Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1947, Side 33

Skátablaðið - 01.08.1947, Side 33
skeiðinu en átján nemendur á flokksforingja- námskeiðinu. Skátaliöfðinginn, dr. med. Helgi Tómasson, flutti erindi um markmið og leiðir skátafélags- skaparins. Jónas B. Jónsson flutti erindi um hugsjón útilífsins. Kennarar skólans voru: Hall- grímur Sigurðsson, Björgvin Magnússon, Ás- gerður Áskelsdóttir, Páll Gíslason og Aðal- steinn Júlíusson. Aðalsteinn var jafnframt skóla- stjóri. Foringjaskólinn að Úlfljótsvatni er nú sem óðast að festast í skorðum. S VEITAFORINGJASKÓLI í GLA UMBÆ. Sveitaforingjanámskeið var haldið í skála Skátafélags Akureyrar, Glaumbæ á Þelamörk, dagana 3.-7. júní. Þátttakendur voru frá báðum skátafélögun- um á Akureyri, Kvenskátafél. Húsavíkur, Skáta- félaginu Samherjar Patreksfirði, Kvenskátafél. Valkyrjur, Siglufriði, Skátafél. Fylkir, Siglufirði og Skátafél. Raufarhafnar, alls 10. Kennarar voru Tryggvi Þorsteinsson og Ric- hard Þórólfsson úr S. K. F. A., Áslaug Guð- laugsdóttir, Erla Gunnarsdóttir og Júdít Jón- bjarnardóttir úr „Valkyrjunni" Akureyri og Aðalsteinn Júliusson, erindreki B. í. S. Vonast hafði verið eftir betri þátttöku, sér- staklega frá félögunum norðanlands, en margra orsaka vegna áttu félögin óhægt með að senda sveitarforingja eða sveitarforingjaefni á skólann. Ákveðið hafði verið að námskeiðið hæfist laugardaginn 1. júní, en vegna atburða er leiddu af hinu hörmulega flugslysi 29. maí, var eigi hægt að hefja kennslu á áður ákveðnum tíma. Skólinn var að jnestu í sama formi og hann hefir verið hafður undanfarin tvö haust að Úlf- ljótsvatni, en þó varð að breyta honum að nokkru vegna þess, að tveir af væntanlegum kennurum hans forfölluðust á síðustu stundu. SKÁTAJÓL. Jólablað Skátablaðsins, Skátajól, mun koma út eins og að undanförnu, stórt og fjölbreytt að vanda. Af efni blaðsins má m. a. nefna: Helgi S. Jónsson segir frá Jamboree. Minningar frá dvöl íslenzku skátanna í Englandi í sumar. Minningar frá Prag, eftir Jón Tómasson. Ferða- lag til New York eftir Leif Eyjólfsson. Úlfljóts- vatn eftir Þorvald Þorvaldsson. Auk þessa verða sögur, myndir, skrýtlur, verðlaunamyndagátur, Robinson, um landsmótið næsta sumar o. m. fl. Skátar! Sendið skátablaðinu alls konar elni og útvegið því nýja kaupendur. Munið að Sáta- blaðið á að greiðast fyrirfram. NÝ SKÁTABÓK. Nú alveg á næstunni kemur út ný handbók fyrir skáta. Heitir hún Skátastörf og er eftir Hallgrím Sigurðsson. Bókin er nauðsynleg fyrir alla skáta. Hallgrímur hefir unnið að bókinni í lengri tíma og er hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. Prentun bókarinnar er lokið, og verður þess ekki langt að biða að hún komi út. A THUGIÐ. Skátabókin er nú alveg uppseld. Mun líða nokkur tími áður en ný og fullkomin skátabók verður samin og út gefin. B. I. S. hefir því í bili horfið að því ráði, að láta fjölrita prófin, þangað til úr rætist með samningu nýrrar skáta- bókar. Ættu félagsforingjar að senda pantanir sínar á nýliða eða annars fl. prófunum til skrif- stofu B. í. S. í skátaheimilinu, Reykjavík. — Samning nýrrar skátabókar má ekki dragast lengur. SKRIFSTOFA B. í. S. Bandalag íslenzkra skáta hefir opnað skrif- stofu í skátaheimilinu við Hringbraut. Hefir B. í. S. jafnframt ráðið Vilberg Júlíusson, kenn- ara frá Hafnarfirði fyrir framkvæmdastjóra sinn. Öll skátafélög landsins eru beðin að setja sig í bréfasamband við skrifstofuna og senda henni SKATABLAÐIÐ 107

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.