Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.2002, Side 45

Freyr - 01.01.2002, Side 45
Eftirfarandi stvrkir hafa verið veittir á árinu._________Kr. Landslið í hestaíþróttum 500.000 Búálfarnir vegna búferlaflutninga yfir Heljardalsheiði 140.000 Landsmót 2002 vegna heimasíðu og bæklings 750.000 Landsmót 2002 vegna starfsmanns 500.000 Reiðkennaranemar Hólaskóla vegna utanlandsferðar 400.000 Islandica 2001 500.000 Búálfarnir vegna sýningar á gömlum vinnubrögðum tengdum hestinum. 100.000 Sá styrkur mun flytjast á árið 2002, og sýningin verður sett upp í tengslum við menningarráðstefnuna „Hálft er líf á hestbaki“ 8. febrúar næstkomandi. Samtals 2.890.000 Skráning reiðleiða Hestamiðstöð fslands ákvað síðasta vetur að taka þátt í skrán- ingu reiðleiða á Norðurlandi vestra. Til verksins voru keypt 5 GPS tæki sem Hestamiðstöðin lánar ferðalöngum. Verkið fór frekar hægt af stað og lengi vel var ekki ljóst hvort sá samningur, sem LH hafði gert við fyrirtæki um birtingu leiðarlýsinganna, myndi halda. Komið hefur í ljós að allir aðilar hafa sama áhugann á málinu og í upphafi og verður því haldið áfram eins og áætlað var. Ennfremur hefur komið í ljós að Vegagerð ríkisins hefur unnið gríðarlega mikið verk við skráningu og flokkun reiðvega á Norðurlandi vestra og nýtist sú vinna við skipulagningu þessa verkefnis í framtíðinni. Akveðið hefur verið að Hesta- miðstöð íslands eigi og reki nýtt mótakerfi hestamanna. Kerfið mun verða sett upp með beinum tengslum við World Feng, og mun það fá upplýsingar um knapa og hesta þaðan, ásamt því að veita nýjustu upplýsingunum inn í það kerfi. Til stendur að stofna sérstakt fyrirtæki um rek- stur mótakerfisins, meðal annars vegna þess að á þann hátt sleppur Hmí við að fara út í VSK-skyld- an rekstur. Tveir samningar hafa verið gerðir um vistun á stöðu frá öðr- um fyrirtækjum. Annars vegar er um að ræða vistun á stöðu framkvæmdastjóra Flugu hf. sem Hml á stóran eignarhlut í. Hér er um að ræða 50% starf, sem unnið er af starfsmönnum Hmí. Hins vegar er um að ræða vistun á starfsmanni Landsmóts ehf., en það fyrirtæki hefur ráðið Ásdísi Guðmundsdóttur í 30% starf framkvæmdastjóra fram að ára- mótum. Ásdís hefur nú vinnuað- stöðu á skrifstofu Hestamið- stöðvarinnar. Að auki er verið að kanna nánar a.m.k eina styrkumsókn sem hefur borist en ekki hefur verið tekin afstaða til. Eins og hér kemur fram eru verkefnin fjölbreytt og mörg og er það von okkar að slík verði staðan næstu ár. Ánægjulegt er að sífellt fleiri einstaklingar hafa samband við okkur um möguleg verkefni og annað sem tengist hestamennskunni. Altalað á kaffistofunni Frostlögur á Þlngvöllum Eins og kunnugt er berst Þingvallavatni mest af vatni sínu neöanjarðar en þetta vatn sést í gjánum á Þingvöllum þar sem það virðist þó vera kyrrstætt. Sú saga er sögð af breskum hermönnum, sem dvöldust hér á landi í seinni heimstyrjöld- inni, að þeir voru eitt sinn á ferð á Þingvöllum í brunagaddi og snjó að vetrarlagi. Kom þá í Ijós að vatnskassinn á einum bíl þeirra lak og voru góð ráð dýr. Tók þá einn hermannan- na eftir því að alautt vatn var í gjánum og sá þar lausn á vandamáli þeirra. Þarna hlyti að vera um frostlög að ræða. Þeir sóttu sér í skyndi vatn og helltu í vatnskassann. Segir svo ekki meira af þeirri ferð. Molar Erfiðleikar I DÖNSKUM KÚABÚSKAP Sala á mjólkurkvóta í Dan- mörku fer þannig fram að seljendur leggja inn á svokall- aðan kvótamarkað fyrir mjólk það magn mjólkur sem þeir vilja selja, og gefa upp það verð sem þeir vilja fá fyrir hann. Á síðast kvótauppboði buðu 1700 kúabændur fram kvóta til sölu, eða fimmti hver kúabóndi. Það eru fleiri bændur en nokkru sinni fyrr þar í landi. Aðeins 825 bændum tókst að selja kvóta sinn og seldi hver að jafnaði 275 þúsund kg. Kaup- endur voru hins vegar 2300 bændur og keypti hver að jafn- aði um 100 þúsund kg. Hið mikla magn af mjólkur- kvóta sem boðið var til sölu þykir til merkis um erfiðleika í dönskum kúabúskap. (Bondevennen nr. 3/2002). Freyr 1/2002-41 j

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.