Freyr - 01.01.2002, Síða 57
Samningurinn var formlega
samþykktur á Landsmóti 2000
þar sem einnig var skrifað undir
viljayfirlýsing um WorldFeng á
milli FEIF og BÍ.
Ljóst er að forsenda fyrir því
að hægt var að ráðast í World-
Feng verkefnið var styrkur sem
Ataksverkefni í hestamennsku
veitti verkefninu, að upphæð kr.
15 milljónir. Átaksverkefninu var
komið á fyrir tilstilli Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráð-
herra, sem hefur sýnt hrossarækt-
inni mikinn skilning á ráðherra-
ferli sínum. Framleiðnisjóði land-
búnaðarins ber jafnframt að
þakka fyrir styrk að upphæð kr. 2
milljónir á árinu 2001. Annan
kostnað við gerð WorldFengs
hafa Bændasamtökin borið.
Efni samstarfssamningsins
við FEIF
Samstarfssamningurinn milli
FEIF ogBÍ um WorldFeng er í
23 greinum, auk viðauka í fjórum
hlutum. Samningurinn greinir frá
samstarfsverkefninu sem slíku,
gildistíma, skyldum FEIF og BÍ
o.fl.
I 6. grein er t.a.m. greint frá
stjórn WorldFengs. Sérstök grein
er um fjármögnum á kerfinu
ásamt áskriftargjöldum. Þá er ein
grein um þóknun til aðildarland
FEIF af áskriftartekjum í við-
komandi landi, 9. gr. fjallar um
skyldur eða kröfur til kerfisins,
10 gr. um eignarrétt, þ.e. höfun-
darrétt, dreifingarrétt og hug-
verkarétt Síðan eru greinar sem
sameiginlega fjalla um samn-
ingsslit, ábyrgð o.þ.h. Þannig er
samningurinn, eins og áður hefur
komið fram, ítarlegur og var
reynt að taka á öllum hugsan-
legum atriðum, sem gætu komið
upp í samstarfinu um WorldFeng.
Það er ljóst í huga okkar allra,
sem unnum að samningsgerðinni,
að með WorldFeng væri stigið
stórt skref í íslenskri hrossarækt.
Það var þess vegna mikilvægt að
vel til tækist í samningsgerðinni.
Engan skugga hefur borið á þetta
samstarf frá upphafí. Allir aðilar
hafa unnið af heilindum og dugn-
aði í að ganga frá málum þann-
ig að allir gætu vel við unað.
Eitt af þeim atriðum sem var
mikilvægt að ganga frá í reglum
um WorldFeng og í samningi um
WorldFeng voru aðgangsmál.
Ákveðið var í upphafi að tölvu-
kerfíð WorldFengur væri í eigu
Bændasamtakanna, en gögnin sem
slík væru sameign þeirra landa sem
gerðust áskrifendur að kerfinu.
Þannig þurfti að búa til aðgangs-
reglur sem skipta aðgengi að
gagnagmnninum algjörlega eftir
löndum. Danir geta þannig aðeins
skráð ný hross, sem eru fædd í
Danmörku, og breytt/viðhaldið
upplýsingum einungis um hross
sem eru í Danmörku.
Tölvukerfið WorldFengur
VERÐUR TIL
Tölvukerfíð WorldFengur er
byggt upp með JDeveloper sem
er þróunartól til þess að skrifa
Java fyrir Oracle. Gagnagrunnur
WorldFengs er í Oracle 8 i.
Þegar ákveðið var að ráðast í
WorldFeng var mikilvægt að
velja þróunartól sem gætu staðið
undir þeim miklu væntingum
sem gerðar voru. Þannig þurfti að
velja öflugan gagnagrunn sem
gæti bæði ráðið við mikið magn
af upplýsingum, hraða og öryggi.
Ennfremur var mikilvægt að
velja þróunartól sem réðu við
umfangsmikla forritun á Intemet-
inu og biðu upp á sveigjanleika
og að sama skapi hraða og
öryggi. Segja má að af þeirri
reynslu, sem komin er, að val á
þróunartólum hafí verið rétt.
Vissulega komu upp ýmsir byrj-
unarerfíðleikar í upphafi sem
þurfti að ráða bót á og reyndu á
taugar og þol þeirra sem tóku
þátt í verkefninu. Fljótlega var
ákveðið að vista tölvukerfið
WorldFeng og gagnagrann hjá
SKÝRR til þess að auka öryggi
og bjóða upp hraða Internetteng-
ingu og örugga afritun kerfisins,
en ekki síst til þess að bjóða upp
á 24 tíma vakt á kerfinu. Vegna
eðli verkefnisins var brýnt að
tryggja uppítíma og þjónustu all-
an sólarhringinn.
Tölvukerfíð WorldFengur
byggir að grunni til á fyrrverandi
Feng sem var upphaflega byggð-
ur upp árið 1991.1 upphafi ársins
2002 hafa helstu áfangar í World-
Feng náðst fram. Islenska
skýrsluhaldskerfið hefur allt ver-
ið byggt inn í kerfið, þar er átt
við grunnskráningu, afdrifa-
skráningu, fangskráningu, skrán-
ingu á fyljun, (sem er ný skrán-
ing miðað við fyrrverandi kerfí),
skráning á eigendum, eigenda-
skipti, umnúmeringar, skráning á
bæjum eða uppruna, og skráning
á örmerkjum svo að það helsta sé
upp talið.
Vegna þess að um alþjóðlegan
gagnagrunn er að ræða var um-
fang verksins mun meira heldur
en ef verið væri að skrifa kerfi
einungis fyrir ísland. Alls staðar
þurfti að huga að fjölþjóðlegri
skráningu enda byggir kerfið á
mjög strangri aðgangsstýringu
eftir löndum. Jafnframt þurfti að
staðla ýmsa lykla til viðbótar við
hið alþjóðlega fæðingarnúmer og
þar er átt við lykla fyrir eigendur,
uppruna, svæði og fleira. Auk
alls þessa var gæðastýringarþátt-
urinn í fyrsta skipti byggður inn
að öllu leyti. Þannig eru sannanir
skráðar inn í gagnagrunninn, þ.e.
blóðflokkun og DNA greining,
sem er grunnur að gæðavottun
hrossa. Einnig er byggður inn
skýrsluhaldsþáttur gæðastýringar-
innar sem er gæðavottun folalda,
þar sem uppfyllt hefur verið öll-
Freyr 1/2002-53 |