Freyr - 01.01.2002, Síða 29
4. tafla Dreifing einkunna á árinu 2001
Einkunn 5,0 5,5 6,0 6,5 7,0 7,5 8,0 8,5 9,0 9,5 10 Mtal SD
Höfuð 0 0 2 40 241 406 395 118 24 0 0 7,65 0,53
Háls,he,bó 0 0 0 1 40 286 627 244 28 0 0 7,97 0,41
Bak og lend 0 0 2 31 202 328 441 153 66 3 0 7,78 0,58
Samræmi 0 0 3 14 137 383 514 154 21 0 0 7,79 0,48
Fótagerð 0 0 2 31 178 405 396 160 47 7 0 7,76 0,56
Réttleiki 0 0 7 56 284 406 368 87 16 2 0 7,57 0,54
Hófar 0 0 8 22 129 280 477 246 58 5 1 7,90 0,57
Prúðleiki 1 1 47 144 254 285 304 129 46 10 5 7,53 0,76
Tölt 1 1 8 29 84 237 436 198 52 3 0 7,89 0,58
Hægt tölt 23 1 26 46 189 293 342 109 18 2 0 7,57 0,72
Brokk 11 14 38 74 190 266 278 147 28 3 0 7,55 0,77
Skeið 330 46 93 99 102 124 122 98 34 1 0 6,55 1,33
Stökk 1 0 3 24 131 257 375 194 60 4 0 7,87 0,59
Vilii oa qeð 0 0 0 3 25 154 471 332 56 8 0 8,12 0,45
Fegurð í reið 0 0 0 7 80 269 452 209 32 0 0 7,92 0,48
Fet 0 18 59 90 209 264 247 119 38 5 0 7,49 0,78
á Kaldármelum þar sem fram
komu fá en frambærileg kynbóta-
hross. Annar stóratburður ársins
var síðan auðvitað Heimsleikar í
Austurríki en þangað sendum við
fullskipað lið kynbótahrossa
landi og þjóð til sóma að venju.
Starfsmenn
Segja má að mikill stöðugleiki
sé í starfsmannahaldi við kyn-
bótasýningarnar en þar var í ár að
stærstum hluta sami hópur á ferð-
inni og nú um árabil. Allir sömu
kynbótadómarar og á síðasta ári
voru við störf en í 3. töflu er listi
yfir það fólk sem mest mæddi á
við kynbótasýningarnar á árinu.
Nú vill svo til að allstór hópur
af nýju fólki hefur sýnt því áhuga
að starfa að kynbótasýningunum.
Um er að ræða kandídata frá
Hvanneyri sem flestir hafa reið-
skólamenntunina frá Hólum að
auki. Þörfin fyrir hæft fólk er að
sjálfsögðu ávallt fyrir hendi en
samt sem áður þarf að miða við
að starfandi kynbótadómarar séu
ekki fleiri en svo að þeir nái hver
og einn mikilli þjálfun (dæmi
mörg hross). A haustmánuðum
var því haldið mjög yfirgripsmik-
ið námskeið með margslungnu
færnisprófi þar sem þátt tóku alls
9 kandítdatar, sumir hverjir sér til
upprifjunar en aðrir til að sanna
sig, með það að markmiði að
koma til starfa sem dómarar á
næsta ári. Reiknað er með að úr
þessum hópi geti komið inn 2-4
nýir dómarar.
Niðurstöður
Meðaltöl og dreifíng einkunna
Nú eru liðin tvo ár síðan farið
var að vinna eftir breyttu ræktun-
artakmarki en svo virðist vera að
sú breyting hafi almennt gengið
nokkuð vel fyrir sig. Mikilvægt
er að stöðugleiki sé í dómkerfi
sem þessu þó svo að menn þurfi
ávallt að vera vakandi fyrir end-
urbótum að sjálfsögðu. Nokkuð
bar á því í fyrra að einkunnir
væru í hærri kanti miðað við
seinni ár. Það átti sér að ein-
hverju leyti skýringar í mjög
góðum og vel undirbúnum hross-
um og eitthvað breyttum vinnu-
brögðum en einnig var ljóst að
hinn nýji eiginleiki vilji og geðs-
lag Iá hærra að meðaltali en reik-
na mátti með. í 4. töflu gefur að
líta meðaltöl og dreifingu eink-
unna fyrir einstaka eiginleika á
árinu 2001. Þar er einnig yfirlit
um hversu oft hver einkunn er
gefin fyrir hvern eiginleika fyrir
árið í heild. Þar kemur í ljós að
meðaltal fyrir vilja og geðslag er
lægra en í fyrra (var þá 8,20) en
með sömu dreifingu. Að öðru
leyti má segja að meðaltölin séu
örlítið lægri almennt fyrir eigin-
leikana í ár en árið 2000 en dreif-
ing svipuð. Ekki verður gert
meira úr þessum samanburði
milli ára hér en bent á hin raun-
verulegu áraáhrif sem koma fram
við útreikning kynbótamatsins og
er greint frá í grein hér í blaðinu
um nýtt kynbótamat. Samanburð-
ur hrárra meðaltala er nefnilega
takmarkaður að því leyti að þar
er ekki tekið tillit til þeirra breyt-
inga sem eru vegna erfðaframfara
í stofninum eða mismun í eðlis-
gæðum þess hóps hrossa sem
fram kemur á ári hverju. Mjög
vel gengur að stiga hina nýju eig-
inleika, fet, hægt tölt og prúð-
leika, en þar er meðaltalið á
miðju skalans (7,5) og einkunn-
imar nálægt því að vera fullkom-
lega normaldreifðar.
Efstu hross
f EINSTAKLINGSSÝNINGUM
YFIR LANDIÐ ÁRIÐ 2001
Á árinu komu fram margir-
spennandi gripir í einstaklings-
sýningum og virðist ekkert lát
Freyr 1/2002-25 |