Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1910, Side 20

Sameiningin - 01.03.1910, Side 20
i6 að einhverjir á þeirri tíð hafi álitið nóg að samsinna kristindóminum, í stað þess að láta hann ráða breytn- inni. Eg vil jafnvel dirfast að segja, að margr gæti kynnt sér þessa bók til fullt eins mikillar sálubótar og margt það, er býðst í því skvni nú. Bókin snertir auðvitað við mörgu, sem um hefir verið deilt á seinni tímum. Yildi eg benda á tvö atriði, sem nefnd liafa verið ekki alls fvrir löngu. Því liefir verið haldið fram, að það sé kenning Ágs- borgartrúarjátningarinnar, að börn, sem deyja óskírð, glatist. Það sé að eins tilraun til að krafsa yfir, þegar nútíðar-kennimenn haldi öðru fram. Nú vill svo vel ti!, að Jón biskup Vídalín, sem ekki mun verða sakaðr um að hann hafi verið of lítið strangr, minnist einmitt á þetta atriði. Eftir að hafa bent á, að hin vanalega ráð- stöfun guðs sé að menn skírist til að fá fullvissu um inntöku í guðs ríki, segir liann: ,.Þó er guð eigi við þetta meðal bundinn.“ Enn fremr: „Enn þeim ei kunna skírn að hreppa, þeim kann skírnarleysið ekki að bægja frá sáluhjálpinni. . . . Svo sem eru börn þau, er ei liljóta skírn....“ Kemr hann svo með ýms dœmi þessu til skýringar.—Mun þetta því áreiðanlega liafa verið skiln- ingr lútersku kirkjunnar á hans tíð, og bendif til þess mjög sterklega, að það liafi verið hinn upprunalegi skilningr á Ágsborgarjátningunni. Hitt er það, hvort aðrir en kennimenn megi skíra, og segir um það: ,,í viðlögum og nauðsyn má hver maðr skíra, svo karlmaðr sem kona, er hefir vitsmuni þar til.“ Á þetta er bent út af ágreiningi um ]>að, hvort það sé kenning sömu játningar, að enginn nenm prest- vígðr kennimaðr megi framkvæma prestsverk, hvernig sem á stendr. Meistari Jón kemr hér því með aðra sönnun fyrir því, að skilningr lútersku kirkjunnar nú á tímum á Ágsborgarjátningunni er sá upprunalegi skiln ingr á því riti. Að menn skilji trúarjátningar kirkjunnar er auð vitað aðal-skilvrði fyrir því að kúnna að meta þær. En þvf betr sem menn kvnnast þeim, því betr munu menn sannfœrast um, að þær liafa varazt að taka fram annað

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.