Freyr - 01.01.2002, Síða 46
Atak f hestamennsku
Stjórn og starfsmenn
Engar breytingar urðu á árinu á
skipan í stjórn Ataksverkefnisins.
Hvert félag, sem að Átaksverk-
efninu stendur, á þar einn full-
trúa. Frá LH er Haraldur Þórar-
insson, frá FT Olafur Hafsteinn
Einarsson, frá FH Ármann Ólafs-
son og frá BÍ og jafnframt for-
rnaður nefndarinnar er Ágúst Sig-
urðsson. I nóvember 2000 kom
eini starfsmaður verkefnisins til
starfa, Hulda Gústafsdóttir en
hún var ráðin til tveggja ára til að
vinna að stefnumótun fyrir
Átaksverkefnið og í framhaldi af
því að stýra einstökum verkefn-
um á vegum þess. Átaksverkefn-
ið hefur skrifstofuaðstöðu í Laug-
ardal hjá Landssambandi hesta-
mannafélaga. Stjórnin hélt 8
stjórnarfundi á árinu, auk fjölda
annarra funda sem einstakir
stjómarmenn og starfsmaður sátu
fyrir hönd átaksins.
Stefnumótun
I upphafi árs var haldið áfram
þeirri vinnu er hófst í lok árs
2000, þ.e. að vinna stefnumótun
fyrir Átaksverkefnið. Upp úr
niðurstöðum stefnumótunarinnar
var unninn verkefnalisti sem svo
verður fylgt eftir það sem eftir
lifir átaksverkefnisins. Um hver
áramót er svo unnið stöðumat á
verkefnunum, hverju fyrir sig og
verður það unnið í janúar 2002
fyrir árið 2001. Það voru starfs-
maður Átaksins Hulda Gústafs-
dóttir með aðstoð Jóns Garðars
Hreiðarssonar hjá Ráðgjöf
KPMG sem báru hitann og þung-
ann af verkefninu. Um miðjan
febrúar var þessari vinnu lokið
og fór Hulda þá í hringferð um
landið ásamt forystumönnum
hestamanna til að kynna verkefn-
ið um leið og þeir kynntu starf-
semi og stöðu félaga sinna. í
ferðinni voru Ágúst Sigurðsson
hrossaræktarráðunautur, Kristinn
Guðnason, formaður Félags
hrossabænda, Ólafur Hafsteinn
Einarsson, formaður Félags
tamningamanna, og Jón Albert
Sigurbjörnsson formaður Lands-
sambands hestamannafélaga.
Haldnir voru fundir á Hornafirði.
Egilsstöðum, Eyjafirði, Sauðár-
króki, Blönduósi, Hvanneyri,
Ingólfshvoli, Mosfellsbæ og
Reykjavík. Samtals sóttu þessa
fundi um það bil 700 manns og
taldist ferðin nokkuð vel heppn-
uð. Fundimir voru haldnir dag-
ana 19. febrúar til 2. mars.
Helstu niðurstöður stefnu-
mótunarinnar eru sem hér segir:
* Fagmennska í ræktun.
Ræktun í framtíðinni á að
stjórnast af gæðastefnu hes-
tageirans, auk þess sem stefnt
er að því að öll skráð folöld í
Feng verði með A-vottun og
þau öll prófuð með fullkomin-
ni ætternisgreiningu (DNA).
Ræktunarmarkmið, ásamt
skilgreiningu á gæðastýringu,
liggur fyrir en í Feng eru um
25% folalda A-vottuð. Stefnt
er að kynningu á gæðastefnu í
Átaksverkefnið ásamt forystumönnum hestamanna fóru í fundahringferð um
landið í febrúar 2001. Þarna er hópurinn við bílinn sem flutti hann hringinn,
en Bílheimar og Isuzu á íslandi styrktu þessa ferð. Frá vinstri: Kristinn
Guðnason FH, Hulda Gústafsdóttir, verkefnisstjóri Átaksins, Ólafur H
Einarsson FT, Jón Albert Sigurbjörnsson LH og Ágúst Sigurðsson BÍ.
(Ljósm. Þórður Jóhannesson).
| 42 -Freyr 1/2002