stómm heimshlutum, einkum þróunarlöndum, er þó matarskortur sem ekki verður leystur til langframa nema með aukinni matvæla- öflun heima fyrir. Áhrif og völd einstaklinga, fyrirtækja, stétta og stofn- ana í lýðræðisríkjum, eru m.a. háð því hversu mikilvægu hlutverki þau gegna í þjóðfélaginu. Landbúnaður hefur verið á undanhaldi á þessari öld í iðnríkjum heims, æ færra fólk þarf til að framleiða mat, framboð á matvælum umfram eftirspurn hefur veikt stöðu landbúnaðarins, sem og opinber stuðningur við landbúnað, sem tíðkast um all- an hinn iðnvædda heim. Merki þessarar veiku stöðu verða sífellt ljósari; tekjur bænda dragast saman, kynslóðaskipti verða æ erfiðari og byggð í dreifbýli grisjast. Hér er ekki á ferðinni neitt sér- íslenskt fyrirbæri, heldur gerist þetta víða um hinn vest- ræna heim, að því undanskildu að i þéttbýlum löndum grisjast ekki byggð. Fyrir einni öld lifðu tæplega 80% íslensku þjóðarinnar af landbúnaði og bjó i dreifbýli og staða dreifbýlisins var sterk. Nú búa um 8% þjóðarinnar í dreifbýli og staða þess hefur veikst að sama skapi. Þessi breyting kemur skýrt ffam bæði í þjóðfélagsumræðunni og birtist jafhvel í dómum dómstólanna. Er þar skemmst að minnast um- ræðu um yfirráðarétt yfir hálendinu í tengslum lagabreyt- ingar vorið 1998, (breytingar á sveitarstjómarlögum), þar sem því var mótmælt að lögsaga yfir hálendinu félli undir aðliggjandi sveitarfélög, (kölluð tertusneiðaskipting á há- lendinu). Þá má minna á nýlega dóma Hæstaréttar um eignarrétt á jörðum, svo sem heimalands Skjöldólfsstaða á Jökuldal, Hundadals i Dölum og á Geitlandi i Borgar- firði, þar sem þinglýstar landmerkjaskrár frá síðustu öld og þessari hafa ekki verið viðurkenndar sem haldbær sönnun um eignarrétt og vitnað til þess að Landnámubók taki þar ekki af öll tvímæli!! í sjávarútvegi á sér einnig stað þróun sem er óhagstæð hinum fámennari byggðarlögum. Þar hefúr réttur til fisk- veiða verið að flytjast ffá smærri byggðarlögum til hinna stærri í viðskiptum með kvóta og jafnvel að sterk fýrir- tæki á stærri stöðum kaupi hlut í fyrirtæki eða heil fyrir- tæki á smærri stöðum. Enn má nefha þá breyttu kjördæmaskipan, sem verið er að ganga ffá á Alþingi, þar sem dreifbýliskjördæmum er fækkað úr sex í þijú um leið og þau stækka verulega. Kunnugleiki þingmanna á högum og háttum umbjóðenda sinna hlýtur að minnka við þá breytingu. Af þeim þáttum, sem hér hafa verið raktir, er ljóst að landbúnaðurinn er aðeins einn lítill biti i stærra púslu- spili, sem er hin almenna þjóðfélagsþróun, hér á landi og annars staða um hinn vestræna heim. Hún gerist jafnt fyrir það að fólk, sem lætur sig þjóðfélagsmál varða, ráðamenn sem og almenningur, er uggandi i ýmsum efnum yfir henni og margt er gert til að spoma gegn þessari þróun. Stöðugur flutningur fólks til höfuðborgarsvæðisins er t.d áhyggjuefni, annars vegar vegna þess kostnaðar sem þjóðfélagið ber af opinberri þjóðustu hvers konar á nýjum stað, en einnig af því að eftir standa vannýtt verðmæti í opinberum þjón- ustustofnunum sem og íbúðarhúsnæði og atvinnurekstri á stöðum þar sem fólki fækkar. Þá eru ónefnd þau menningarlegu og sögulegu verðmæti sem rýma í gildi ef þeim er ekki haldið vakandi í lifandi umhverfi. Eins og að líkum lætur spyija jafht lærðir sem leikir hvort sú staða sem nú er uppi í þróun byggðar verði var- anleg eða hvort breytinga sé að vænta. Því er að sjálf- sögðu til að svara að fátt er varanlegt í heimi hér og allra síst í atvinnu- og efnahagsmálum. Utlit um fæðuffamboð miðað við eftirspum er allgott næstu 10-15 árin. Búvömframleiðsla víða um heim er um þessar mundir undir afar agaðri stjóm vegna mikils framboðs og lágs verðs og er talið að um tveir þriðju hlutar matvælaffamleiðslunnar lúti þessari al- þjóðlegu stjóm. Eftir um fjögurra áratuga ofiffam- leiðslutíma, þar sem verði á búvömm hefur verið þrýst niður, hafa gæði þeirra minnkað á ýmsa vegu; óhófleg notkun áburðar og jurtvamarefni hefur spillt jarðvegi og uppskeru, hormónanotkun í búfjárrækt er viðhöfð en mætir andspyrnu, erfðabreyttum jurtum var í upphafi tekið fremur jákvætt, en andstaða gegn þeim fer vaxandi. Varasöm notkun hráefna í fóður og óvönd- uð meðferð þess hefúr kallað ffam sjúkdóma svo sem kúariðu og nú síðast díoxínmengun fóðurs í Belgíu og grannríkjum, og hafa ósannfærandi viðbrögð stjómvalda, bæði í Bretlandi og Belgíu, skert tiltrú almennings til þeirra um að allrar varúðar sé gætt. Frh. á bls. 18 4- FREYR 8/99

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.