Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1999, Side 29

Freyr - 01.07.1999, Side 29
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1999 Samræming fóðurefnagreininga Inngangur Um þessar mundir eru rúmlega 30 ár frá því að skipulagðar efna- greiningar á gróffóðri hófust hér á landi. Það var haustið 1967 þegar Rannsóknastoffiun landbúnaðarins og Búnaðarfélag íslands stóðu fyrir töku heysýna hjá bændum um allt land(4). Síðan tók Rannsóknastofn- unin alfarið við verkefninu. Var þetta unnið að hluta til sem rann- sóknarverkefni næstu fjögur árin, þar sem ýmsum upplýsingum var safnað samhliða efnagreiningun- um. Árin 1971-1972 hóf rannsókn- arstofa hjá Ræktunarfélagi Norður- lands undirbúning að fóðurgildis- mælingum og bauð í framhaldi af því efhagreiningaþjónustu á fóðri<9). Það var svo árið 1975 sem rann- sóknastofa Bændaskólans á Hvann- eyri hóf einnig að veita þessa þjón- ustu(2). Var starfsemi fyrir heyefna- greiningar rekin af þessum aðilum til ársins 1996 þegar Ræktunarfélag Norðurlands (RN) lagði starfsem- ina niður og gerður var samningur við Bændaskólann á Hvanneyri um að þeir yfírtækju rekstur og verk- efhi RN. Það stóð aðeins í eitt ár þar sem ekki urðu frekari efndir á samningnum og Búnaðarsamband Eyjafjarðar (BSE) keypti rekstur og tæki og hefur síðan þjónustað Eyja- fjarðarsvæðið. Á síðasta sumri ákváðu Bændaskólinn á Hvanneyri (HVE) og Rannsóknastofnun land- búnaðarins (RALA) að vinna sam- eiginlega að þessu verkefni. Mælingaaðferðir Það sem mælt hefur verið í hey- sýnum á öllum stofúnum er þurr- efni, meltanleiki (fóðurgildi), pró- tein, og meginsteinefnin; kalsíum, fosfór, magnesíum, kalíum og natr- eftir Tryggva Eiríksson, Rannsókna- stofnun landbún- aðarins og Björn Þorsteinsson, Bænda- skólanum á Hvanneyri búvísindadeild íum, auk sýrustigs í gerjuðu fóðri. Hefur þetta verið óbreytt frá upp- hafi. Til viðbótar þessum föstu hefðbundnu greiningum hafa ýmis fleiri efhi verið mæld, en einungis í sérstökum tilvikum og ekki boðið upp á það í almennri þjónustu. Mjög erfitt er að byggja upp aðferð- ir fyrir marga hluti vegna smæðar þessara stofa. Aðferðaþróun er tímaffek og tæki oft mjög dýr. Því hefur verið tekin sú stefna (á RALA) að taka helst upp nýjar ódýrari aðferðir á þeim greiningum sem helst er óskað eftir. Ekki hafa sömu aðferðir verið notaðar í öllum tilvikum. Hreinar efnafræðilagar úrlausnir byggja þó á sömu grundvallaratriðum sem eiga ekki að valda neinu misræmi. Öðru máli kann að gegna með að- ferðir sem byggja á líffræðilegum grunni eins og geijun. Gott dæmi um það er in vitro meltanleikamæl- ingar. Svipaða sögu er segja með óbeinar mælingar sem byggja á gagnagrunni sem er reiknað út frá, eins og við innrauðar mælingar NIR (Near Infrared Re-flectance Spectroscopy). Þar þarf að gæta vel að öllum hlutum til að gildin verði rétt og ekki verði misræmi. Þessar aðferðir eru sumar ólíkar innbyrðis og byggja á ólíkum for- sendum, en eiga samt að gefa sömu stærðina sem er fóðurgildi reiknað út frá meltanleika. Komið hafa upp Aðferðir sem notaðar hafa verið hér á landi til að mæla meltanleika í gróffóðri: Staður I upphafi Síðari breytingar (ár) Núverandi RALA In vitro“’ In vitro+NIRC’(1990) In vitro+NIR HVE In vitrob) Ensimd) (1979) Ensím RN og BSE Invitro1” Ensím(1979) Ensím a) In vitro: Vambarvökvi (aðferð Tilley og Terry 1963<7)). b) In vitro: Vambarvökvi (aðferð Alexander o.fl. 1968(1), Derek Mundell 1974<3). c) NIR: Innrauð mæling (sjá skýringar Tryggva Eiríkssonar 1990(8). d) Ensím: Sellulasi (byggt á Jones og Hayward 1975(6)). FREYR 8/99 - 29

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.