Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.2002, Síða 56

Freyr - 01.01.2002, Síða 56
Fyrsta námskeið fyrir erienda skýrsluhaldara FEIF í WorldFeng var haldið í Reykjavík 8.-9. nóvember sl.. Þátttakendur voru frá Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Danmörku, Bretlandi, Finnlandi og Þýskalandi. Aðalleiðbeinandi var Jón Baldur Lorange, en hann hafði sér til aðstoðar Hallveigu Fróða- dóttur og Ingibjörgu Pétursdóttur. Seinni dag námskeiðsins var haldinn sameiginlegur vinnufundur (workshop) þátttakenda, þar sem hafin var formleg skráning á gögnum frá hverju landi inni í WorldFeng. Á myndinni má sjá Jón Baldur leiðbeina nokkrum þátttakenda. (Ljósm Bændablaðið). Samningsviðræður Töluverð vinna fór í að ganga frá samstarfssamningi milli Bændasamtaka Islands og FEIF. Einnig þurfti að semja áskriftar- samning á milli BI og aðildar- lands FEIF. Þá var brýnt að ganga frá stöðluðum reglum um skráningu í WorldFeng, (FIZO reglum, samþykktum af FEIF ár- ið 2000), ásamt leiðbeiningum sem innihéldu atriði sem þurfti að huga að áður en hægt var að hefja skráningu í WorldFeng. I framhaldi af fundinum í Reykjavík voru haldnir þrír fund- ir til að ganga frá samningunum og reglunum. Næsti fundur var haldinn hjá Clive Philips í Skotlandi. Þann fund sátu, auk Clive, Jens Otto Veje og undirritaður. A fundinum voru samin drög að samstarfs- samningi FEIF og BI og áskrift- arsamningi við aðildarlönd FEIF. Fundurinn í Skotlandi var árang- ursríkur. A einum og hálfum degi tókst að kasta upp drögum að þessum samningum. Þar var hvergi slegið af, byrjað að funda fyrir kl. 8 að morgni og fundað til miðnættis. Næsti fundur var haldinn í Danmörku hjá Jens Otto Veje. Þann fund sátu, auk okkar þriggja sem sátu fundinn í Skot- landi, Ágúst Sigurðsson, hrossa- ræktarráðunautur, og Lutz Lesener frá IPZV. Þetta var helgarfundur og var farið yfir drögin að samstarfssamningnum og áskriftarsamningnum og tekin til umræðu öll þau álitamál sem upp komu. Nauðsynlegt var að hafa jafn reyndan samninga- mann og Clive Philips lögfræð- ing í þessari vinnu. Enda ber samstarfssamningurinn við FEIF þess vitni að lögfræðingur skri- faði hann. Samningurinn er ít- arlegur og þar er reynt að taka á öllum helstu atriðum sem gætu komið upp í samstarfinu um WorldFeng. Allur þessi ferill frá fundinum í Reykjavík og til síð- asta fundar, sem haldinn var í Bændahöllinni í Reykjavík, var oft á tíðum þreytandi enda nauð- synlegt að fara yfir mörg smá- atriði. Það var mikilvægt fyrir BÍ að leggja áherslu á að verið væri að bjóða íslenska skýrslu- haldskerfið í fyrstu atrennu og að ekki væri verið að semja um viðamikla forritunargerð til við- bótar við það sem Islendingar þyrftu á að halda. Ennfremur var nauðsynlegt að leggja áherslu á að staðlaðir lyklar sem voru í Feng fengju að halda sér og að engar grundvallarbreytingar væru gerðar á gagnagrunni Fengs, heldur yrði um útvíkkun á honum að ræða eins og upp- haflega var ráð fyrir gert. Þessu samningaferli lauk síðan í Reykjavík á fundi sem haldinn var árið 2000 og þar var gengið endanlega frá öllum lausum endum. Þann fund sátu Clive Philips, Jens Otto Veje og undir- ritaður. Einnig kom á þann fund Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri BI, til þess að ræða um ýmis atriði sem þörfn- uðust frekari skýringar, bæði af hendi Bændasamtakanna og FEIF. | 52-Freyr 1/2002

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.