Freyr - 01.01.2002, Blaðsíða 17
Heimsmeistaramót
í HESTAÍÞRÓTTUM
Hápunktur hestamótahalds var
heimsmeistaramótið í hestaíþrótt-
um sem var haldið í Stadl Paura í
Austurríki. íslendingar sendu
öfluga sveit sem stóð undir þeim
væntingum sem til hennar voru
gerðar. Fjórum heimsmeistaratitl-
um var landað auk annarra verð-
launa sem einnig teljast með.
Hér er tekinn saman árangur
knapa og hesta í helstu keppnis-
greinum í forkeppni og úrslitum
á stærstu félags- og stórmótunum
á Islandi á árinu 2000. Að þessu
sinni er sleppt nokkrum kapp-
reiðagreinum vegna þess að þátt-
taka var ekki nógu almenn til að
hægt væri að ná nægum fjölda til
samanburðar. Einungis var tekinn
með árangur á mótum á Islandi.
Ómögulegt er að elta uppi árang-
ur íslenskra knapa á erlendri
grund. Islenskir knapar fara víða
og sífellt heyrast afrekssögur af
þeim í útlöndum, en ekki er
mögulegt ennþá að taka árangur
þeirra með. Sem fyrr er tekið
fram frá hvaða félagi gæðingar í
A- og B-flokki eru en annars
hvert er félag knapans.
Til að fá upplýsingar um úrslit
móta í sumar var leitað til for-
manna stærstu hestamannafélag-
anna á Islandi og einstaklinga
sem höfðu upplýsingamar undir
höndum. Nauðsynlegt reyndist að
kanna upplýsingar frá tæplega
eitt hundrað hestamótum og
komust afrek tuttugu og átta
hestamóta á lista. Hross dæmdust
mismunandi vel á mótum. Það er
eðlilegt að knapar og hross nái
góðum árangri á Islandsmóti og
öðmm stórmótum. Margir góðir
hestar á sama móti auka keppn-
ina og knapar og hestar leggja sig
fram og árangur batnar. Þannig er
það í öðmm íþróttum og hið
sama gildir um hestaíþróttir af
öllu tagi.
Knapi var Páll B. Pálsson. Eink-
unnin var 9,28 og dugði þó ekki
til sigurs á mótinu því að eink-
unnina fékk Sif í forkeppni en í
úrslitum náðu Skafl frá Norður-
Hvammi og Sigurður Sigurðar-
son 9,13 og sigmðu á mótinu.
Einkunnin 9,28 er ein hæsta
einkunn sem hross hefur fengið í
A-flokks keppni. Súla frá Bjarna-
stöðum og Hugrún Jóhannsdóttir
náðu 9,01 á Murneyri. Súla var
keppnishross á Heimsmeistara-
mótinu í Austurríki og keppir því
ekki oftar á Islandi. Einkunnir A-
flokks hesta liggja töluvert hærra
en í fyrra. Þá var hestur með tut-
tugustu hæstu einkunnina 8,66 en
nú 8,79. Frekar er ólíklegt að A-
flokks hestar hafi batnað þetta
mikið milli ára, en búast má við
enn hærri einkunnum á lands-
mótsárinu 2002.
B-flokkur gæðinga
Einkunnir B-flokks hesta vom
á svipuðu róli og í fyrra, en hafa
hækkað töluvert frá árinu 1998.
Stóðhesturinn Kjarkur frá Egils-
staðabæ fékk hæstu einkunnina á
Kóngur frá Mið-Grund og Sigurbjörn Bárðarson á íslandsmóti 2001.
Kjarkur frá Egilsstaðabæ og Sig-
urður V. Matthíasson á gæðinga-
keppni Fáks 2001.
A-flokkur gæðinga
Fyrstu verðlauna hryssan Sif
frá Flugumýri fékk hæstu eink-
unn í A-flokki í sumar á Fáka-
flugi 2001 á Vindheimamelum.
Freyr 1/2002-13 |