Skátablaðið - 01.08.1947, Page 17
að það var ekkert annað en það, að hún
öfundaði Sysser.
En því var hún þá ekki fyrir löngu orðin
skáti? Nei, til þess var hún of drambsöm.
Sysser skyldi ekki ímynda sér að hún skriði
fyrir skátadótinu hennar.
„Jæja, hvar hættum við?“ hóf Berg aftur
máls.
Bodil sneri sér að honum.
„Jú, sjáum nú til. Fyrst þú hefur svo
margt að athuga við skátafélagsskapinn,
væri þá ekki þjóðráð fyrir þig að reyna,
hvernig hann er?“
„Reyna hann, hvernig?“
„Já, í stuttu máli: Fara með í sumarbúð-
irnar, með tjald og skaftpotta og annað
þessháttar."
í sumarbúðir! Sofa úti hverja einustu
nótt! Kveikja eld og sjóða mat yfir honum!
Skyldi það vera gaman? Bodil lét hugann
reyka áfram, hún hugsaði um góða rúmið
sitt heima og eldhúsið með öllum rafmagns-
tækjunum. Það var heldur ólíkt báli, sem
kynnt var úti, og þar sem maður varð
óhreinn af reyk og sóti.
Berg gat sér til um hugsanir hennar og
sagði: „Já, ef þú ert of fín fyrir slíkt útilíf,
þá getur þú heldur ekki verið vinkona
Sysser.“
Þessi athugasemd hitti í mark.
nú tekið ákvörðun.
„Ég held ég korni með, ef það er hægt;
ég meina, ég er ekki orðin skáti — ennþá.“
Bodil horfði niður fyrir sig, en leit nú
upp. Það var auðséð á henni, að hún hafði
„Þetta líkar mér, ég skal sjá um það allt.
Og það skal ég segja þér, að Sysser verður
glöð.“
Skrifstofustjórinn var að ganga út, þegar
síminn hringdi.
„Halló, já góðan daginn, ert það þii
Sysser?-----Já, þá er það í lagi.------Já,
auðvitað ferðu í skátabúðir, þegar ég segi
að þú skulir fara, — — já, já.“
Sysser hentist út úr símaklefanum og
ljómaði af ánægju. Sá gat nú komið hlut-
unum í kring. Berg pabbi var bezti maður
í heimi.
Húrra, hún átti samt sem áður að komast
í sumarbúðirnar, hún átti að fá að vera
með Sissu og öllum hinum, Margot og
Bentu, og svo þessum tveimur nýju — Vib-
sen og Bodil.
Bodil, Sysser fitjaði upp á nefið. Nú, jæja,
með öðru móti fékkst það ekki, en bara að
það tækist. Hún varð að tala um það við
Sissu. Já, auðvitað varð Sissa að fá fréttirn-
ar fyrst allra. Hún stökk af stað, beina leið
til Sissu.
Lífið er dásamlegt, þegar maður er þrett-
án ára, er skáti — — og sumarfríið er að
byrja.
JAMBOREE!
íslenzka hliðið vahti athygli þessarar ungu
frönsku listakonu.
SKATAB LAÐIÐ
91