Skátablaðið - 01.04.1998, Page 29
Hópvinna
Skátastarf byggir á starfi skáta-
flokksins þar sem engin er þiggjandi
heldur eru allir virkir þátttakendur í
ákvarðanatöku og öllu starfi flokksins.
Þetta fyrirkomulag gefur þátttakendum
1 skátastarfi ómetanlegt veganesti á lífs-
leiðinni, kennir þeim að taka ábyrgð á
ákvörðunum sínum og afleiðingum af
þeim.
Hópstarfið í skátaflokknum er einnig
góður skóli í lýðræðislegum vinnu-
brögðum og veitir þátttakendum
reynslu í því að tala fyrir sínu máli,
lökstyðja sínar hugmyndir og setja fram
°8 fá jákvæða og uppbyggilega gagn-
rýni.
■ Landsmót á Ólfljótsvatni 1999 ■
Næsta landsmót fer fram á Úlfljóts-
yatni dagana 13. - 20. júlí 1999- Yfir-
skrift mótsins er „Leiktu þitt lag“. Pessi
yfírskrift hefur tvíþætta merkingu í
mótshaldinu og því undirbúningsstarfi
sem sett verður fyrir skátaflokka og -
sveitir.
Fyrst má nefna að mikil áhersla
verður lögð á hvers kyns listsköpun s.s.
tonlist, myndlist og leiklist svo nokkuð
se nefnt. Önnur megináherslan er sú að
flraga fram mikilvægi þess að hver og
e'nn „leiki sitt lag" í lífinu, hafi sjálf-
stæðan vilja og kjark til að standa við
þau sjónarmið og skoðanir sem hverj-
Urn °g einum finnast skipta máli. Það
eru væntingar okkar sem stöndum að
undirbúningi að allir þátttakendur fái
raunveruleg tækifæri til að „leika sitt
*a8“ og fái tækifæri til að sinna fjöl-
hreyttuin viðfangsefnum með félögum
sínum í skátaflokknum auk þess að fá
t°m til að rækta sín eigin áhugamál.
"hyggja borgir -
við sem höfum tekist á það ábyrgðar-
starf að undirbúa þetta mót höfum
verið að störfum undanfarin misseri við
tuargvíslegan undirbúning enda að
jUorgu að hyggja þegar „byggja þarf
-,°rg“ sem hýsa á 5.000 mótsgesti.
*fluga þarf að aðföngum og útdeilingu
ruatvæla á hverjum degi, skolp- og
ruslamál þurfa að vera í lagi, svo og
vatnslagnir og önnur atriði sem við
góngum að sem sjálfsögðum hlutum í
°kkar daglega lífi. Þetta er mikið verk.
■kfikil áhersla hefur verið lögð á að gera
m°tið eins „umhverfisvænt" úr garði og
m°gulegt er og hefur tæknistjórn móts-
lns lagt mikla vinnu í að upphugsa
leiðir og aðferðir til þess að þessi stóra
Samkoma skilji eftir sig sem allra
rrtinnst af efnum og umbúðum sem
losa þarf annars staðar en í náttúrulegar
safngryfjur mótssvæðisins.
Kunningi minn sem einbeitti sér að
verkfræðinámi að loknu stúdentsprófi
spurði mig eitt sinn í þaula út í móts-
undirbúning sem þennan og að hans
mati var þetta óvinnandi verkefni nema
fyrir sérþjálfaðar sveitir stærri herja að
reisa mörg þúsund manna borg á
skömmum tíma á landssvæði sem væri
ekki skipulagt með slíkt fyrir augum og
yrði að nokkrum vikunr þannig út-
lítandi að þangað hefði ekki nokkur
maður sett upp sitt tjald!
Vissulega vex það mörgum í augum
að smella upp einni borg á skömmum
tíma - og skyldi engan undra. En hafa
ber hugfast að skátar hafa framkvæmt
þessa hluti í níu áratugi og kunna því
sitthvað til verka. Banki, pósthús, sím-
stöð, verslun, útvarps- og sjónvarps-
stöð, veitingastaðir, leiksvæði, barna-
gæsla og sjúkrahús hjálparsveita skáta
eru aðeins örfá atriði í þeirri þjónustu
sem hver einasta borg þarf að hafa fyrir
þegna sína - þessi þjónusta verður öll
fyrir hendi á næsta landsmóti og meira
til. En þetta er aðeins hægt ef fyrir er
öflugur mannskapur með reynslu og
nýjar hugmyndir og þannig hefur
okkur skátum tekist, í sjálfboðaliða-
starfi, að byggja borgir!
- Undirbúningur íélaga -
Eins og sjá má af framangreindu er
eitt landsmót ekki alveg hrist fram úr
erminni heldur krefst slíkt mótshald
mikillar skipulagningar og undir-
búnings. Ég hef lítillega rætt um undir-
búning skátaflokka og sveita og gefið
þér, lesandi góður, örlitla innsýn í þann
undirbúning sem stjórnendur mótsins
sjálfs hafa með höndum. En einna
mikilvægastur er þó góður undirbún-
ingur skátafélaganna sjálfra því það eru
auðvitað þau sem eru að halda sitt
landsmót. Að lokum langar mig því að
beina því til allra skátafélaga að þau
skipi nú þegar fararstjórnir til að vinna
að undirbúningi sinna félaga. Æskilegt
er að í slíkri fararstjórn sé a.m.k. einn
úr stjórn félagsins, fulltrúi foringja fé-
lagsins, fulltrúi foreldra skáta og fulltrúi
foreldra ylfinga.
Með sarpstilltu átaki getum við full-
-orðna ’fólkið látið gott af okkur leiða í
þágu öflugs æskulýðsstarfs fyrir börnin
okkar - í þágu skátastarfs!
6}nðniMn2n? ''pálsscn, ?ag-
sÁiMvsifcri nxsia Aœndsnufts
skáta, Uqqut áficvsLn á að
skáíaf foaU þcqa? að hcfija
iindi?6tíning sinn soc ntétií
Hicgi nýtast þcínt scm jákoxð
njsjjLí^nn cg éýtmsct ÝC^nsLa.
Góðar stundir,
Guðmundur Pálsson,
dagskrárstjóri
Leíktu þítt lag
á Landsmót skáta 1999
Skátablaðið — þitt blað