Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.2002, Side 10

Freyr - 01.01.2002, Side 10
og reiðmennsku nú á fáum árum fyrir tilverknað námsins á Hól- um. Það að hestamennskan skuli nú eiga skilgreint nám í íslensku menntakerfi og að hestamennsk- an sé þar með valkostur fyrir ungt fólk, þegar það velur sér framtíðarstarf, er dýrmætt. Það að vel takist til að þróa námið og byggja upp gott samstarf skóla- kerfisins við fagfélagið er þar lykillinn. Að námi loknu eru at- vinnumöguleikar góðir, það vant- ar fleiri góða og vel menntaða tamningamenn og reiðkennara. Mín skoðun er sú að ef félags- kerfi hestamennskunnar stendur sig vel í því að ryðja brautina, halda uppi öflugu ímyndar- og markaðsstarfi, og ef menntakerfið stendur sig í því að færa okkur hæft fólk til starfa sé framtíðin björt. Félagar í FT, fagfólkið í tamningum, reiðmennsku, og reiðkennslu gegnir síðan lykil- hlutverki í öflun markaða fyrir hestinn og því hvemig fara á með hann.” Góð og vel tamin hross eru GÓÐ MARKAÐSVARA - Er mikið um góða tamninga- menn í dag ? „Já, það em margir góðir tamn- ingamenn til og þeim fjölgar jafnt og þétt. Tíu til tuttugu manns ljúka námi í tamningum á hverju ári. Hluti þessa fólks stefnir ákveðið á atvinnumennsku en aðrir hafa það að markmiði að verða betri hestamenn og hafa hestamennskuna sem áhugamál. Góðir tamningamenn eiga greiða leið í vinnu.” -Hefur markaðurinn fyrir ís- lenska hesta verið að breytast? „Já, hann hefur breyst. Markaðurinn biður almennt um meira tamin hross en áður og þau verða að vera vel tamin og þæg. Verð fyrir slrk hross er sæmilegt, en góð kynbótahross halda uppi verðinu. Sumir hafa haft efa- semdir um að aukin vinna við tamninguna skili sér í verðinu, mín reynsla er sú að við getum verið á ágætu kaupi við að gefa hrossunum góðan tíma og vanda tamninguna. ÍSLENSKI REIÐSKÓLINN íslenski reiðskólinn á Ingólfs- hvoli er einkarekinn skóli. Hann hefur núfengið viðurkenningu. Telur þú að rétt hafi verið að veita honum kennsluleyfi? „Það er rétt að skólinn hefur sóst eftir viðurkenningu Félags tamningamanna á því námi sem þar fer fram. Óskað hefur verið eftir því að nemendur, sem ljúka tamninganámi frá skólanum, fái inngöngu í Félag tamningamanna eins og nemendur frá Hólaskóla. Það leyfi hefur skólinn á Ingólfs- hvoli nú fengið. Þau skilyrði sem Félag tamningamanna setur menntastofnunum, til þess að veita nemendum viðurkenningu, er að námsskráin fái samþykki FT, menntamálaráðuneytisins og Búfræðsluráðs. Þessi leyfi eru þegar fengin fyrir skólann á Ingólfshvoli og í vinnslu er sam- starfssamningur skólans og FT.” Ættu ekki að SAMEINAST - Sameiningarmál eru umrædd hjá hestamönnum, þ.e. sameining Félags hrossabænda og Lands- sambands hestamannafélaga. Er það álitlegur kostur að þínu mati? „Umræðan um sameiningu Fé- lags hrossabænda og Landssam- bands hestamannafélaga hefur verið áberandi að undanförnu, Kristinn Guðnason, formaður FH, hefur lýst þeirri skoðun sinni að sameining sé ekki að hans skapi en Jón Albert, formaður LH, vill sameina. Umræðan um sameiningu eða samstarf félaga- samtaka hestamennskunnar fór fyrir alvöru af stað þegar Ataks- verkefnið var stofnað. Þrjú af þeim fjórum félögum, sem að Átaksverkefninu standa, þ.e. FH, FT og LH hafa nú sameinast um rekstur skrifstofu. Þessi samvinna félaganna þjappar þeim saman og er af hinu góða. Ég tel að FH og LH eigi ekki að sameinast. LH er fulltrúi hestamennskunnar innan íþrótta- hreyfingarinnar og mér finnst hlutverk þess vera að vinna að framgangi hestamennskunnar sem almenningsíþróttar. Félag hrossabænda er búgreinafélag sem er aðili að Bændasamtökum íslands. FH ber að vinna að fram- gangi hrossaræktar og standa fyr- ir ímyndar- og markaðsstarfi. FT er fagfélag, félagsskapur fagfólks sem stundar tamningar og reið- kennslu. Hlutverk FT er að stuðla að bættri meðferð og tamningu íslenska hestsins og standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna. Ég sé fyrir mér aukið samstarf Félags hrossabænda og Félags tamningamanna. Það stendur þes- sum félögum næst að bera hitann og þungann af öflugu ímyndar- og markaðsstarfi. Samkeppnis- umhverfið, hrossaræktendur, tamningamenn og reiðkennarar, sem hafa af hestamennskunni lifibrauð, þurfa á því að halda að brautin sé rudd þannig að mark- aðurinn taki við því sem þeir hafa fram að færa. FH og FT eru hagsmunafélög þeirra sem lifa af hestamennskunni og hrossabænd- ur framtíðarinnar eru vel mennt- aðir tamningamenn og reiðkenn- arar.” Landsmót annað hvert ár - Landsmótin voru haldin á fjögurra árafresti en nú eru þau haldin annað hvert ár. Voru rök fyrir fjölgun Landsmótanna ? „Alveg tvímælalaust. Það er | 6-Freyr 1/2002

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.