Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 22

Sameiningin - 01.03.1910, Qupperneq 22
í söguþræðimim. Það er, eins og Buslmell komst svo heppilega að orði um mynd Ivrists í guðspjöllunum, lík- ast fangamarki í pappírsörk, sem ekki verðr afmáð nema örkin sjálf sé að engu gjör. Og ef aðal-drættirnir í sögu ísraels eru ekkert annað en tilbúningr mannlegs hugvits, þá er eftir að finna það andlega mikilmenni, er gæti fundið slíkt upp. Ef einhver getr talið sjálfum sér trú um, að vottr sá um augnamið, er vér finnum í ritn- ingunni — hjálpræðis-fyrirætlan guðs, sein liggr eins og rauðr þráðr í gegn um hana—, sé svo léttvæg hugsun og grunnhyggin, að auðvelt og eðlilegt hefði verið hverjum óbreyttum þjóðsagnaritara eða spáhneigðum umrenn ingi, átta til níu liundruð árum fyrir Krist, að láta sér slíkt til hugar koma, að setjast niðr og flétta þá hugmynd inn í heilan sögubálk, og láta hana koma þar eðlilega út — ef einhver getr talið sér trú um það, þá getum vér ekki sagt um slíkan mann annað en það, að trú hans sé mikil, næstum því eins mikil og trúin lijá gruflurum þeim, er halda, að mynd Jesú í guðspjöllunum hafi sk;:pazt í kirk a, sem var glundroða-samsafn af Gyðingum og heiðingjum, og verið búin til úr munnmælasögum um góðan og vitran meistara, eftir að hin sanna mvnd Jesú var grafin og gleymd! i’essi grunntónn ritningarinnar er því alls ekki mannaverk. Hann liggr í viðburðunum sjálfum og kemr æ skýrar í Ijós eftir því, sem lengra er komið sög unni, þar til loks að leyndardómrinn, „sem liulinn var öllum öldum og kynslóðum“, er fullkomlega afhjúpaðr f Kristi og hjáliiræði hans. Allir þeir biblíufrœðingar, sem í sannleika bera skyn á hið andlega eðli trúarbragða Israels, kannast við ]ietta augnamið, sem einkennir sögu þjóðarinnar, og játa, að þetta atriði setji sérkennilegt mót á trúarbrögð hennar og gjöri þau algjörlega frá- hrugðin öllum öðrum trúarbrögðum. Þetta einkenni liggr bersýnilega í aðal-dráttum sög- unnar, er vér lítum vfir rás viðburðanna. Orundvöllr- inn er lagðr í sögunni um sköpun heimsins, og liá-stig þess verks í sköpun mannsins. Svo heldr sagan áfram, skýrir frá falli mannsins, og rekr þroskun mannfólksins í tvær áttir, í guðrœkni hjá niðjum Sets, og guðlevsi hjá

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.