Skátablaðið - 01.08.1947, Síða 19
varair
ÚT í VERÖLD BJARTA
Lag: Little Marlen.
Út í veröld bjarta,
er vorsins kall til þín.
Þú skalt ekki kvarta
þegar sólin skín.
Með nestispoka á baki gakktu greitt,
þótt gerist heitt og ennið sveitt,
:/:það yndi getur veitt. :/:
Hjá ævintýraeldi
oft við skátatjöld,
á góðu og hlýju kveldi
gleðin hafði völd.
Minninganna ylur aldrei dvín,
til ellidags, sem stjarna skín,
:/: mörg útilegan þín. :/:
T. Þ.
ÚLFLJ ÓTS VATN
Lag: Till we meet again.
Undraland við Úlfljótsvatnið blátt,
enginn gleymir þínum töframátt.
Inn við eyjar út við sund
öldur hjala um æskudrauma grund.
Loftið fyllist ljúfum unaðsóm
lækir falla og léttum kveða róm.
Engum gleymist undranátt:
við Úlfljótsvatnið blátt.
Hás.
Kanfmi'lu'osséáta.
GING GANG GOO
:/: Ging gang gooli gooli gooli watcha
ging gang goo ging gang goo :/:
Heyla heyla sheyla, heyla shey la hey la ho.
Shali walli shali walli, shali walli
shali walli,
ompah, ompah.
ORÐTAK ALLRA SKÁTA
Orðtak allra skáta,
Vertu viðbúinn,
sé greipt í huga þinn
og greipt í huga minn.
Það varðar okkar leið
á lífsins gönguför
til lokadags, er þrýtur fjör.
T. Þ.
Lárétt:
2. Geri á bát. — 4. Mikilfenglega. — 8. Lyfti.
- 9. Þjóðflokk. — 10. Húsdýr.
Lóðrétt:
1. Eignast. — 2. Rándýr. — 3. Klettar. — 4.
Geðillur maður. — 5. Kaup. — 6. Syngja. —
7. Flugfélag (skammstöfun). — 8. Hvað?
SKATABLAÐIÐ
93