Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 53
Burðartími 20. maí * Burðartími 20. apríl
Sláturdagur
2. mynd. Áhrif burðartíma og sláturtíma á verðmæti falls af hrútlömbum með
miðlungs vaxtarhraða og góða flokkun, sjá nánari skýringar i texta.
tegund lamba sem langhelst eru
líkur á að henti til slátrunar í nóv-
ember og desember að undan-
genginni vel heppnaðri haustböt-
un.
Ahrif burðartima. A 2. mynd er
leitast við að greina áhrif burðar-
tíma á hagkvæmni mismunandi
sláturtíma, einkum með tilliti til
sumarslátrunar. Neðri línan sýnir
aftur áhrif sláturtíma á verðmæti
hrútlambsins á 1. mynd sem hafði
góða flokkun, var fæddur 20. maí
og hafði það sem við kölluðum
þar miðlungs vaxtarhraða. Efri
línan sýnir áhrif sláturtima á
verðmæti hrútlambs sem hefur
sambærilegan vaxtarhraða og
flokkun en er fætt mánuði fyrr,
eða 20. apríl. Um mánaðamótin
júlí- ágúst er fallþungi þessara
misgömlu lamba 10,0 og 13,5 kg,
27. ágúst er hann 12,8 og 16,4 kg
og 1. okt er fallþunginn 15,7 og
19,3 kg. Eins og áður sagði er
flokkun þessara lamba sambæri-
leg að jöfnum fallþunga, en með
auknum fallþunga hækka bæði
gerðar- og fitutölur og það gerist
því fyrr hjá því lambi sem fyrr
fæðist. Snemmfædda lambið
lækkar heldur í verðmæti frá
fyrrihluta ágúst fram að hefð-
bundinni sláturtíð, tosast svo ör-
lítið upp með auknum fallþunga
en er þó ívið verðminna 15. okt-
óber en það var í byrjun, þó að
það hafi bætt við sig 5,8 kg í fall-
þunga. Seinna fædda lambið
hækkar hins vegar rólega en
nokkuð ákveðið í verði allan tím-
ann, þar sem aukinn fallþungi
gerir betur en að vega upp lækk-
andi meðalverð, þar sem fitusöfn-
un er ekki enn farin að hafa mikil
áhrif.
Ahrif vaxtarhraða. A 3. mynd
er svo leitast við að greina áhrif
vaxtarhraða á hagkvæmni sumar-
slátrunar. Enn er um að ræða tvö
hrútlömb með góða flokkun, núna
bæði fædd 20. apríl. Munurinn á
þeim er hins vegar sá að annað er
með það sem við höfum kallað
miðlungsvaxtarhraða, þ.e. 300
g/dag til júlíloka, þá um 250 g/dag
til ágústloka, svo um 200 g/dag á
kjamgóðri haustbeit; en hitt er
með það sem við skulum kalla
hraðan vöxt, eða 350 g/dag til júlí-
loka, þá 300 g/dag til ágústloka en
svo slær það af niður í 150 g/dag
þar sem það er einmitt búið að
taka út mjög mikinn vöxt þegar
þar er komið sögu. Um mánaða-
mót júlí-ágúst er lambið með
miðlungsvaxtarhraðann með 13,5
kg fall en hraðvaxta lambið með
15,5 kg fall; sambærilegar tölur
27. ágúst eru 16,4 og 18,9 kg og I.
okt 19,3 og 21,3 kg.
Eins og 3. mynd sýnir þýðir
aukinn vaxtarhraði að jákvæð
áhrif sumarslátrunar á verðmæti
fallsins verða mjög afgerandi og
augljóst tap af því að draga slátr-
un fram yfir miðjan ágúst, hvað þá
lengur.
Samantekt
Hér hafa verið kynnt dæmi um
áhrif ýmissa þátta á verðmæti
dilkafalla, að teknu tilliti til af-
urðaverðs og allra greiðslna til
Framhald á bls. 59
—♦— Miölungsvöxtur —Hraður vöxtur
Sláturdagur
3. mynd. Áhrif sláturtima og vaxtarhraða á verðmæti falls af snemmbornum
hrútlömbum með góða flokkun, sjá nánari skýringar í texta.
Freyr 6/2004 - 53 |