Skátablaðið - 01.07.1962, Síða 58
Dróttskátar.
Fyrir skömmu voru stofnaðar svo nefndar
dróttskátasveitir á Blönduósi og Skagaströnd,
hinar fyrstu sinnar tegundar hérlendis. Eru þær
ætlaðar fyrir skáta á aldrinum 15—18 ára, og
sameiginlegar fyrir drengi og stúlkur. Orðið
dróttskáti er nýyrði í íslenzku, og er hugmynd-
in, að framvegis komi það í stað orðanna fjalla-
rekki og ungsvanni og nái yfir þann aldurs-
flokk kven- og drengjaskáta, sem spannar bilið
milli hinna eiginlegu skáta annars vegar og
rekka og svanna hins vegar. Bæklingur með
leiðbeiningum fyrir dróttskátastarf mun vera
væntanlegur fljótlega.
Ný skátafélög.
Nýlega hefur stjórn B.I.S. samþykkt inntöku-
beiðnir tveggja nýrra skátafélaga í bandalagið.
Hið fyrra er Skátafélagið Vogabúar, Vogum,
Vatnsleysuströnd. Félagsforingi er Jón Guð-
brandsson. Hið síðara er skátafélagið Ásbúar,
Egilsstaðakauptúni. Félagsforingi er Páll Sig-
björnsson. Bæði þessi félög eru samfélög drengja
og stúlkna.
Skátablaðið býður hin nýju félög velkomin,
og vonast til að fá frá þeim marga nýja áskrif-
endur, er tímar líða fram.
Skátar verða stúdentar.
Nú í vor luku hvorki meira né minna en 15
starfandi skátar í skátafélögunum í Revkjavík
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Skátablaðið hyggur, að hér muni vera um al-
gjörlega einstæðan atburð að ræða og óskar
hinum nýju stúdentum hjartanlega til hamingju.
K.S.F.R.
Jóna Hansen, félagsforingi K.S.F.R., hefur
nýlega fengið styrk til að dveljast nokkra mán-
uði í Bandaríkjunum og kynna sér æskulýðs-
starf. Að loknum styrktímanum mun hún síðan
enn dveljast þar í mánuð á vegum bandarískra
kvenskáta og kynna sér starfsemi þeirra.
Til U.S.A.
Bandaríska kvenskátasambandið hefur nýlega
boðizt til að kosta dvöl tveggja íslenzkra kven-
skáta á aldrinum 16—18 ára í Bandaríkjunum
í tvo mánuði (júlí og ágúst) 1963. Þær greiða
einnig ferðir til og frá Bandaríkjunum. Þær
11h WORID JAMBOREE
AUGUST 1963
liARATHON-CBEECE
Við viljum aðeins minna d, að fresturinn til að
senda umsóknir um þátttöku í Jamboree 1963
i Grikklandi er alveg að renna út.
stúlkur, sem hafa áhuga á þessu, eru beðnar að
snúa sér til skrifstofu B.I.S.
Erlend boð.
Svenska Scoutförbundet hefur boðið íslenzk-
um skátum að senda fulltrúa til að vera við-
staddir 50 ára afmælishátíð skátastarfs í Svíþjóð
6. og 7. október n.k. Er stjórn B.Í.S. sérstaklega
boðið að senda tvo fulltrúa, og sömuleiðis er
boðið tveimur skátum, pilti og stúlku, á aldr-
inum 15—18 ára. Ekki hefur enn verið ákveðið,
hvort þessi boð verða þegin eða hverjir fara, en
skrifstofa B.Í.S. veitir nánari upplýsingar.
ERLENDAR FRÉTTIR
J amboree-on-the-air.
Jamboree-on-the-air, eða loftskeyta skátamót,
verður haldið í fimmta skipti í október n.k. Fer
það þannig fram, að skátar um allan heim
stilla loftskeytatæki sín á sömu bylgjulengdir
og ræða síðan saman gegnum þau. Ef einhverjir
SKÁTABLAÐIÐ
84