Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2004, Qupperneq 15

Freyr - 01.09.2004, Qupperneq 15
Frjósemi ánna 2003 O Fædd ■ Nytja Mynd 2. Fjöldi fæddra lamba og til nytja að hausti 2003 í einstökum hér- uðum. vorið 2003 urðu ekki breytingar þar á. í því sambandi er samt rétt að taka tillit til þeirrar miklu aukningar sem orðið hefur í þátt- töku í skýrsluhaldinu á allra síð- ustu árum vegna þess að frjósemi og afurðasemi ánna á þeim búum sem eru að heija skýrsluhald stendur að meðaltali nokkuð að baki því sem gerist á þeim búum sem lengi hafa færst vandað skýrsluhald. Vorið 2003 voru fædd lömb eftir hverja á, sem lif- andi var á sauðburði, að jafnaði 1,81 (1,81) eða nákvæmlega jafnt og árið áður en lambahöld ívíð skárri því að einu lambi fleira kom til nytja að hausti eða 1,67 (1,66) lömb að jafnaði. Nánari sundurliðun á frjósemi ánna sýnir að 7.135 þeirra eða 3,08% voru geldar, 41.910 áttu eitt lamb eða 18,11%, 169.877 ær voru tvílembdar eða 73,40%, 12.092 voru þrílembdar eða 5,22% og 436 ær eða 0,19% þeirra sem lifandi voru á sauðburði áttu fleiri en þijú lömb. Þegar þessar tölur eru bom- ar saman við hliðstæðar tölur frá vorinu áður sést að frjósemin er ívíð meiri vorið 2003 en vorið 2002 því að geldum ám og ein- lembum fækkar örlítið hlutfalls- lega en tvílembum og marglemb- um fjölgar smávegis hlutfallslega. Likt og áður er verulegur breyti- leiki í frjósemi ánna eftir land- svæðum. Eins og árið áður var frjósemi ánna hvergi meiri vorið 2003 en í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem fædd vom að meðaltal- i 1,88 lömb eftir ána og 1,75 feng- ust til nytja og er frjósemi ánna þar því ívíð meiri en var árið áður þar í héraði. í Austur-Skaftafellssýslu em fædd næstflest lömb eftir ána vorið 2003 eða 1,87 að meðaltali og 1,72 koma til nytja að hausti. 1 Strandasýslu fást jafnmörg lömb til nytja að hausti þó að fædd lömb séu heldur færri eða 1,83 að jafn- aði. Æmar í Vestur-Húnavatns- sýslu fæddu jafnmörg lömb að vori og í Strandasýslu en lambinu færra fékkst til nytja að hausti. I Norður-Þingeyjarsýslu og Eyja- firði er fijósemi ánna meiri því að í báðum þessum sýslum fæðast 1,84 lömb eftir ána en lambahöld em þar lakari og fást 1,70 til nytja í Eyjafírði og lambinu færra í Norður-Þingeyjarsýslu. Líkt og gert var í hliðstæðri grein á síðasta ári er ástæða til að benda á það að þegar litið er til þróunar í frjósemi ánna í fjárrækt- arfélögunum á síðustu ámm er það atriði sem líklega vekur mesta athygli hve feikilega mikill munur virðist á milli búa í meðalfrjósemi tvævetlnanna og eldri ánna á bú- inu. Eðlilegt er að tvævetlurnar sýni heldur minni frjósemi en eldri æmar og eðlilegt að sá mun- ur geti numið 0,10-0,15 fæddum lömbum eftir ána að jafnaði. Þeg- ar þessi munur er hins vegar orð- inn 0,25 lömb eða meira eftir ána er orðin veruleg ástæða til að velta fyrir sér hvaða brestir séu í fóðran eða meðferð yngstu ánna eða hvort ræktun með tilliti til frjó- semi sé ekki lengur á réttri braut. Þó að umtalsverðu munur sé á frjósemi ánna milli héraða er hann enn meiri þegar skoðaður er mun- ur á milli félaga eins og tafla 1 sýnir glöggt. í nokkmm félögum Hlutfall fleirlembdra áa 2003 Mynd 3. Hlutfall af marglembum í fjárræktarfélögunum vorið 2003 flokkað eftir héruðum. Freyr 6/2004 - 151
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.