Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2001, Síða 11

Freyr - 01.12.2001, Síða 11
Gamli bærinn á Bustarfelli I Vopnafirði, nú minjasafn. (Ljósm. Sigurður Blöndal). landsins. Með því móti verður bet- ur unnt að nýta fomleifar á jörðum landsins í uppbyggingu ferðaþjón- ustu, eins og kemur vel fram í nýrri skýrslu samgönguráðuneytis um menningartengda ferðaþjónustu. I umræðu um samstarf þjóð- minjavörslunnar og skógræktar- bænda hefur verið sérlega ánægju- legt að finna áhuga skógarbænda á því að nýta sér fomleifar í landinu í starfi sinu og taka tillit til þeirra í skógræktinni og auka þannig möguleika sína á sviði ferðaþjón- ustu. Náðst hefur góð samstaða um að mikilvægt sé að skrá fomleifar þar sem stendur til að rækta skóg þannig að ekki verði rask á minjun- um við framkvæmdina. Unnið verður að því að móta vinnulag þar um í samstarfi skógarbænda og Fomleifavemdar ríkisins. Sums staðar fer vel á því að rækta skóg í sátt við þær minjar sem varðveittar em á svæðinu en annars staðar er mikilvægt að fara ekki í skógrækt þar sem varðveita ber sögulegt og séríslenskt landslag og ásýnd lands. Þannig þarf að meta sameigin- lega hvar fer best á því að rækta skóg og framkvæma skógræktar- átak markvisst án þess að raska fomleifum. Með slíku samráði á að vera hægt að koma í veg fyrir það enda góður vilji þar um bæði meðal aðila þjóðminjavörslunnar og skóg- arbænda. Til þess að tryggja sem best sam- ráð var ákveðið í sumar sem leið að minjaverðir, sem staðsettir em í hverjum landshluta, verði í form- legu samstarfi við skógræktarráðu- nauta hvers landshluta. Þeim áfanga ber að fagna enda ljóst að það mun efla bæði þjóðminjavörsl- una og skógrækt í landinu. Einnig hafa Þjóðminjasafn íslands og Fomleifavemd ríkisins tekið þátt í námskeiðahaldi um þessi mál fyrir skógarbændur. Þetta mun tryggja árangur bæði í minjavörslu og skógræktinni. Þannig verður unnt að nýta fornleifamar samhliða varðveislunni, m.a. í ferðaþjónustu innan landbúnaðar. Minjagripagerð og skógrækt I starfshópnum hefúr einnig ver- ið rætt um gerð minjagripa og þró- un íslenskra muna í samvinnu þess- ara aðila. Það er mikilvægt að fara í slika þróunarvinnu á vegum menntastofnana, listamanna, bænda, handverksmanna og minja- vörslunnar. Það gæti orðið atvinnu- grein sem safnastarf og landbúnað- ur í landinu hefði hag af. Þjóðminjasafnið gegnir því hlut- verki í íslensku samfélagi að varð- veita, skrá, rannsaka, sýna og kynna íslenskar menningarminjar. Til slíkra minja heyra nánast öll mannanna verk frá fyrri tímum; hlutir, mannvirki, hugverk og jafn- vel trú. Húsasafnið og þáttur bænda í varðveislu handverks Húsasafn Þjóðminjasafnsins er einstakt í heiminum, en þar eru m.a. varðveittir merkustu torfbæir okkar, s.s. Keldur, Glaumbær, Laufás, Grenjaðarstaður og Bustar- fell. Á fyrri hluta 20. aldar tók Þjóðminjasafnið að sér varðveislu húss i fyrsta sinn með friðlýsingu bænhússins á Núpsstað. I húsasafni Þjóðminjasafnsins eru flestir torfbæir landsins og flestar torfkirkjur sem enn eru uppistandandi, auk ýmissa annarra húsa sem talin eru hafa mikið menningarsögulegt gildi og væru glötuð ef safnið hefði ekki tekið þau upp á arma sína. Þjóðminjasafn íslands treystir mjög á gott sam- starf við bændur við varðveislu þessara byggingarsögulegu minja enda góð handverksþekking nauð- synleg í því verkefni. Það ber einn- ig að rækta í menntun bænda enda ljóst að áhersla á slíka handverks- kunnáttu mun eflaust aukast með menningartengdri ferðaþjónustu í landinu. Mikilvægt er að slík ferða- þjónusta byggi á raunverulegum minjum okkar, m.a. torfbæjunum, góðri þekkingu, vönduðu hand- verki og virðingu fyrir sögu okkar og menningu. Framhald á bls. 13 FR€VR 12/2001 - 11

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.