Freyr - 01.01.2002, Síða 35
hrossaræktarinnar www.world-
fengur.com.
Skýringar við töflur
Flokkun hrossa í töflur fylgir
svipuðu sniði og nú um langt
skeið en í töflunum birtast ein-
ungis þau hross sem tilheyra
besta hluta hrossastofnsins, metið
á mælistiku kynbótafræðanna. Þó
er rétt að geta þess að í töflumar
koma einungis hross sem hafa
sjálf kynbótadóm en hins vegar
geta verið þama hross sem flutt
hafa verið úr landi eða em fallin.
í 1. töflu koma stóðhestar sem
eiga flest dæmd afkvæmi en það
eru þeir hestar sem eiga mögu-
leika á að ná æðsta verðlaunastigi
eða heiðursverðlaunum fyrir af-
kvæmi. I 2. töflu eru síðan þeir
hestar, sem eiga nægan afkvæma-
fjölda til að koma til álita til 1.
verðlauna fyrir afkvæmi, en um
nánari skilgreiningu þess verð-
launastigs er bent á reglur um
verðlaunastig afkvæmahrossa hér
á vefnum. I 3. töflu em síðan
ungu óreyndu stóðhestarnir (og
einhverjir geltir hestar einnig).
Efstu hryssumar eru í 4. töflu en
þar er á sama hátt og fyrir stóð-
hestana að finna þær hryssur sem
hafa möguleika til að ná æðsta
verðlaunastigi fyrir afkvæmi.
Merkt er sérstaklega við þær
hryssur sem ná heiðursverðlaun-
um. Síðan er að finna töflur með
efstu hestum og hryssum í hverj-
um eiginleika fyrir sig.
Einstök atriði í töflum
Fœðingamúmer eru tíu stafa;
fyrstu fjórir stafimir em fæðin-
garárið, stafur fimm er lykill fyrir
kynferði, 1 er hestur, 2 er hryssa,
næstu tveir stafir em
þjóðskrárnúmer
uppmnahéraðsins og síðustu þrír
stafir fæðingarnúmersins em
númer úr raðnúmeraröð ræktanda
hrossins. Nafii og uppruni
hrossanna kemur fyrir í næsta
dálki. Hœð er kynbótamat eigin-
leikans hæð á herðar, það er
metið sem einn einstakur eigin-
leiki og hefur því ekki áhrif á
kynbótamat annarra eiginleika né
á kynbótamat aðaleinkunnar.
Kynbótamatið á hæð á herðar er
gefið upp í sentimetrum og er
tölustærðin óháð mæliaðferð
(band eða stöng). Kynbótamat er
reiknað út fyrir alla eiginleika
dómstigans, þ.e. höfuð, háls,
herðar og bóga, bak og lend,
samræmi, fótagerð, réttleika,
hófa og prúðleika á fax og tagl
og kostina: Tölt, hægt tölt,
brokk, skeið, stökk, vilja, geðs-
lag, fegurð í reið og fet og loks
fyrir kynbótamat aðaleinkunnar.
Rétt er að benda á að gefið er
upp aðskilið kynbótamat fyrir
vilja og geðslag þrátt fyrir að
þessir eiginleikar séu nú stigaðir
saman. Þetta mun væntanlega
breytast á næstu ámm.
Afkvœmafrávik-Af\, segir til um
hve mörg stiga viðkomandi grips
em vegna áhrifa frá dæmdum
afkvæmum. Þar eiga því hross án
dæmdra afkvæma undan-
Molar
TÍU AUSTANTJALDSLÖND
SÆKJA UM AÐILD AÐ
ESB
Tíu fyrrverandi austantjalds-
lönd hafa lýst áhuga sínum á
aðild að ESB. Þau eru Búlgaría,
Eistland, Lettland, Litháen, Pól-
land, Rúmenía, Slóvakía, Sló-
venía, Tékkland og Ungverja-
land.
Þjóðarframleiðsla á íbúa í
þessum löndum er að meðaltali
39% af meðaltali ESB-landanna
15. Af þeim er Slóvenía hæst
með 71%, Tékkland með 60%
og Ungverjaland með 52%.
tekningarlaust að hafa 0. Afkvæmi
skrác5=AfS, merkir hversu mörg
afkvæmi hrossið á í Feng þegar
uppgjör fór fram. Afkvæmi
dæmd= Dl, segir til um fjölda
fulldæmdra afkvæma hrossanna
sem í hlut eiga. Með samanburði
á þessum dálki við AfS er hægt
að fá hugmynd um hversu vel
afkvæmi undan einstökum
hrossum skila sér til dóms.
Afkvæmi dæmd fyrir hægt tölt og
fet= D2, segir til um fjölda
fulldæmdra afkvæma þau ár sem
fet og hægt tölt hefur verið dæmt
(1999-2001) en þeir eiginleikar
eru í flestum tilfellum metnir
með minna öryggi en hinir sem
hafa verið stigaðir frá upphafi.
Öryggi í kynbótamati
aðaleinkunnar=Ory, er gefið upp
sem hundraðshluti (%) og segir
til um hve miklar líkur eru á að
hið metna kynbótagildi (útreik-
naða) sé hið raunverulega kynbó-
tagildi gripsins er í hlut á.
Tákn fremst í línu merkja:
- Hrossið er dautt.
# Hrossið hefur verið selt úr
landi.
Lægst er Búlgaría með 24% og
Rúmenía með 27%.
ESB hefur birt áætlun um
hagvöxt í þessum löndum á ár-
unum 2001-2003 og er hann
áætlaður 3,4% á ári að meðal-
tali. Ef sá hagvöxtur stendur í 10
ár mun þjóðarframleiðsla á
mann í þessum löndum þó ekki
hækka nema úr 39% í 43% af
því sem hann er áætlaður í nú-
verandi löndum ESB. Ljóst er
því að mikið verk er framundan
að jafna lífskjör í núverandi og
væntanlegum löndum ESB.
(Internationella Perspektiv
nr. 37/2001).
Freyr 1/2002-31 |