Freyr - 01.01.2002, Síða 18
Valíant frá Heggsstöðum og Hafliði Halldórsson íslandsmóti 2001.
opnu gæðingamóti Fáks 9,18 og
var knapi Sigurður V. Matthías-
son. Þeir félagar kepptu ekki
mikið í sumar en búast má við
þeim bíspertum á keppnisvöllun-
um á landsmótsárinu 2002.
Hestar, sem Sigurður Sigurðar-
son, sýndi fengu oft góðar
einkunnir í sumar. Sigurður var
með marga stórgóða gæðinga í
klofinu og er með hesta í 2. og 3
sæti yfir þá hæst dæmdu í B-
flokki. Fífa frá Brún fékk 9,13 á
Fákaflugi 2001 og Númi frá
Miðsitju 9,07 á Fákaflugi 2001.
Tölt
Tölteinkunnir voru töluvert
lægri á árinu 2001 en árið 2000.
Einkunnir lágu á bilinu 7,88-9,08
fyrir tuttugu hæst dæmdu knap-
ana árið 2000 en á bilinu 7,65-
8,28 á árinu 2001. 16 knapar
fengu hærri einkunn en 8,00 á ár-
inu 2000 en einungis 6 á árinu
2001. Einkennilegt þegar tekið er
tillit til þess að einkunnir í fjór-
gangi hækkuðu milli ára og eins
hitt að B-flokks gæðingar, sem
mörgum hverjum er rennt í tölt,
halda sínum einkunnum milli ára.
Þeir félagar Sigurbjörn Bárðar-
son með Kóng frá Mið-Grund og
Hafliði Halldórsson með Valíant
fengu báðir einkunnina 8,28 á ár-
inu. Hafliði var krýndur heims-
meistari í tölti á Valíant og sést
því ekki oftar á keppnisvöllum á
íslandi, en Kóngur er framtíðar-
hestur hjá Sigurbirni og mjög lík-
legur heimsmeistarakandídat.
Slaktaumatölt
Slaktaumatölt hefur hægt og
sígandi náð vinsældum á íslandi.
Einkunnir hækkuðu töluvert milli
ára úr 6,37-7,65 fyrir árið 2000 í
6,53-8,03 fyrirárið 2001.
Sigurbjörn Bárðarson er með
hæstu einkunn ársins á Hirti frá
Hjarðarhaga með 8,03 og svo
aftur í þriðja sæti með Húna frá
Torfunesi með 7,67 en Sveinn
Ragnarsson landsliðsknapi fékk
7,90 á Brynjari frá Argerði og er
með næst hæstu einkunnina.
Fjórgangur
Fjórgangurinn skilaði sér vel
og hækkuðu einkunnir nokkuð
frá árinu á undan. Einkunnir lágu
á bilinu 7,03-7,66 á árinu 2000
en 7,14-7,85 á árinu 2001.
Hæstu dæmdu hestarnir þrír
eru enn á landinu og munu ef-
laust koma fram á stórmótum á
næstu árum. Berglind Ragnars-
dóttir og Bassi frá Möðruvöllum
fengu hæstu einkunnina 7,85 á
íslandsmótinu í Mosfellsbæ og
Bassi frá Möðruvöllum og Berglind Ragnarsdóttir á íslandsmóti 2001.
| 14-Freyr 1/2002