Skátablaðið - 01.07.1962, Side 56
INNLENDAR FRÉTTIR
Landsmót skáta 1962.
Litlu er að bæta við þær fréttir, sem Skáta-
blaðið hefur þegar flutt lesendum sínum af
landsmótinu, sem halda á á Þingvöllum í sum-
ar, utan hvað allur undirbúningur hefur geng-
ið að óskum, og útlit er fyrir, að þetta mót
verði eitt hið glæsilegasta, sem íslenzkir skátar
hafa haldið fyrr og síðar. Þátttakendur í mót-
inu verða væntanlega um 1800 islenzkir og er-
lendir skátar, en að meðtöldum gestum og þeim,
sem inunu dveljast í fjölskyldutjaldbúðunum,
má búast við, að þessi tala fari talsvert á þriðja
þúsund. Mótsnefndin hefur ráðið fastan starfs-
mann, Magnús Stephensen, S.F.R., til að ann-
ast ýmis framkvæmdaratriði í sambandi við mót-
ið, og hefur hann skrifstofu i Skátaheimilinu í
Reykjavík, sími 15484, og opið kl. 4—6 daglega.
Þá má geta þess, að ákveðið hefur verið að gefa
út prentað dagblað á mótinu. Verður það prent-
að í Reykjavík og sent austur daglega. Ritstjórn
þess mun annast Jón Tómasson, Keflavík, en
prentsmiðja Vísis mun annast prentun. Einnig
má ennþá einu sinni vekja athygli gamalla
skáta á fjölskyldubúðunum, en þangað mega
þeir koma með maka sína og börn innan skáta-
aldurs. Verður mótsgjald í fjölskyldutjaldbúð-
unum kr. 500 fyrir hverja fjölskyldu, og eru
82
viðkomandi algjörlega óbundnir af mótinu hvað
viðvíkur fótaferðar- og liáttatíma, og hafa einn-
ig frjálsar hendur um það, hvenær þeir koma
á mótið eða fara þaðan og einnig, hve lengi
þeir dveljast þar. Upplýsingabæklingur fyrir
fjölskyldutjaldbúðirnar liefur verið gefinn út og
er hægt að fá hann á skrifstofu mótsins.
Þar sem þetta er síðasta hefti blaðsins, sem
kemur út áður en landsmótið ler fram, vill
Skátablaðið óska lesendum sínum góðrar ferðar
á mótið og vonar, að þeir megi eiga ánægjulega
daga þar.
Skátahöfðingj afundur Norðurlanda.
Um sama leyti og landsmót skáta fer fram á
Þingvöllum, munu verða haldnir í Reykjavík
fundir skátahöfðingja og kvenskátahöfðingja á
Norðurlöndum. Skátahöfðingjafundurinn verð-
ur haldinn í Hagaskóla í Reykjavík og munu
sækja hann allir skátahöfðingjar drengjaskáta-
bandalaga á Norðurlöndum og e. t. v. fleiri
fulltrúar hinna ýmsu bandalaga. Fundur kven-
skátahöfðingjanna verður haldinn í Neskirkju
í Reykjavík, og munu sækja hann allir kven-
skátahöfðingjar á Norðurlöndum auk erlendra
bréfritara og framkvæmdastjóra. Þá mun einnig
sérstakur fulltrúi frá .Sameinuðu þjóðunum
halda fyrirlestur á fundunum um vandamál
æskunnar í nútíma þjóðfélagi og margt annað
fróðlegt verður þar til umræðu. Mun Skáta-
blaðið færa lesendum sínum nánari fregnir af
fundum þessum í næsta tölublaði.
Lady Baden-Powell til íslands.
Þau merkistíðindi hefur Skátablaðið nú að
færa lesendum sínum, að Lady Baden-Powell
mun heimsækja ísland í sumar. Mun hún sitja
fund kvenskátahöfðingja Norðurlanda, og vænt-
anlega sér hún sér einnig fært að heimsækja
SKATABLAÐIÐ