Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 15
II leiðbeiningar, svo að hún fari engar villigötur, þegar hún leitast við að ná réttum skilningi á þessu orði Jesú Krists, sem vér erum nú að hugleiða. Ilvað er livíld? Hvað er starf ? Og hvernig getr það tvennt samrímzt? Þetta er umhugsunarefni vort nú. Hvíld, ;:l ;,jörlega laus við allt starf, þekkist ekki hér á jörðu. Það ástand, sem kemst næst því, er svefn- inn; en jafnvel þá er andi vor að meira eða minna leyti starfandi. Hvíld er vanalegast breyting á starfi, og breytingin er í því fólgin, að líkaminn hættir að vinna, og andinn dvelr við eitthvað annað, að breytt er til um líkamlegt starf, eða breytt er til um andlegt starf. Dœmi þessa er hvíldardagrinn kristni. Hann er til orð- inn vegna mannsins, segir Jesús. Manneðlið þarf á honum að halda. Maðrinn er háðr lögmáli og nauðsyn hvíldarinnar. Lífsins getr hann með engu móti notið nema í því sé tilbreyting. Að vera sokkinn niðr í verk sitt og þrælbundinn við það alla daga vikunnar og allar vikur ársins og öll ár æfinnar, eftir að á fullorðins aldr er koinið, hlýtr óhjákvæmilega að hafa skaðleg áhrif bæði á sál og líkama mannsins. Hvíldardagrinn er nauðsyn hverju mannfélagi og liverjum einstaklingi. Hann hefir verið nauðsyn frá sköpun mannsins. Að beztum notum kemr liann, ef hann er haldinn sem krist inn sunnudagr, drottinsdagr, eins og liann er nefndr í nýja testamentinu. Vinnandi mönnum öllum er hann ómetanlega dýrmæt hvíldartíð; en sú livíld er ekki ein- göngu fólgin í því að láta líkamann hvíla aðgjörðarlaus- a.n í legubekk, heldr líka í því að láta ándann og jafnvel líkamann starfa að öðru en gjört hefir verið virku dag- ana. Að helga daginn andlegu starfi, og láta hugann dvelja við guðlega hluti, að láta livíldina ekki vera leti- hvíld, heldr starfandi, guðlega hvíld — með því getr kristið mannfélag haldið sunnudaginn sér til blessunar, sér til hugsvölunar, til undirbúnings undir skyldustörf virku daganna. Það mannfélag, sem liefir varpað fra sér hinum kristna sunnudegi, hefir með því fótum troðið eina dýrmætustu gjöfina, sem guð hefir veitt mannkyn-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.