Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1910, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.03.1910, Blaðsíða 19
eru jirestar og guðfrœða-kennarar, sem fylgja lienni fram. Þeir þykjast ekki vera að ganga í berhögg við kristna tni, — síðr en svo; engir þykjast vera dyggari verkamenn í víngarði guðs en einmitt þeir. Flestar villukenningar hafa tekið sig n}>j» á móti kristinni trú, en þessi byrjar þannig, að hún þvkist vera að tala máli guðs, en leiðir þó út í sömu ógöngur og liinar. Fals- spámenn gamla testamentisins eru þar fyrirmynd, því þeir komu ætíð fram sem spámenn guðs, og byrjuðu oft mál sitt með orðunum: „Svo segir drottinn.“ Nýja guðfrœðin fer nokkuð svipað að, og þykir mér líklegt, að hún sé fyrirrennari eða bvrjan villukenningar þeirrar, sem (samkvæmt því, er um er sj>áð í nýja testamentinu) á að koma upp innan kirkju og verða til mikils tjóns fyrir kristnina.“ Gömul bók. Eftir séra Kristinn K. Ólafsson. Fyrir skömmu var mér gefið eitt eintak af mjög gamalli bók, sem eg býst við a,ð nú sé orðin óvíða til. Bókin er nefnd „Stutt og einföid undirvísun um kristin- dóminn“ eftir dón biskup Yídalín, prentuð 1748 að Hól- um, og er þriðja útgáfa ritsins. Bókin er útskýring á Frœðum Lúters hinum minni, og svipað fvrirkomið og barnalærdómum þeim, sem nú tíðkast. Bókin er mjög merkileg og nákvæm útlistun á Frœð- unmn, og er hún vel greinilegt svar upp á þá ákæru, að ekkert nema dauðr rétt-trúnaðr ha.fi tíðkazt á seytjándu öldinni; því að þar er eins skýrt tekið fram og maðr á að venjast jafnvel á tuttugustu öld, að kristindómrinn eigi að bera ávöxt í helguðu líferni. f?að voru gallar á kristindómslífi seytjándu aldarinnar; ]>að er ekki að efa. En óþarft er að sverta þá kristindómsskoðun, er þá ríkti, um skör fram, jafnvel þótt það sé gjört í þeim fagra tilgangi að gjöra einhverja nútíðarstefnu sem glæsilegasta. Og ekki hefir ])að verið annarri eins kennslubók og þeirri, er hér er um að rœða, að kenna. ])ó

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.