Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.2002, Side 8

Freyr - 01.01.2002, Side 8
Elðfaxl-net, gluggl at helml íslandshestslns Viðtal við Ólaf H. Einarsson hrossaræktanda á Hvoli í Ölfusi AHvoli í Ölfusi er rekið myndarlegt og framsækið hrossaræktarbú. Þar búa hjónin Margrét S. Stefáns- dóttir og Ólafur H. Einarsson, ásamt börnum sínum, Mörtu Rut og Oddi. Auk þess að reka þetta glæsilega hrossaræktarbú er Ólafur formaður Félags tamningamanna. Tíðindamaður Freys heimsótti Ólaf sl. haust og hann var fyrst spurður hvaðan hann væri og hvernig það hefði atvikast að hann gerðist einn umsvifamesti hrossaræktandi á landinu? „Ég er fæddur í Reykjavík og uppalinn þar að mestu leyti en var þó alltaf í sveit á sumrin, austur í Mörtungu á Síðu í Vest- ur-Skaftafellssýslu. I sveitinni umgekkst ég hross allmikið, þar voru þau notuð við smala- mennskur, eftirlit með fénu og fólk stundaði útreiðar sér til skemmtunar. I Mörtungu bjuggu þeir í félagi bræðurnir Oddur og Steingrímur Skúlasynir. Stein- grímur var mikill áhugamaður um hross og brúkaði þau mikið, ég var svo lánsamur að fá að dingla með Steina og þar með var hestabakterían fengin. Það var síðan til að auka enn áhugann að fóstri minn, Þorvaldur Þorvalds- son, er mikill áhugamaður um hross og sem bam og unglingur stundaði ég hestamennsku með honum. Hestaáhuginn minnkaði ekki með árunum og fyrsta hest- húsið mitt byggði ég með þeim bræðrum Erni og Benedikt Karls- sonum, á félagssvæði Andvara í Garðabæ. Við Örn höfðum áhuga á hrossarækt og til að bæta að- stöðu okkar til hestahalds keypt- um við árið 1989 jörðina Eystri- Hól í Vestur-Landeyjum, í félagi við Arna Þorkelsson. A Þessum árum vann ég ekki meðvitað eða markvisst að því leggja fyrir mig,að hestamennsku, það ein- faldlega gerðist þannig. Ég vann hjá Stjómunarfélagi íslands við kennslu á hinum ýmsu tölvu- námskeiðum og hestamennskuna stundaði ég svo í frítímum. Örn hafði frétt það að Ingólfshvoll í Ölfusi væri til sölu, í einni af ferðum okkar í Landeyjamar komum við þar við og skoðuðum jörðina og enduðum á því að kaupa hana, það var árið 1991. Þegar við keyptum Ingólfshvol var ætlunin að stunda vinnu í þéttbýlinu, en geta samt notið sveitasælunnar og haft góða að- stöðu fyrir áhugamálið, hesta- mennsku. Á Ingólfshvoli var tví- býli og bjuggum við Margrét þar á móti Björgu Ólafsdóttur og Emi í ein fimm ár, til ársins 1996 þegar við keyptum Hvol sem er í næsta nágrenni. Síðan við keypt- um Hvol hefur hestamennskan verið atvinna mín, Margrét er á kafi í tónlistinni en stundar útreiðar eins og tíminn leyfir.” Erlent fjármagn í HROSSARÆKTINA - Eru tamningar aðalstarf ykkar hér? „Á Hvoli stundum við nokkuð hefðbundinn hestabúskap sem felst í hrossarækt, hestasölu, upp- eldi og reiðkennslu. Þá er þjón- usta við erlenda hrossaræktendur Hrossaræktunarbúið að Hvoli í Ölfusi. (Ljósmyndir tók S.dór). | 4-Freyr 1/2002

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.