Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1999, Síða 39

Freyr - 01.07.1999, Síða 39
frumvarps til laga um áburðar- verksmiðju en bent á nokkur atriði sem þyrfti að laga í frumvarpinu. Súgþurrkun heys Tilmælum var beint til landbún- aðarráðherra að láta, í samráði við Atvinnudeild Háskólans, gera til- raunir með súgþurrkun heys til að skera úr um notagildi aðferðarinn- ar. Beri þessar tilraunir góðan árangur að mati BÍ verði greitt fyrir innflutningi tækja og síðan leið- beint um notkun þeirra. Framhaldsnám í búfræði Stjóm BÍ falið að hlutast til um að rikisstjómin láti svo fljótt sem unnt er heija framhaldskennslu í búfræði í samræmi við tillögur milliþinganefndar Búnaðarþings og tillögur þeirra Steingríms Stein- þórssonar, Péturs Gunnarssonar og Halldórs Pálssonar. Rafvæðing sveitanna Samþykkt áskorun til ríkisstjómar um að hrinda af stað rafvæðingu alls landsins. Framleiðsluráð landbúnaðarins Fjallað um tillögur milliþinga- nefndar Búnaðarþings frá 1943 um stofnun framleiðsluráðs landbúnað- arins. Mælt var með frumvarpi nefndarinnar með nokkmm breyt- ingum og samþykkt að senda það búnaðarsamböndunum til umsagn- ar. Aukaþing í ágúst 1945 Stofnun Stéttarsambands bænda Samþykktur viðauki við lög BÍ um að stofna skyldi deild við það er nefnist Stéttarsamband bænda og átti það að vera „fúlltrúi bænda- stéttarinnar um verðlag og verð- skráningu landbúnaðarvara gagn- vart Alþingi og ríkisstjóm og öðr- um aðilum, sem um þau mál kunna að fjalla.“ Framleiðsluráð landbúnaðarins Farið var yfir umsagnir búnaðar- sambanda um málið og gengið frá frumvarpi til laga um „framleiðslu- ráð landbúnaðarins verðskráningu og verðmiðlun á landbúnaðarvör- um“ og ákveðið að senda það ríkis- stjóm og Alþingi til fyrirgreiðslu. Þar var Stéttarsamband bænda til- greint sem málsvari bændastéttar- innar. Þingiö 1947 Súgþurrkun Stjóm falið að vinna að því að greitt verði svo sem frekast er unnt fyrir innflutningi véla til súgþurrkunar. Æðarvarp Samþykkt að stuðla að því að hlunnindi manna af æðarvarpi varð- veitist og aukist svo sem frekast er kostur og að Olafur Sigurðsson bóndi á Hellulandi yrði fenginn til að leið- beina á því sviði. Lengsta setu á Búnaðarþingi á Egill Jónsson á Seljavöllum, frá 1955 til 1994, að báðum þingum meðtöldum og sat hann 43 þing. Leiðbeiningar um mjaltavélar Stjóm falið að láta athuga hvaða tegundir mjaltavéla hentuðu best og ráðunaut í mjólkurmálum falið að leiðbeina um þær og líta eftir notkun þeirra. Meðferð og hirðing búvéla Heimilað að ráða mann til að veita forstöðu námskeiðum um hirðingu og meðferð búvéla. Þingiö 1949 Innflutningur stórvirkra rækt- unarvéla Skorað á Fjárhagsráð að veita inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir stórvirkum jarðræktarvélum handa þeim ræktunarsamböndum sem enn búa við ónógan vélakost. Raforka til súgþurrkunar Stjóm falið að vinna að því að raf- magnsveitur selji raforku til súgþurrk- unar á hagstæðasta taxta. Rannsóknir á gripahúsum Stjóm falið að láta safna upplýs- ingum um gerð og gæði gripahúsa, sem best hafa reynst. BÍ semji leið- beiningar fyrir bændur um gerð gripahúsa. Hátíðarþingið á Egilsstöðum 1949 Þingið gerði tvær viðamiklar ályktanir, aðra um skógræktarmál, og fer hún hér á eftir; hina um land- búnaðarmálin og stöðu þeirra. Þar er lögð áhersla á öflug heildarsam- tök bænda, að þau séu jafnan í for- ystu í faglegum, sem félagslegum efnum, vinni að alhliða framfomm í búskap og að bættu mannlífi í sveit- um auk þess að standa vörð um kjör bænda. Alyktun um skógræktarmál I ítarlegri ályktun um skógrækt og framtíð hennar segir Bþ. m.a.: „Að skógræktin geti verið mikil- vægur þáttur í ræktunarmálum lands- ins, til jarðvegsvemdar, landgræðslu og skjóls fyrir verðmætan nytjagróður og að takast megi, er tímar liða, að framleiða gagnvið til mikilla hagsbóta og eflingar efnalegs öryggis fyrir landsmenn. Búnaðarþing lítur svo á, að ræktun gagnviðarskóga hér á landi sé mjög merkilegur og þýðingannikill þáttur í hagnýtingu á gróðurskilyrðum lands- ins og að með þeirri starfsemi sé lagð- ur grundvöllur að nýjum atvinnu- rekstri með þjóð vorri. Með tilliti til þessa lýsir Búnaðar- þing yfir stuðningi við skógræktar- starfsemina og vill beita sér fyrir því, að stjórn Búnaðarfélags ís- lands, búnaðarsamböndin og hreppabúnaðarfélögin hafi ávallt náið samstarf við Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag íslands um hverskonar fyrirgreiðslu og stuðn- ing er miðar að eflingu skógræktar- innar.“ FREYR 8/99 - 39

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.