Freyr - 01.07.1999, Blaðsíða 33
Fyrstu hestaverkfœrin komu á síðustu áratugum 19. aldarinnar.
rannsaka hvort tiltækilegt sé hér á
landi að koma á meiriháttar vatnsveit-
ingum til engjabóta, sérstaklega að
athuga og gera áætlanir um veitingu
Þjórsár yfir Skeið og Flóa.
Kælt skiprúm
Búnaðarþing skorar á stjóm BÍ að
stuðla að því að kostur verði á smjör-
útflutningi í kældu skiprúmi á næstu
árum.
Þingið 1907
Áveitumál
Forseti gat þess að hinn danski
verkfræðingur, Thalbitzer, hefði lofað
kostnaðaráætlun um áveituna á
Skeiðin. Kosin neind í málið: Eiríkur
Briem, Ágúst Helgason og Júlíus
Havsteen.
Afurðasölunefnd
Rætt um markað fyrir landbúnaðar-
afurðir, aðallega fyrir kjöt og ull.
Samþykkt að kjósa nefnd i málið til
að athuga hvort félagið gæti haft bæt-
andi áhrif á þá markaði.
Hraðskreitt kæliskip
Skorað á Alþingi að hlutast tii um
að hraðskreitt skip með kældu rúmi,
fari að minnsta kosti fjórar ferðir á ári
milli Reykjavikur og Leith í mánuð-
unum júlí-október og tvisvar á ári frá
Norðurlandi til Leith.
Lærðir slátrarar
Skorað á stjóm að hlutast til um að
völ sé á góðum slátrurum sem víðast
þar sem kjöt er útflutt, og að sam-
vinna komist á í því að tryggja gæði
vörunnar og samræmi.
Islenskur verslunarerindreki er-
lendis
Skorað á Alþingi að koma þvi til
leiðar að ráðinn verði sem fyrst að
minnsta kosti einn fastur verslunar-
erindreki fyrir ísland til þess sér-
staklega, að greiða fyrir gengi og
sölu islenskra afurða á erlendum
markaði.
Stóru áveitufyrirtækin
„Búnaðarþing skorar á stjóm lands-
ins að undirbúa í samráði við BÍ á-
veituna á Skeiði og Flóa.“
Leiðbeiningar í votheysverkun
Um sætheys- og súrheysverkun
gerir Búnaðarþing þá ályktun að fé-
iagsstjómin feli ráðunautunum að þeir
leiðbeini þeim er þess óska í slíkri
heyverkun á ferðalögum sínum.
Búnaðarþing var síðan
háð annað hvort ár
fyrstu hálfu öldina en
frá 1951 hefur það
komið saman árlega.
Skógrækt og landgræðsla
Fjárlaganefnd Alþingis fer þess á
leit að BI taki að sér skógræktina og
sandgræðsluna en Búnaðarþing telur
BI ekki fært um að svo stöddu að sjá
um skógræktina en býður fram að BÍ
sjái um sandgræðsluna.
Þingið 1909
Kornforðabúr
Rætt er um þörf fyrir komforðabúr.
Ferðir kæliskipa
Afurðasölunefnd leggur til að kom-
ið verði á ferðum skipa með kældu
rúmi á milli íslands og Bretlands til að
geta komið smjöri og nýju kjöti
óskemmdu á markað.
Áskorun um Flóaáveitu
Búnaðarþing treystir því að Alþingi
veiti nauðsynlegt fé til undirbúnings
Flóaáveitunnar. Lagt verði fyrir Al-
þingi 1911 lagafrumvarp um ffarn-
kvæmd verksins.
Þingið 1911
Skipulag búnaðarsambanda og
búfróðir ráðunautar og skylda
hreppabúnaðarfélaga til að vera í
búnaðarsambandi.
Samþykkt að reynt sé að koma á
samvinnusamböndum með öllum
búnaðarfélögum landsins undir yfir-
stjóm BI, um hvemig deildaskipun
búnaðarsambanda skuli vera, tillög
búnaðarfélaganna og styrkir til þeirra.
Að samböndin hafi í þjónustu sinni
búfróða menn er annist mælingu
jarðabóta í félögunum árlega og leið-
beini í jarðrækt, notkun verkfæra,
áburðarhirðing og öðm, er að búnaði
lýtur. Að búnaðarsamböndin velji
búnaðarþingsfulltrúana, og að þau
búnaðarfélög, sem ekki em í neinu
sambandanna njóti eigi jarðabóta-
styrks eftir 1915.
Fundur búfræðinga og kennara
búnaðarskólanna
„Búnaðarþing ályktar að fela stjóm
félagsins að leita umsagnar búnaðar-
sambandanna og landstjómarinnar
um fjárframlag af þeirra hálfu til þess
að starfsmenn sambandanna og kenn-
arar búnaðarskólanna geti ásamt
FREYR 8/99 - 33