Skátablaðið - 01.12.1953, Side 30
Jólaíundurinn
Senn líður að jólum, og eru því síðustu
forvöð fyrir flokksforingjann að fara að
undirbúa jólafundinn. Það væri tilvalin til-
breyting, að tveir eða fleiri flokkar héldu
sameiginlegan fund. Þetta yrði þá auðvitað
einungis skemmtifundur og er því sjálf-
sagt að hafa bæði leiki og ýmiskonar þraut-
ir. Einnig eru mömmurnar áreiðanlega vís-
ar til að hjálpa til með dálítið af kökum og
öðru góðgæti, að minnsta kosti, ef þið eruð
dálítið stimamjúkir við þær og farið í tvær
þrjár sendiferðir í staðinn. Sjálfir getið þið
auðvita lagað kókó. Tii }:>ess að vinna bug á
feimninni er gott að byrja á leik eins og
þeim, þar sem þið skrifið nokkur nöfn
frægra manna (eða þá nokkur dýranöfn) á
bréfmiða, sem síðan eru nældir á bakið á
mönnum um leið og þeir koma. Þeir eiga
síðan að reyna að geta upp á, hvaða nafn
er á miðanum, sem þeir eru með á bakinu,
og mega spyrja hina eins margra spurn-
inga og þeir vilja, en það má aðeins svara
með „já“ eða „nei“. Þið kannist öll við
leikinn, þar sem nokkrum stólum er raðað
í hring (einum stól færra en þátttakend-
urnir) og síðan er gengið í kring um þá
í takt við músik. Síðan hættir músikin
snögglega og eiga þá allir að setjast. Þeir,
sem ekkert sæti fá eru úr leik. Það getur
verið ágæt hugmynd að breyta þessum leik
þannig, að í stað stóla eru notaðir hattar
(og þá sitið þið auðvitað ekki á þeim held-
ur setið þá á höfuðið) eða þá, að fyrir fund-
inn tínið þið saman nokkrar flíkur, eins
■ósamstæðar og afkáralegar og hægt er og
setjið þær í poka. Pokinn er síðan látinn
ganga og sá, sem heldur á honum þegar
músikin hættir, verður að taka eina flík úr
honum og fara í hana. Það getur einnig
verið tilbreyting að raða borðum eins og í
félagsvist og hafa alls konar smá keppni
eins og að stinga títuprjónum í sápustykki
með skærum eða tína baunir upp í skáf
með gosdrykkjastrái. Þið verðið einungis
að gæta þess, að hver keppni taki ekki of
langan tíma. Tvær mínútur er liæfilegur
tími.
Annar ágætur leikur er teiknileikur. Þátt-
takendum er skipt í tvo hópa, sem síðan
eru settir í sitt hvort herbergi. Fyrir leik-
inn hafa verið valdar nokkrar setningar eða
orð eins og t. d.: „Þoka, svampur, maður-
inn sem braust inn í Englandsbanka, eða
sólarnir á skónurn hans Hitlers.“ Síðan er
einn úr hvoru liði sendur fram og þar er
honurn sögð setningin eða orðið. Hann á
síðan að fara inn og reyna að koma hinum
í skilning um, með teikningum, hvað það sé.
Hann má hvorki skrifa eða segja eitt ein-
asta orð. Það getur verið stórmerkilegt hvað
sumir eru fljótir að því, enda þótt þeir geti
ekki teiknað á við tvo aura. Að lokum er
hér svo einn smá leikur. Hann er eins kon-
ar afbrigði af því að láta orðið ganga. Þátt-
takendur sitja í hring og haldast í hendur.
Síðan morsar einhver staf til þess næsta með
því að þrýsta hendi hans og svo koll af kolli.
Hér eru svo nokkra þrautir, sem þið get-
ið glímt við á jóladaginn, þegar þið getið
ekki hryeft ykkur eftir allar kræsingarnar.
Björn, |ói, Bergur og Henry voru einu
sinni að spila vist. Þeir sátu þannig að
Bjössi sat ekki á móti Jóa. Henry sat ekki
á hægri hönd Bergs og Bergur ekki á vinstri
hönd Jóa. Hvernig sátu þeir?
46
SKÁTABLAÐIÐ