Skátablaðið - 01.08.1947, Page 24
turnum eða öðru táknrænu frá heimkynn-
um skátanna.
Við vorum spurðar fjölda spurninga um
ísland og virtust flestir harla fáfróðir um
land vort og þjóð. Allmargir héldu að ís-
birnir gengju á götunum í Reykjavík og að
hvítu gæruskinnin væru af þeim og trúðu
varla er við sögðumst aldrei hafa séð ís-
björn fyrr en í dýragarðinum í Kaupmanna-
höfn.
Fastir liðir á mótinu voru sem hér segir:
Kl. G,15 risu kokkar úr rekkju (2 og 2 í
einu. Eldað var á hlóðum). Kl. 7 var al-
rnenn fótaferð, tekið til í tjöldunum og
kringum þau, snæddur morgunverður, og
kl. 9 var „Parade“ ]r. e. skrúðganga undir
fánum upp á opnunarsvæðið, fánar dregnir
að hún. Var danski fáninn fyrst dreginn
að hún, síðan fánar hinna erlendu þjóða,
allir í einu, en síðast alheimsfáni kven-
skáta. Lúðrablástur var á undan og eftir
fánaathöfninni og önnuðust hann 5 skáta-
stúlkur. Þá sló fjöldi skátastúlkna trommur
fyrir göngunni.
Kl. 9,30—15 var farið í bað, borðaður
hádegisverður og frjálst. Frjálsa tímanum
notuðum við til þess að skoða tjaldbúðar-
svæðið, heimsækja hinar þjóðirnar. Kl. 15
var te. Kl. 15,30 fóru fram alls konar keppn-
ir og leikir. Kl. 20 fánar dregnir niður. Kl.
21,30-22 varðeldur. Kl. 22,30 kyrrð.
Varðeldarnir voru skemmtilegastir af
öllu. Það var yndislegt, eftir hitasvækju
dagsins, að setjast kringum eldinn í kvöld-
svalanum, syngja, hrópa og horfa á alls
konar leiki. 5 varðeldar voru sameigin-
legir á stóru varðeldasvæði en þrír smá-
varðeldar. Tóku þá „borgirnar" sig saman
og héldu varðeld, eða þá einhver þjóðin
bauð nokkrum stúlkum frá mismunandi
þjóðum og komu þær þá með nokkur
skemmtiatriði.
Við höfðum einn varðeld í Estridsborg.
Öðru sinni var okkur boðið til danskra
skátastúlkna. Þriðja varðeldinn héldum
við hjá okkur, en þá ringdi svo mikið, að við
urðum að vera inni í tjaldinu. Kom sér þá
vel að það var stórt. Við vorum milli 50—60
þar samankomnar.
Tvisvar var okkur útlendingunum boð-
ið í ferðalög, fyrra sinnið til Frederíksía,
Vejle og Jelling, en þessar borgir eru ein-
hverjar fegustu staðir í Danmörku. Hitt
sinnið fórum við út að sigla. Sigldum við
þá undir Litla-Beltisbrúna. Þá skoðuðum
við ennfremur, Hindsgavl-höllina, sem Nor-
ræna-félagið á. Er umhverfi hennar undur
fallegt.
Næturleikur var eina nóttina. Tvær okkar
tóku þátt í honum. Var lagt af stað kl. 12
á miðnætti og komið aftur að morgni kl.
6. Þótti þetta langur og skemmtilegur
leikur.
Laugardaginn 26. júlí kl. 10. f. h. skeði
merkilegur atburður. Hennar hátign,
drottning Ingrid heimsótti tjaldbúðirnar.
Hún er skáti og kom í skátabúningi. Hún
98
SKÁTABLAÐIÐ