Freyr - 01.01.2002, Qupperneq 51
Skýrsluhaldlð í hrossa-
rækt 2001
Þátttaka og umfang
Með hverju árinu sem líður vex
gagnagrunnurinn og upprunaæt-
tbók íslenska hestakynsins en nú
eru hátt í 140 þúsund hross skráð
í grunninn. Það eru að langsamle-
ga mestu leyti íslensk fædd
hross en skráning á hrossum fæd-
dum erlendis er hafin og mun á
næsta ári snaraukast ef að líkum
lætur og þátttökuþjóðirnar standa
sig í stykkinu. Alls voru skráðir
skýrsluhaldarar 2263 en rétt er þó
að geta þess að þátttakan er
nokkuð á reiki því að sumir, sem
fá sent skýrsluhald á hverju ári,
sinna því ekki sem skyldi og eru
í rauninni óvirkir þátttakendur.
Því var ákveðið að taka svolítið
til í þessum hópi og frá og með
árinu 2002 verður ekki sent til
þeirra sem hafa ekki skilað inn
skýrslum nema þeir tilkynni sig
sérstaklega sem þátttakendur. Það
er hæpið að senda þetta til þeirra
sem engan áhuga hafa og þar af
leiðandi ekkert gagn af þessu. í
1. töflu sést hvað hefur bæst við
af folöldum fæddum árið 2000 en
greinilegt er að veruleg fækkun
hefur átt sér stað á milli ára, færri
hryssum haldið árið 1999 og þar
af leiðandi færri folöld. Eins og
sjá má í 1. töflu þá eru langflest
folöldin skráð á svæði
Búnaðarsambands Suðurlands
eða 42% af heildarfjöldanum.
Annars er sú skipting mjög
svipuð frá ári til árs og sama er
að segja um þann hluta sem nær
A-vottun á ætternið en þó er um
smávægilega hlutfallslega fjölgun
á milli ára að ræða. Þetta hlutfall
þarf að snarhækka enda ekki
ásættanlegt að menn sinni
skýrslugerðinni ekki betur en
þetta, það er svo sáraeinfalt að
hafa þetta í lagi.
Mikilvægur þáttur í skýrslu-
haldinu er skráning einstaklings-
merkja, þ.e. örmerkja og frost-
merkja, en alls voru skráð 2344
örmerki og 608 frostmerki á ár-
inu. Að gefnu tilefni er rétt að
rifja upp að samkvæmt reglu-
gerð um merkingar búfjár þá er
Bændasamtökunum skylt að
halda utan um eigendaskrá í
1. tafla. Fjöldi skráðra folalda í Feng eftir svæðum (fæð- ingarár 2000).
Búnaðarsamband (svæði) Skráð folöld af heild A-vottað % A-vottað
Suðurland (25,80-88) 1215 42% 241 20%
Vesturland (35-38,45) 433 15% 151 35%
Strandamenn (49) 19 1% 3 16%
V-Hún. (55) 182 6% 109 60%
A-Hún. (56) 208 7% 67 32%
Skagafj. (57,58) 468 16% 104 22%
Eyjafj. (65) 187 6% 56 30%
Þing. (66-67) 53 2% 5 9%
Austurland (75-76) 81 3% 14 17%
A-Skaft. (77) 43 1% 10 23%
Heildarfjöldi 2889 100% 760 26%
eftir
Agúst Sigurðsson,
Hallveigu Fróðadóttur,
og
Lindu Björk Jóhannsdóttur
Bænda-
samtökum
Islands
tengslum við örmerkt eða frost-
merkt hross. Jafnframt segir í
reglugerðinni að við eigenda-
skipti á slíkum hrossum skuli til-
kynna eigendaskiptin til BÍ á sér-
stökum eigendaskiptablöðum þar
sem fyrri eigandi afsalar sér
hrossinu til nýrra eigenda. Þegar
um er að ræða aðila sem standa
utan skýrsluhaldsins og eru að
grunnskrá hross getur þessi eig-
endaskráning í sumum tilfellum
verið snúin og jafnvel valdið
misklíð. Sé hins vegar um að
ræða ræktanda, sem tekur þátt í
skýrsluhaldinu, þá er málið mjög
einfalt því að eigandi hryssu er
sjálfkrafa skráður sem eigandi af-
kvæmis hennar um leið og fol-
aldaskýrsla er færð. Þama er enn
Freyr 1/2002-47 |