Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1999, Page 16

Freyr - 01.07.1999, Page 16
Hagstœð þróun r Oðum styttist í aldamótin og því ekki úr vegi að horfa til baka og athuga það sem hefur verið að gerast í veiðimálum. Stórfelld breyting hefur orðið á seinni hluta aldarinnar frá því sem var áður, hvað varðar veiðifyrir- komulag á laxi og göngusilungi og í tekjuöflun vegna þessara hlunn- inda. Þrátt fyrir að stangaveiði hafí hafíst hér á landi eftir miðja sein- ustu öld, fyrst og fremst fyrir til- verknað enskra veiðimanna, sem hingað lögðu leið sína, komst ekki verulegur skriður á þátttöku lands- manna í stangaveiði í ám og vötn- um hér á landi fyrr en eftir heim- styrjöldina seinni, 1939-1945. Stangaveiði Islendinga hefur vaxið stöðugt seinustu 50 ár. Nýlega hélt elsta og öflugasta stangaveiði- félagið, sem nú er starfandi, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, upp á 60 ára afmæli sitt. Félagið telur 2.300 félagsmenn og leigir SVFR um 15 veiðisvæði víðsvegar um land. Það hefur til ráðstöfunar veiðimála eftir r \ Einar Hannesson 1 -/ fulltrúa 6.600 stangaveiðidaga á þessu sumri fyrir lax og silung og er með stærsta stangaveiðipottinn hér á landi. Stangaveiöi ört vaxandi Á þessum seinni aldarhelmingi hefúr stangaveiði því vaxið hröðum skrefúm og nær það til allra þjóðfé- lagshópa sem rekja má m.a. til al- mennra þjóðfélagsbreytinga sem orðið hafa á þessum tíma. Er því nú svo komið að stangaveiðin er sú veiðiaðferð sem beitt er í langflest- um straumvötnum landsins en neta- veiði verið aflögð. Jafnframt komu silungsárnar með sjóbirting og sjó- bleikju til sögunnar sem skemmti- legar stangaveiðiár, þar sem víða var áður stunduð netaveiði og ádráttur, eins og í Vestur- Skafta- fellssýslu. Laxalagnir týna tölunni Seinustu vatnsföllin, þar sem netaveiði á laxi og göngusilungi var viðhöfð í ríkum mæli, eru Hvítársvæðið í Borgarfírði, Ölfusá og Hvítá í Ámessýslu og Þjórsá, en í Þjórsá er eingöngu unnt að veiða lax í net. Netaveiðin fyrir lax í Hvítá í Borgarfírði hefur um margra ára skeið verið keypt upp með sérstökum samningi milli netabænda og bænda við hliðarár Hvítár, sem ráðstafa veiðinni til stangaveiðimanna. Þá hefur veru- lega dregið úr netaveiði á vatna- svæði Ölfusár frá því sem áður var og stangaveiði tekin upp í staðinn. Þá hafa allar sjávarlagnir til lax- veiði verið keyptar upp með frjálsum samingum við eigendur þeirra að frumkvæði Félags um uppkaup laxalagna í sjó, sem nær til Faxaflóasvæðisins, og Norður- Atlantshafslaxasjóðsins, sem Orri Vigfússon, veitir forustu. Þá hefur laxalögn í sjó í Vopnafirði verið tekin upp og lögð til nær- liggjandi ár með sérstökum samn- ingi og fær sjávarveiðijörðin arðs- hlut í tekjum af laxveiðiánni. Er því loksins komið til fullra fram- kvæmda eitt mikilvægasta ákvæði laganna frá 1932 um bann við lax- veiði í sjó. Veiðilöggjöfin lagði grundvöilinn Fullyrða má, að grundvöll þess- arar hagstæðu þróunar megi þakka setningu lax- og silungsveiðilag- anna 1932. Sú félagslega uppbygg- ing með stofnun og starfsemi veiði- félaga, sem veiðilögin gerðu ráð fyrir meðal annars, er tvímælalaust Fossinn Glanni i Norðurá í Borgarfirði. (Ljósm. Einar Hannesson). 16 - FREYR 8/99

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.