Freyr - 01.12.2001, Qupperneq 8
Sigriður og dótturdótir hennar, Karitas Anja, skoða
kálfana.
Það var með því fyrsta sem
slíkt var gert úti á landi og
tókst mjög vel.
Kvenfélagið, Búnaðarfélagið
og hreppurinn eru aðilar að
þessu byggðasafni og fulltrúar
þeirra sitja í stjórn, en
heimilisfólkið á Burstafelli,
einkum Björg Einarsdóttir,
bamabam Metusalems Metu-
salemssonar, sem stofnaði
safnið, sér nú mest um það.
Þetta hefur verið mjög vel sótt
og fólk komið víðsvegar að,
bæði á Burstafellsdaga og aðra
viðburði.
Það hafa líka margir komið
til að troða upp hjá okkur, bæði
einstaklingar og t.d. kórar og
kórar koma mjög gjarnan þvi
að við sækjum skemmtanir
þeirra svo vel. Heima er auk
þess kór, samkór, með fólk
bæði úr sveitinni og þorpinu.
Stjórnandinn er pólskur en
hann og kona hans kenna við
Tónlistarskólann hjá okkur.
Þau eru rnjög vel látin. Auk
þess er öflugur kirkjukór, sem
organistinn, Kristján Daviðs-
son, stjómar.
Hvernig sérðu fyrir þér Vopna-
fjörð eftir t.d. 20 ár. Er uggur íþér?
Já, ég verð að viðurkenna að það
er uggur í mér. Ef svo heldur fram
sem horfír þá er ég mjög hrædd um
þessa byggð. Bolfískvinnslan hefúr
minnkað mikið og þar með vinnan
í frystihúsinu. Litlu bátunum hefur
fækkað og vinnslan færst út á sjó á
stóm skipunum.
Það má heldur ekki dragast meira
saman í landbúnaði, mjólkursam-
lagið og sláturhúsið þola illa meiri
samdrátt. Við emm svolítið ein-
angruð landfræðilega þó að ég
upplifi mig ekki sem innilokaða.
Það em góðar flugsamgöngur og
þrjár leiðir á landi, og svo á sjó,
sem fæstir nota núorðið, enda eng-
in strandferðaskip eins og áður var.
Hins vegar skreppur maður ekk-
ert í Egilsstaði yfir veturinn. Eg
held því að ein af forsendum fyrir
því að það geti orðið uppgangur hjá
okkur sé að fá jarðgöng undir Hell-
isheiði yfír í Jökulsárhlíð.
Með göngum kæmist á gott sam-
band við Egilsstaði og það mundi
styrkja bæði þessi svæði. Þá væri
hægt að sækja vinnu í Egilsstaði og
öfugt og samskipti við framhalds-
skólana á Egilsstöðum yrðu allt
önnur, t.d. að nemendur gætu kom-
ið heim um helgar. Eg held að það
séu vemlegir möguleikar í ferða-
þjónustu hér á þessu svæði. Vopn-
firðingar þurfa að fara að bretta upp
ermamar og gera eitthvað í því svo
að við sitjum ekki eftir í þróuninni.
Þú hefur komið nálœgt jafnréttis-
málum sveitakvenna?
Já, ég sat í nefnd á vegum
Bændasamtakanna, sem starfaði á
árunum 1998-2000, ásamt Sólrúnu
Ólafsdóttur og Herði Harðarsyni.
Þannig er að konur í sveitum upp-
lifa sig oft sjálfar sem eignalausar
og þetta fínnst sumum körlum
óttalega vitlaust tal og segja
sumir að alveg væri þeim
sama þó að koma þeirra væri
skrifúð fyrir öllu á búinu.
En það er ekki þetta sem
málið snýst um. Það snýst um
það að hjónin bæði eiga jörð
sína saman. I mínu tilfelli
komum við saman í sveitina
og emm skrifúð bæði fyrir
öllu, en í öllum gögnum, sem
varða jörðina, þá kemur bara
annað nafnið, þ.e. nafnið
hans. T.d. með fasteignamatið.
Af hverju er ekki hægt að
segja: 50% eign þessara
tveggja, eða: Sameign þessa
fólks, alveg eins og með
einkahlutafélög? Af hverju er
ekki hægt að hafa eitthvert
kerfí innan landbúnaðarins
sem er ekki endilega einka-
hlutafélag, þar sem báðir eða
allir aðilar koma fram. Þetta
em ekki endilega hjón, heldur
bræður, systkini eða aðrir.
Mér fmnst þama á ferð jafn-
réttismál allra í sveitum og
ekki aðeins kvenna.
Ég hefði viljað að það væri til
sérstök kennitala fyrir hvert bú,
óháð eigendum. Síðan gætu eins
margir og verkast vildi verið skrif-
aðir fyrir því. Landbúnaðarframtal-
ið væri síðan á kennitölu þessa bús.
Þetta er hægt i einkahlutafélagi en
mér finnst að það eigi líka að vera
hægt utan þess, einkahlutafélag er
of stórt batterí fyrir mörg bú.
Lífeyrismálin ?
Já, Haukur Halldórsson, sem sit-
ur í stjóm Lífeyrissjóðs bænda,
kom á fund til okkar í Búnaðarfé-
lagi Vopnaijarðar og útskýrði fyrir
okkur stöðu sjóðsins. Hann gerði
okkur það ljóst að það tæki félaga i
sjóðnum sjö ár að fá til baka það
sem þeir hafa greitt i sjóðinn þegar
þeir fara að fá greiðslur úr honum.
Þá er að vísu ávöxtunin eftir. Þessi
sjóður er ekki sterkari en þetta en
það em að vísu 3-4 ár síðan.
Um 1984-5 var veitt heimild til
8 - FR€VR 12/2001