Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Qupperneq 13

Skátablaðið - 01.08.1947, Qupperneq 13
SKÁTAFÉJLAG AKUKEYRAK Skátalélag Akureyrar var stofnað 1939 með sameiningu skátafélaganna, sem fyrir voru á staðnum. Fyrsti félagsforingi var séra Friðrik Rafnar, vígslubiskup. Því starfi gengdi hann í eitt ár og hefir síðan verið verndari félagsins. Þá tók við félagsforingja- störfum, Haukur heitinn Helgason, sem verið hafði aðal-hvatamaður sameiningar- innar og ávallt einn hinn traustasti skáti og félagi. Öll hin síðari ár hefir Tryggvi Þorsteinsson, kennari verið félagsforingi. Skátafélag Akureyrar starfar nú í þrem skátasveitum ásamt rekka- og yflingasveit- um. Félagsmenn eru um 120. Félagið á þrjár húseignir: Gunnarshólma, Fálkafell og Glaumbæ. Gunnarshólma fékk félagið að erfðum frá Gunnari skáta- foringja, eins og Gunnar heitinn Guð- laugsson var oftast kallaður okkar á með- al. Gunnarshólmi stendur norðaustan við gatnamót Lundargötu og Gránufélagsgötu. Hefir félagið til umráða í húsi þessu, tvær efri hæðirnar ásamt litlu verkstæði á neðstu hæð. Allir flokks og sveitarfundir eru haldn- ir í Gunnarshólma en félagsfundir í barna- skólanum eða kirkjukapellunni. Innistarf- ið hefir að mestu verið fólgið í æfingum, flokksfundum, svo og alls konar vinnu við ,,Hólmann“ en herbergjaskipan hússins er þannig, að erfitt er að koma við sveitar- fundum, þar eð herbergi eru svo lítil. Sveit- arstarfið hefir því farið fram í Fálkafelli. Hafa sveitirnar haft þar fastar útilegur, mánaðarlega að vetrinum. Fálkafell stendur í þrjú til fjögur hundr- uð metra hæð í fjallinu fyrir ofan Bæinn. Útsýni er hið fegursta yfir Eyjafjörðinn og skíðalandslag hið prýðilegasta. Skálinn var byggður árið 1932 af skátafélaginu Fálkar. Síðan hefir skálinn verið stækkaður um helming og er í honum forstofa, eldhús og dagstofa. Uppi yfir hálfri byggingunni er svefnloft. Fálkafell geta því gist milli 20—30 skátar. Glaumbær stendur í fögru gili við Krossa- staði á Þelamörk, um 16 krn. frá Akureyri. Aðalbyggingin er brezkur hermannaskáli en í viðbyggingunni eru forstofur og eld- hús. Viðbyggingin er úr steini. Glaumbær liggur vel við sumarferðum, sundlaug er skammt frá og uppvaxandi skógur 1 nánd. Mikið hefir verið unnið að endurbótum að sjálfum skálanum og landsspildu þeirri er félagið hefir til umráða umhverfis hann, þótt enn sé að vísu langt í land með að öllu sé þar lokið. Samvinna milli drengja- og kvenskátanna hefir ávallt verið hin bezta á Akureyri. Félögin hafa t. d. staðið fyrir sameiginlegri skemmtun fyrir almenning á ári hverju. Hafa þessar skemmtanir farið vel fram og verið báðum aðilum til sóma. Út á við hafa félögin yfirleitt komið fram sem heild, við hátíðleg tækifæri og lausn stærri verkefna. Innávið hefir samstarfið ekki verið eins náið og æskilegt væri. Þó hafa félögin staðið fyrir sameiginlegum foringjanámskeiðum, ferðum og útilegum. Nú í sumar sáu fé- lögin sameiginlega um foringjanámskeið í Glaumbæ að tilhlutan B. í. S. Skátar frá Akureyri hafa tekið þátt í öll- um landsmótum, sem haldin hafa verið frá stofnun félagsins. í fyrrasumar átti félagið tvo fulltrúa á Skotlandsmótinu og átta skát- ar frá Akureyri sóttu Friðar-Jamboree í Frakklandi nú í sumar. SKATABLAÐIÐ 87

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.