Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 21

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 21
*7 en Ijósa kenning guðs orðs. Sannleikrinn er sá, að ímugustrinn á játningunum er að jafnaði samfara og sprottinn af ímugusti á ýmsum kenningum ritningarinn- ar sjálfrar. Er það greinilegt að minnsta kosti í þeim árásum á játningarnar, er komið hafa fram i síðustu tíð hjá vorri eigin þióð. Að breyta játningunum, reynist þær ósamkvæmar guðs orði, er sjálfsagt. En að afnema þær í einu og öllu, án tillits til þess livort þær eru í samrœmi við guðs orð eða ekki, er fjarstœða. Ekki sízt, þegar úrskurðar- valdi ritningarinnar er hafnað um leið. GAMLA TESTAMENTÍÐ SKOÐAÐ í ÞESS EIGIN LJÓSI. Kafli úr bókmni „The Problem of the Old Testament“ eftir dr. James J. Orr. Lausl. þýðing eftir G. G. (Framh.) Yér höfum séð, að ekki verðr grein gjör fyrir þess arri dásamlegu eining, sem er sérkenni biblíunnar, nema fyrst sé gefinn gaumr að sögu þeirri og trúarbrögðum sem biblían gjörir osss kunn, því að þar felst undrið sjálft eða leyndardómrinn. Bókin á ekki sinn líka, a.f því hún fjallar um trúarbrögð, sem ekki eiga sinn líka. En snúum oss fvrst að sögunni. Þar verðr þegar í stað fyrir oss augnamiðið, sem einkennir hana. „Hugmynd- in um augnamiðið“—segir Dorner,—„er það, sem kalla mætti sál lsraels.“ Það er að segja: augnamið eða til gangr er hugmynd sú, er ræðr í sögu þjóðarinnar. Það en þessi hugmynd, sem gjörir að einni heild bæði sög- una sjálfa og eins bœkrnar, sem geyma hana. Ekki hafa söguhetjurnar sjálfar ætíð vitneskju um tilgang þennan; og enn fjær sanni er það, að þessi hugmynd sé hvergi til orðin nema í hugum þeirra manna, sem skráðu bœkrnar — að þeir hafi ofið hana inn í söguna. Því að þetta umrœdda einkenni, augnamiðið, er ekki á yfirborði biblíu-sögunnar — því er ekki svo háttað, að það geti átt upptök sín í breytingum eða innskots-setningum ritar- anna, eða kœnlegri samskeyting sögubrotá—, lieldr er það óaðskiljanlegt frá aðalefni sögunnar, einn þáttrinn

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.