Skátablaðið - 01.07.1962, Side 17
Fyrsta stjórn Ii.í.S. Frá vinstri: Jón Oddgeir Jónsson, Henrik Ágústsson, Axel V. Tulinius,
skátahöjðingi, Carl H. sveins og Henrik Thorarensen.
1921 Væringjar taka Lækjarbotnaskálann (gamla) í notkun. — Skátasveit-
in „ísbirnir" stofnuð á Akureyri.
1922 Kvenskátafélag Reykjavíkur stofnað 7. júli.
1923 Kvenskátafélagið Valkyrjan, Akureyri, stofnuð 2. apríl.
1924 Skátafélagið Ernir, Reykjavík, stofnað. — íslenzkur skáti, Sigurður
Ágústsson, tekur þátt í Jamboree í Danmörku. — Bandalag ísl. skáta
talið stofnað 6. júní og viðurkennt af Alþjóðabandalagi skáta sama ár.
1925 1 landsmót skáta haldið í Þrastaskógi. — Ylfingastarfsemi byrjar. —
Haustleikamót skáta haldið í Reykjavík. — Skátafélag stofnað í Hafn-
arfirði 22. febrúar. — Kvenskátafélag stofnað í Hafnarfirði.
1926 Sigurður Ágústsson fer með skátaflokk til Ungverjalands (fyrsta utan-
landsferð ísl. skáta). — Haustleikamót skáta haldið í Hafnarfirði. —
Skátafélagið Væringjar, Akranesi, stofnað 13. maí. — Skátafjöldi 397
(drengir). — Væringjar, Reykjavík, gefa út blaðið „Liljan“.
1927 Fyrsti aðalíundur Bandalags ísl. skáta haldinn 17. júní. Axel V.
Tulinius kjörinn skátahöfðingi, og samþykkt lög fyrir bandalagið.
SKÁTABLAÐIÐ
43