Skátablaðið - 01.07.1962, Side 59
ÞAKKARÁVARP
Kæru skátar.
Hér me8 sendi ég ykkur öllum
mínar innilegustu skátakveðjur og
þakka ykkur af alhug fyrir góðar
gjafir, kveðjur og hlýhug á fimm-
tugsafmæli mínu 30. marz s.l.
Ég bið ykkur allrar blessunar og
óska ykkur alls góðs á komandi
árum.
Guð blessi ykkur skátastarfið.
Hrefna Tynes.
íslenzkir skátar skyldu vera „radio amatörar" og
hafa áhuga á þessu, veitir skrifstofa B.Í.S. nán-
ari upplýsingar.
Ný alþjóðaskrifstofa.
Alþjóðaskrifstofa skáta hefur fyrir skömmu
opnað útibú í New York. Mun vera ætlunin, að
þetta útibú sinni einkum því verkefni að safna
fjárframlögum frá Bandaríkjunum til að styrkja
alþjóðlega starfsemi skáta.
Afmæli á Ceylon.
Það eru fleiri en íslenzkir skátar, sem eiga
afmæli í ár, því að skátarnir á Ceylon halda
einmitt hátíðlegt 50 ára afmæli sitt um þessar
mundir. Þeir minnast afmælisins með glæsilegu
landsmóti eins og við, og einnig hefur póst-
stjórnin þar ákveðið að gefa út frímerki (35 cent)
til að minnast skátanna.
Ítalía.
Italskir drengjaskátar munu halda 6. lands-
mót sitt í júlí n.k.
Paraguay.
Skátabandalagið i Paraguay, sem er nýstofnað,
hefur nýlega verið samþykkt sem fullgildur aðili
að Alþjóðabandalagi skáta.
Nippon Jamboree.
Japanskir skátar halda þriðja landsmót sitt —
Nippon Jamboree — 2.-7. ágúst n. k. Allir er-
lendir skátar, sem áhuga hafa á að sækja þetta
mót, eru hjartanlega velkomnir.
„Scouting for Boys“ á finnsku.
Nýlega bárust þær fregnir, að Skátahreyfingin
(Scouting for Boys) eftir Baden-Powell hefði ver-
ið þýdd og gefin út í Finnlandi. Bætist þá
finnskan í hóp þeirra fjöldamörgu tungumála,
sem bókin hefur verið þýdd á, en til dæmis urn
vinsældir hennar má nefna, að í Engandi er
Biblían númer eitt, verk Shakespeare’s númer
tvö og Scouting for Boys númer þrjú, ef miðað
er við fjölda útgefinna eintaka.
Skátastarf í U.S.A.
„Þjálfun og félagslyndi skátastarfsins eru ó-
metanleg fyrir einstaklingsþroska ungra manna
og fyrir hæfileikann til þjóðfélagslegs þroska.
Meira en 30 millj. manna hafa tekið virkan þátt
í skátahreyfingunni (í Bandaríkjunum) síðan
starfsemi hennar hófst. Það hefur haft ómetan-
leg áhrif á þjóðlíf okkar, og ég er þess fullviss,
að framtíðarstarf skátanna mun eiga eftir að
auka miklu við orku og styrkleika þjóðar okkar“.
Eftir John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna.
SKATABLAÐIÐ
85