Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1911, Síða 31

Sameiningin - 01.06.1911, Síða 31
ervitt aö ráða, hv'aö þaö myndi vera, sem dregiö haföi þá ®' þangaö, hin sífreyöandi lind eða prestrinn, sem ávallt var þar. Hann heyröi og sá, að aðrir sáu hann, en hann talaði aldrei. Stundum rétti hinn aðkomandi maðr honum hönd með smápeningi í. Undirhyggjulega deplaði hann augun- um, er hann tók við peningnum, en um leið fékk hann gef- anda papyrus-laufblað í staðinn. Viðtakandi flýtti sér að dýfa laufblaðinu niðrí skál- ina; og er hann svo héldi því í sólskininu meðan vatnið draup af því, gat hann búizt við að fá til launa á það letrað rimaða stöku; og sjaldan kom það fyrir, að ljóðgjörð sú þætti svo léleg, að orðstír lindarinnar yrði fyrir þá sök fyrir rýrð. Áðr en Ben Húr gat prófað véfrétt þessa sást. til nýrra gesta, sem komu yfir engið, og er þeir komu í augsýn, jók það á forvitni mannanna, sem fyrir voru, hans ekki síðr en þeirra. Fyrst sá hann úlfalda, stórvaxinn mjög og hvítan, sem maðr á hestbaki teymdi. Var söðulskrínan (houdah) á úlf- j aldanum óvenjulega stór, og fóðruð fagr-rauðum og gyllt- um dúk. Tveir menn aðrir ríðandi komu á eftir úlfaldan- um; þeir héldu á löngum spjótum. ..Það er dásamleg skepna, úlfaldinn sá arna“ —; mælti einn í hópnum. „Það er vist einhver fursti úr fjarlægu landi“ — gat annar til. „Lang-líklegast konungr." „Ef hann hefði fák til reiðar, myndi eg segja, að hann væri konungr." Sá þriðji var á allt öðru máli. „Úlfaldi — hvítr úlfaldi“ — sagði hann, og var mjög valdalegr. „Þeir, sem þarna koma, vinir! — þið getið séð, að þeir eru tveir — eru hvorki konungar né furstar, það eru kvenmenn." Meðan hæst stóð á stælu þessarri, komu hinir ókunnu menn. Ekki varð minna úr úlfaldanum, er á hann var horft nálægt, en meðan hann sást álengdar. Aldrei hafði neinn ferðamaðr, þótt úr fjarlægustu landsálfu væri kominn, litið þar við lindina stœrri og tignarlegri skepnu þeirrar teg- undar. Hin stóru svörtu augu ! hið frábærlega fagra mjall- hvíta hár! hið mikla samdráttarafl í fótunum, er skepnan lyfti þeim upp! hinsvegar sá hœfileikr að geta tifað svo létt, að ekkert heyrðist, er stigið var til jarðar! — enginn hafði nokkurn tíma séð annan eins úlfalda og þennan. Og hve vel hann samsvaraði reiðverinu, sem allt var úr silki, og öllum borðaleggingum þess og gull-skúfum! Silfrbjöllum var hringt á undan honum, og svo léttilega bar hann sig á

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.