Skátablaðið - 01.07.1962, Síða 19
ætluð til áhaldakaupa. — Væringjar halda skatamót í Þjórsárdal. — 14
norskir skátar heimsækja ísfirzka skáta og ferðast um landið. —
Skátafélagið Andvarar, Sauðárkróki, hefur útgáfu Skátablaðsins, fjöl-
ritaðs, ritstjóri: Franch Michelsen. — I. hefti af Ylfingabókinni eftir
Baden-Powell gefið út af B.Í.S. og Barnavinafélaginu Sumargjöf. —
Skátafélagið Andvarar, Sauðárkróki, stofnar fyrstu skátasveit á íslandi,
sem hefur aðsetur í sveit, og nefnist hún Skátasveit Staðarhrepps. —
Tilkynningablað B.Í.S. kemur út fjölritað. - Skátafjöldi 419 (drengir).
1935 4 landsmót skáta haldið á Akureyri og umhverfi. — Skátablaðið byrjar
að koma út á vegum B.Í.S. — Söngbók skáta kemur út. — Skátafélagið
Fylkir, Siglul'irði, stofnað 22. jan. — Kvenskátafélagið Ásynjur, Sauð-
árkróki, stofnað 1. júli. — Skátafélagið Framherjar, Flateyri, stofnað
17. febr. — Skátar á ísafirði aðstoða við að bjarga hesti úr vök. —
Skátar á Siglufirði aðstoða við að bjarga hesti úr ógöngum. — II. hefti
af Ylfingabókinni eftir Baden-Powell gefið út af B.Í.S. og Barna-
vinafélaginu Sumargjöf. — Skátafjöldi 509 (drengir).
1936 5 landsmót skáta haldið á Þingvöllum. — Fyrsta skátamót Vestfjarða
haldið í Súgandafirði. — 6. aðalfundur B.Í.S.. Kosinn varaskátahöfð-
ingi, Steingrímur Arason. — Skátafélagið Útherjar, Þingeyri, stofnað
14. febrúar. — Kvenskátafélag stofnað á Þingeyri. — Skátafélagið Glað-
herjar, Suðureyri, stofnað 28. marz. — Skátafélagið Drengir, Akureyri,
stofnað. — Hjálpræðisherinn í Reykjavík stofnar flokk herskáta. —
Skátafélagið Svanir stofnað á Stokkseyri. — 3. Væringjadeild efnir til
reiðhjólakeppni frá Kolviðarhóli að Sundlaugavegi í Reykjavík. Sig-
urvegari Sigurður Þorgrímsson. — Ernir efna til reiðhjólakeppni frá
Kolviðarhóli að Vatnsþró í Reykjavík. Sigurvegari Sigurður Ágústsson.
— Skátafjöldi 667 (drengir).
1937 33 íslenzkir skátar sækja Jamboree í Hollandi. — Skátafélagið Víkingar,
Vík, stofnað. — Skátaíélagið Heiðabúar, Keflavík, stofnað 15. septem-
ber. — Skátafélag Hafnarfjarðar stofnað 2. febrúar. Nafninu síðar
breytt í Hraunbúar (1945). — Skátar í Reykjavík aðstoða vegna inflú-
enzufaraldurs. — 25 ára afmælis skátahreyfingarinnar á íslandi minnzt
með samsæti á Hótel Borg, þar sem viðstaddir voru 450 skátar og
gestir þeirra. — 2. Skátamót Vestfjarða haldið í Dýrafirði. — Stofuað
skátafélagið Fjallbúar á Hofsósi. — Hópsblaðið, síðar Ylfingablaðið,
kemur út í Reykjavík. — B.Í.S. tekur að sér blaðið ,,Skátinn“ og byrjar
að gefa það út sem foringja- og rekkablað. — Rotary klúbburinn í
Reykjavík veitir tveimur reykvískum skátum ókeypis Jamboreeferð.
— Axel V. Tulinius skátahöfðingi andast 8. desember. — 20 félög inn-
an B.Í.S. — Skátafjöldi 768 (drengir).
SKATABLAÐIÐ
45